Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Nýjar sóttvarnareglur taka gildi á föstudag
Nálægðartakmörk í íþróttum og framhalds- og háskólum verða rýmkaðar þann 14. ágúst þegar ný auglýsing heilbrigðisráðherra tekur gildi.

Miður að frétt Ríkisútvarpsins hafi ekki verið borin undir sérfræðinga
Sóttvarnalæknir vill árétta að nær öll sem sem sýkjast af kórónuveirunni sýkist ekki af henni aftur.

Meðvitund
Meðvitundin er þess eðlis eins og svo margt annað að þú getur ekki misst hana nema þú hafir hana. Það er kannski þess vegna sem það lítur út fyrir að Ólafur Hauksson taki ekki roti.

Svona var 102. upplýsingafundur almannavarna
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn fara yfir stöðu mála, varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi.

Ísland komið á rauðan lista í Noregi: Evrópuleikur Blika í hættu?
Ísland er komið á rauðan lista hjá Norðmönnum og þar með er Evrópuleikur Breiðabliks og Rosenborg í hættu.

Ísland komið á „rauðan lista“ Norðmanna
Ísland er nú komið á „rauðan lista“ norskra yfirvalda en þar er að finna ríki þar sem kórónuveirusmit eru útbreiddari og ferðamenn sem þaðan koma þurfa að sæta strangari reglum en aðrir, eða tíu daga sóttkví.

Engir áhorfendur þegar boltinn fer aftur af stað
Ef íslenski boltinn fer að rúlla á föstudaginn, eins og vonir standa til, verður það án áhorfenda.

Ný auglýsing frá heilbrigðisráðherra vegna samkomutakmarkana væntanleg
Búist er við að stjórnvöld greini frá því síðar í dag eða í fyrramálið hvert framhaldið verður hvað varðar samkomutakmarkanir og aðgerðir innanlands, eftir að núgildandi ráðstafanir renna úr gildi á miðnætti annað kvöld.

Icelandair Hotels fá brúarlán upp á 1.200 milljónir króna
Icelandair Hotels, sem er ein stærsta hótelkeðja landsins, hefur komist að samkomulagi við Arion banka um að keðjan fái 1.200 milljóna króna brúarlán.

Lokaspretturinn eftir hjá Icelandair
Forstjóri Icelandair Group segir að nú sé lokaspretturinn eftir í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins

Fjórir greindust innanlands
Fjórir greindust með kórónuveiruna sem veldur Covid-19 innanlands í gær og greindust þeir allir hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans.

Geðheilsa og Covid-19
Það var mikið rætt um Covid-19 í tengslum við geðheilsu fyrr í vetur þegar faraldurinn stóð sem hæst hér á landi.

Leikmaður Barcelona smitaðist
Spænska knattspyrnufélagið Barcelona hefur greint frá því að leikmaður félagsins hafi greinst með kórónuveirusmit.

Stenst ekki skoðun að stjórnvöld skýli sér bak við sérfræðinga
Forsætisráðherra segir gagnrýni stjórnarandstöðunnar á ríkisstjórnina vegna skorts á áætlunum um framhaldið í sambandi við kórónuveirufaraldurinn koma á óvart.

Sofandi og ráðalaus: 4 punktar
Þingmaður Samfylkingarinnar skrifar um viðbrögð ríkisstjórnarinnar við kórónuveirufaraldrinum.

Ferðamaður í einangrun eftir niðurstöðu seinni skimunar
Alls eru fjórir í einangrun vegna Covid-19 í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Þar á meðan er ferðamaður sem greindist jákvæður í fyrradag eftir niðurstöðu úr seinni skimun fyrir kórónuveirunni.

Hefur miklar áhyggjur af félagslegum afleiðingum fyrir nemendur
Skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ segist hafa miklar áhyggjur af komandi skólavetri. Erfitt sé fyrir nemendur, og þá sérstaklega nýnema, að geta ekki mætt til skóla enda sinni skólinn félagsstarfi ungs fólks að stórum hluta.

Einum veitingastað lokað tímabundið
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu lokaði í gærkvöldi einum veitingastað vegna brota á tilmælum um sóttvarnir og tveggja metra reglu.

Skapsmunir
Það er ekki til vinsælda fallið að gagnrýna Kára Stefánsson. Síst af öllu að atyrða hann fyrir að láta skapsmuni ráða við örlagaríkar ákvarðanir. Enda er Kári vinsæll og veit af því og minnir okkur reglulega á hvað Íslensk erfðagreining hefur varið mörgum milljörðum króna í viðbrögð við kórónuveirunni.

Um 20 prósenta samdráttur á Bretlandi
Efnahagur Bretlands hefur aldrei áður tekið jafn skarpa dýfu og hann hefur gert á tímabilinu apríl til júní.

Fjöldi nýsmita kórónuveirunnar tvöfaldaðist í Frakklandi
Fjöldi nýsmita kórónuveirunnar í Frakklandi tvöfaldaðist síðasta sólarhringinn og segir forsætisráðherra landsins, Jean Castex, ljóst að þjóðin hafi verið á rangri leið í hálfan mánuð.

Andstæðingar Víkings í sóttkví
Olimpija Ljubljana þarf að fara í sóttkví eftir að þrír leikmenn liðsins greindust með kórónuveiruna. Liðið á að mæta Víkingi síðar í mánuðinum.

„Þarf að hugsa þessar stuðningsaðgerðir við atvinnulífið upp á nýtt“
Hann telur að stjórnvöld verði að endurskoða þær efnahagsaðgerðir sem gripið hefur verið til sem allra fyrst. Aðgerðirnar verið að hugsa upp á nýtt í ljósi þróunar faraldursins.

Rannsaka langvarandi afleiðingar af Covid-19
Vísbendingar eru um að einn af hverjum fjórum sem fá Covid-19 stríði við langvarandi veikindi. Íslenskir covid-sjúklingar hafa verið beðnir að taka þátt í rannsókn á áhrifum sjúkdómsins

Telur líklegt að veiran komi frá Austur-Evrópu
Hann segir líkur á að veiran komi frá landi þar sem faraldurinn hefur verið í langan tíma eða smitað mjög stóran hóp af fólki.

Smituðum fjölgar áfram hratt í heiminum
Heildarfjöldi þeirra sem vitað er að smitast hafa af Covid-19 er kominn yfir 20 milljónir. Nánar tiltekið hafa 20.138.860 smitast og 737.520 dáið.

FH bíður eftir staðfestingu frá heilbrigðisráðherra
FH gengur út frá því að spila heimaleik sinn í undankeppni Evrópukeppninnar á heimavelli.

Vísindamenn segja erfitt að treysta bóluefni Rússa
Vísindamenn eru sumir hverjir undrandi yfir tilkynningu Vladimírs Pútín Rússlandsforseta um það að heilbrigðisyfirvöld í landinu hafi lagt blessun sína yfir bóluefni gegn kórónuveirunni sem þróað var í Rússlandi.

Skartgripahönnuður breytir andlitsgrímum í fallega fylgihluti
Þýski skartgripahönnuðurinn Saskia Diez hefur hlotið mikla ahygli fyrir fallega hönnun og frumlega nálgun á andlitsgrímum en hún var ein af fyrstu hönnuðunum til að bæta andlitsgrímum við línuna sína í kjölfar heimsfaraldurs.

Vísuðu á bug sögusögnum um erlenda vændiskonu
Almannavarnir segja ekkert hæft í orðrómi þess efnis að kórónuveirutilfellið sem landsmenn fást nú við megi rekja til vændiskaupa