
Íslendingar erlendis

Dagný og María mætast í Leikhúsi draumanna
Kvennalið Manchester United leikur í fyrsta sinn á Old Trafford þegar það mætir West Ham United í ensku ofurdeildinni um þarnæstu helgi.

Reyna að brjóta upp á fábreyttan hversdagsleikann
Strangar sóttvarnaraðgerðir eru enn í gildi í Danmörku þótt nokkur skref hafi verið stigin til afléttingar. Íslendingar í Kaupmannahöfn sakna þess meðal annars hvað helst að komast á barinn, á veitingastaði og vona að landamæri verði opnuð sem fyrst.

Arna Bára ætlar að borga upp 600 milljóna króna megavillu á tveimur árum
Arna Bára Karlsdóttir býr í 600 milljón króna megavillu á Spáni, hús sem er 1650 fermetrar. Arna hefur verið að gera góða hluti sem fyrirsæta en hún segist lengi hafa elskað erótískar myndatökur.

Sýna Alfreð mikinn stuðning: Þú ert frábær og þessi árás á þig viðbjóðsleg
Joachim Löw og Martina Voss-Tecklenburg, landsliðsþjálfarar Þýskalands í fótbolta, eru á meðal þeirra sem hafa sent Alfreð Gíslasyni stuðningskveðju eftir hótunarbréfið sem honum barst í gær.

Svæsin útbrot eftir að hafa verið sprautuð með AstraZeneca
Stella Jórunn A. Levy sjúkraliði fékk vel upphleypt útbrot um bringu og háls með tilheyrandi verk, kláða og sviða eftir bólusetningu. Hún telur víst að bóluefnið hafi vakið vírusinn.

Fjölskylda Freyju minnist hennar: „Þú munt ávallt lifa í hjörtum okkar“
„Glaðlynda Freyja okkar, sem vildi öllum allt það besta og hafði mikla samúð, var alltaf hjálpsöm og reyndi alltaf að hvetja fólkið í kring um sig. Hún var mikill tónlistarunnandi og naut þess að dansa við tónlist, hún elskaði liti og málaði fallegar myndir sem glöddu alla ástvini hennar.“

Þriðja bylgjan skellur á Noregi á ofsahraða
Yfirvöld í Osló kynntu í kvöld hörðustu takmarkanirnar á svæðinu frá upphafi kórónuveirufaraldursins. Íslensk kona í Osló segir óraunverulegt að þriðja bylgja faraldursins skelli nú á Norðmönnum á ofsahraða.

Já-fólkið hans Gísla Darra tilnefnd til Óskarsverðlauna
Stuttmyndin Já-fólkið eftir Gísla Darra Halldórsson hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta stutta teiknimyndin, í flokknum „Animated Short film“. Þetta var tilkynnt rétt í þessu í beinni útsendingu Óskarsverðlaunaakademíunnar.

Hildur vinnur Grammy-verðlaun fyrir Jókerinn
Hildur Guðnadóttir, tónskáld, vann í dag Grammy-verðlaun fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Joker. Hildur vann Óskarsverðlaun fyrir tónlistina í fyrra og Grammy-verðlaun í sama flokki í fyrra fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl.

Alfreð með Þýskaland á Ólympíuleikana
Alfreð Gíslason er kominn með þýska handboltalandsliðið á Ólympíuleikana í Tókýó í sumar.

Unnur var burðardýr fyrir smyglhring í Hong Kong
Unnur Guðjónsdóttir er mikil ævintýrakona en hún er landsþekkt fyrir ferðir sínar með hópa Íslendinga til Kína í yfir fjörutíu ár sem hafa slegið í gegn.

Diljá elti kærastann og vann sér inn samning hjá sænsku meisturunum
Diljá Ýr Zomers hefur fengið félagaskipti til Svíþjóðar frá Val og er þegar byrjuð að spila með Gautaborgarliðinu Häcken.

Aron bikarmeistari með Barcelona fjórða árið í röð
Aron Pálmarsson og félagar hans í Barcelona urðu í dag bikarmeistarar eftir nokkuð öruggan átta marka sigur á Abanca Ademar, lokatölur 35-27. Er þetta í fjórða sinn sem Aron verður bikarmeistari með liðinu, á fjórum árum.

„Hann gerði þetta ekki“: Íslendingur sakaður um að hafa myrt fjögurra manna fjölskyldu
„Ég veit ekki hvað ég á að segja, ég trúi ekki að þetta sé að gerast,“ segir Nikolina Grnovic en faðir hennar Savo var handtekinn í Frankfurt á fimmtudag. Hann er sakaður um að hafa myrt fjögurra manna fjölskyldu árið 1991.

Verjandinn segir Gunnar Jóhann í skýjunum
Gunnar Jóhann Gunnarsson mun vera í skýjunum yfir að dómur yfir honum fyrir að hafa banað hálfbróður sínum hafi verið styttur úr þrettán árum í fimm. Þetta hefur norski vefurinn iFinnmark eftir verjanda hans.

Ákærðir fyrir að nauðga íslenskri konu á Kanaríeyjum
Lögregluyfirvöld á Kanaríeyjum hafa ákært fjóra menn fyrir kynferðisbrot gegn 36 ára gamalli íslenskri konu. Eru mennirnir grunaðir um að hafa nauðgað konunni en þeir sitja allir í gæsluvarðhaldi og eiga ekki möguleika á að losna úr fangelsi gegn tryggingu.

Dómur yfir Gunnari Jóhanni mildaður úr þrettán árum í fimm
Dómurinn yfir Gunnari Jóhanni Gunnarssyni, sem skaut hálfbróður sinn til bana í bænum Mehamn í Noregi, var í gær mildaður verulega.

Hlynur lét drauminn rætast og gerir það gott á Kýpur
„Ég kom fyrst til Norður-Kýpur til að upplifa Miðjarðarhafslífsstílinn í ferðalagi þar sem draumur minn hefur ávallt verið að búa í sólríku landi. Þegar ég var búinn að heimsækja og ferðast aðeins um Norður-Kýpur í tvígang tók ég þá ákvörðun að flytjast hingað þar sem möguleikarnir voru margir og virkilega ódýrt að lifa af hérna eða um þrisvar sinnum ódýrara en til dæmis heima á Ísland,“ segir Hlynur M Jónsson sem búsettur er í Trikomo í Kýpur og tók hann ákvörðun um að elta drauminn og búa á sólríkum stað.

Bein útsending: Opnun Heimstorgs Íslandsstofu
Heimstorg Íslandsstofu verður opnað í dag klukkan 13:30, en því er ætlað að vera upplýsinga- og samskiptagátt fyrirtækja sem leita viðskiptatækifæra í þróunarlöndum og víðar.

„Það þarf ekki að taka það fram en ég tók bara handfarangur“
Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk grædda á sig handleggi í Frakklandi í janúar, er nú farinn af Édouard Herriot-sjúkrahúsinu í Lyon þar sem hann hefur dvalið síðastliðnar sjö vikur. Hann er farinn í endurhæfingu á öðru sjúkrahúsi.

„Skildi ekki orð af því sem dómararnir sögðu við mig“
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég er í háhæluðum skóm fyrir utan það þegar systir mín dressaði mig upp sem dragdrottning fyrir grímuball þegar ég var svona tíu ára,“ segir Rúrik Gíslason fyrrverandifótboltamaður sem sló rækilega í gegn í þýska dansþættinum Let‘s Dance á föstudagskvöldið. Hann var á línunni í Brennslunni á FM957 í morgun.

Flugferð til Suðurskautsins gekk vonum framar
Flugvél Icelandair sem flaug til Suðurskautslandsins fyrir helgi til að sækja norskt vísindafólk á vegum Norsku heimskautsstofnunarinnar. Ferðin tók fimm daga og gekk hún vonum framar.

Flytur heim og fær ekki fæðingarorlof: „Þetta er bara ein hindrunin af mörgum“
Bjarki Brynjarsson og Þóra Sigurðardóttir eru búsett í Noregi, eiga von á sínu fyrsta barni í maí og ætla að flytja heim til Íslands í vor. Þóra á rétt á fæðingarorlofi í Noregi þar sem hún heldur starfi sínu áfram. Bjarki á hins vegar hvorki rétt á fæðingarorlofi á Íslandi né í Noregi vegna ólíkra viðmiða um rétt til fæðingarorlofs í löndunum tveimur.

Rúrik tryggði sér svokallað „Wild Card“ og Twitter logar
Rúrik Gíslason fótbolta- og athafnamaður sem keppir nú í þýska dansþættinum Let‘s Dance, tryggði sér svokallað „Wild card“ í þættinum í gær. Það þýðir að ekki er hægt að kjósa hann úr næsta þætti sem fram fer þann 5. mars. Rúrik er því öruggur í næstu umferð.

Tónleikaferð til Marseille endaði með heimilisofbeldi
Tuttugu og átta ára karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að ráðast á sambýliskonu sína á hótelherbergi í Marseille í Frakklandi þann 17. júní árið 2018. Karlmaðurinn afplánar sem stendur sex ára dóm sem hann hlaut sumarið 2019 fyrir tilraun til manndráps.

Ari segir fjölskylduna hafa sloppið vel eftir að hafa öll smitast
Ari Freyr Skúlason, landsliðsmaður í fótbolta, segist klár í slaginn í næsta leik með liði sínu Oostende eftir að hann og öll fjölskylda hans smitaðist af kórónuveirunni.

Áfrýjunarmeðferð í máli Gunnars Jóhanns hófst í morgun
Málflutningur í máli Gunnars Jóhanns Gunnarssonar, sem dæmdur var í þrettán ára fangelsi fyrir að hafa banað bróður sínum í bænum Mehamn í Norður-Noregi í apríl 2019, hófst í lögmannsrétti Hálogalands í Tromsø í morgun. Verjendur Gunnars Jóhanns áfrýjuðu dómnum yfir skjólstæðingi sínum sem féll í október síðastliðnum.

Guðmundur Felix fer yfir stöðuna: „Ég verð betri með degi hverjum“
Guðmundur Felix Grétarsson, sem gekkst undir handaágræðslu í Frakklandi í síðasta mánuði, hefur birt nýtt myndband þar sem hann fer yfir stöðu mála eftir aðgerðina. Hann segist verða betri með degi hverjum og stefnt er að því að hann hefji endurhæfingu um mánaðamót.

Tók hálftíma að loka á alla fjölmiðla í lýðræðisríki
Samfélagsmiðillinn Facebook lokaði í dag á deilingar á fréttaefni í Ástralíu eftir að stjórnvöld í landinu lögðu fram frumvarp sem myndi skylda Facebook og aðra tæknirisa til að greiða fyrir slíkar deilingar.

Heimir með kórónuveiruna
Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, hefur greinst með kórónuveiruna.