Íþróttir
71 72 73 74 75 76 77 78 79 … 334 ›
Líkir Platini við leyniskyttu Það stefnir í harða kosningabaráttu milli Lennarts Johansson og Michels Platini sem báðir sækjast eftir forsetastóli UEFA. Sitjandi forseti sambandins, Lennart Johansson, hefur líkt vinnuaðferðum Michels Platini við þeirra sem vinna sem leyniskyttur. Fótbolti 15.1.2007 19:32
Genk vildi fá Veigar Pál fram á sumar Belgíska úrvalsdeildarliðið Genk setti sig fyrir helgi í samband við norska úrvalsdeildarliðið Stabæk með það fyrir augum að fá Veigar Pál Gunnarsson lánaðan til félagsins. Stabæk var aðeins tilbúið að lána Veigar til Belgíu í þrjá mánuði en ekki til loka tímabilsins eins og óskað var eftir. Útlit er því fyrir að ekkert verði af því að Veigar Páll fari til Belgíu, í bili að minnsta kosti. Fótbolti 15.1.2007 19:32
Svíar flengdu Norðmenn Svíar unnu 13 marka sigur á Norðmönnum, 22-35, í Haukelandshallen í Bergen, í lokaleik norska liðsins fyrir HM í handbolta. Norska liðið hefur verið á mikilli siglingu í síðustu leikjum og vann meðal annars 12 marka sigur á Íslandi. Handbolti 15.1.2007 19:32
Andri Stefan ristarbrotinn Handboltakappinn Andri Stefan, leikmaður Hauka, gengur um á hækjum þessa dagana enda er hann ristarbrotinn. Það er bót í máli fyrir Hauka að Andri skuli meiðast meðan frí er í DHL-deildinni vegna heimsmeistarakeppninnar í handbolta. Handbolti 15.1.2007 19:32
20 milljónir til kvennaíþrótta Menningarsjóður Glitnis hefur lagt fram 20 milljónir króna til að stofna Afrekskvennasjóð Glitnis og ÍSÍ en Sjóðstjórnin tók við styrknum á Nýárshófi Glitnis. Sport 15.1.2007 19:32
Webber fer til Detroit Miðherjinn Chris Webber hefur staðfest að hann muni ganga til liðs við Detroit Pistons í NBA-deildinni en búist er við að gengið verði formlega frá félagsskiptum hans úr Philadelphia síðar í þessari viku. Mörg félög voru á höttunum á eftir Webber, sem er einn reyndasti miðherji deildarinnar. Körfubolti 15.1.2007 21:33
Arenas hetja Washington - enn einu sinni Gilbert Arenas skoraði 51 stig, þar af sigurkörfu með þriggja stiga skoti um leið og flautan gjall, þegar Washington lagði Utah af velli í NBA-deildinni nú í kvöld, 114-111. Körfubolti 15.1.2007 21:17
Alonso stefnir á sigur með McLaren Heimsmeistari síðustu tveggja ára í formúlu 1, Spánverjinn Fernando Alonso, er sigurviss fyrir komandi tímabil í kappakstrinum. Alonso skipti úr herbúðum Renault í McLaren eftir síðasta tímabil og telur hann að keppnisbíll McLaren eigi mikið inni þrátt fyrir að liðið hafi ekki unnið eina einustu keppni í fyrra. Formúla 1 15.1.2007 20:55
Young sagði nei takk við Eggert og félaga Ashley Young, framherji Watford, neitaði í dag að ganga til liðs við West Ham, en félag hans hafði áður samþykkt 9,65 milljón króna tilboði frá Eggerti Magnússyni og félögum. Ástæðan fyrir ákvörðun Young er óþekkt. Enski boltinn 15.1.2007 20:31
Norman dustar rykið af kylfunum “Hvíti hákarlinn” eða hinn gamalreyndi ástralski kylfingur Greg Norman hefur boðað þáttöku sína á Dubai-Classic mótinu í golfi sem fram fer í næsta mánuði. Tilkynning Norman kemur mikið á óvart, enda hefur hann að mestu einbeitt sér að eigin viðskiptum á síðustu misserum og lítið sem ekkert keppt á opinberum vettvangi. Golf 15.1.2007 15:31
Alfreð tilkynnir landsliðshópinn Enginn leikmaður datt úr landsliðshóp Alfreðs Gíslasonar sem fer til Þýskalands og tekur þátt í Heimsmeistaramótinu í handbolta. Alfreð kaus að fara með 17 leikmenn á mótið en aðeins 16 þeirra mega taka þátt í undanriðlinum. Handbolti 15.1.2007 19:25
Capello biðst afsökunar á ósiðlegu athæfi Fabio Capello, stjóri Real Madrid, hefur beðist afsökunar á að hafa sýnt tveimur áhorfendum fingurinn í viðureign Real Madrid og Zaragoza í gærkvöldi. Capello hefur verið undir miklu álagi að undanförnu og svo virðist sem að það sé farið að sjá á sálinni á ítalska stjóranum. Fótbolti 15.1.2007 15:29
Ekkert miðað við Valencia Rafael Benitez segir að pressan sem hann sé undir sem knattspyrnustjóri Liverpool sé ekkert miðað við þá sem hann þurfti að þola þegar hann var við stjórnvölinn hjá Valencia á Spáni. Benitez hefur verið sagður valtur í sessi hjá Liverpool eftir tvö slæm töp gegn Arsenal fyrr í mánuðinum. Enski boltinn 15.1.2007 15:24
Vopnahlé í herbúðum Chelsea Nokkur ensku dagblaðanna segja frá því í morgun að Jose Mourinho og æðstu stjórnarmenn Chelsea hafi komist að samkomulagi um vopnahlé – að minnsta kosti fram á sumar. Lausnin felst í því að gefa Mourinho einhvern pening til að kaupa varnarmann til liðsins í janúar. Enski boltinn 15.1.2007 15:23
Beckham tók rétta ákvörðun Nick Webster, helsti knattspyrnusérfræðingur FOX-íþróttastöðvarinnar í Bandaríkjunum, skrifar áhugaverðan pistil í dag um komu David Beckham til landsins. Þvert á skoðanir flestra aðra telur Webster að Beckham hafi tekið hárrétta ákvörðun. Og rökin sem hann gefur fyrir því eru býsna góð. Fótbolti 15.1.2007 14:51
Massa hlakkar til að keyra nýja bílinn Felipe Massa, annar ökumaður Ferrari-liðsins í formúlu 1 kappakstrinum á komandi tímabili, er mjög ánægður með hinn nýja bíl Ferrari sem frumsýndur var í gær. Formúla 1 15.1.2007 12:22
Ljubicic tapaði í fyrstu umferð Tennisspilarinn Ivan Ljubicic datt óvænt úr keppni í fyrstu umferð Opna ástralska meistaramótsins í tennis í morgun þegar hann beið í lægri hlut gegn Bandaríkjamanninum Mardy Fish í fjórum settum. Ljubicic var í fjórða sæti á styrkleikalista mótsins. Roger Federer hóf titilvörn sína með auðveldum sigri. Sport 15.1.2007 12:20
Viðræður milli Real og LA Galaxy í fullum gangi Viðræður hafa staðið yfir í morgun og alla helgina á milli Real Madrid og LA Galaxy um að David Beckham fái að yfirgefa herbúðir spænska liðsins strax í þessari viku og ganga til liðs við bandaríska liðið. Fótbolti 15.1.2007 12:15
Jordan: Schumacher verður goðsögn Eddie Jordan, stofnandi og æðsti yfirmaður Jordan-liðsins í formúlu 1, segir að orðspor Michael Schumcaher í íþróttinni muni aukast til muna á næstum misserum nú þegar hann er hættur að aka. Jordan, sem gaf Schumacher fyrst tækifæri í formúlu 1 árið 1991, telur að Schumacher verði orðinn goðsögn innan fárra ára. Formúla 1 14.1.2007 20:53
Dallas með sigurkörfu á síðustu sekúndu Josh Howard tryggði Dallas sigur á Toronto í NBA-deildinni í nótt með því að skora sigurkörfuna þegar innan við sekúnda var til leiksloka. Dallas náði að vinna upp 16 stiga forystu Toronto á tiltölulega skömmum tíma og tryggja sér þannig sinn 17. sigur í síðustu 18 leikjum. Körfubolti 15.1.2007 12:13
Sharapova stefnir á sigur Maria Sharapova segist verða var við aukna pressu í sinn garð eftir að hún var sett í efsta sæti í styrkleikaröðun kvenna fyrir Opna ástralska meistaramótið í tennis. Komist Sharapova í undanúrslit mótsins mun hún hreppa toppsætið á heimslistanum í tennis. Sport 14.1.2007 20:50
Fer Raul til Liverpool? Rafael Benitez reynir nú af öllum krafti að ná samkomulagi við Real Madrid um kaup á spænska gulldrengnum Raul til Liverpool. Spænskir fjölmiðlar greina frá þessu í morgun og segjast hafa fyrir því öruggar heimildir. Real Madrid hefur ekkert látið hafa eftir sér um málið. Enski boltinn 15.1.2007 11:24
Beckham horfði á leikinn með mömmu sinni Mark frá Ruud van Nistelrooy var nóg til að tryggja Real Madrid öll þrjú stigin sem í boði voru í viðureign liðsins gegn Real Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Real er nú komið með 35 stig líkt og Barcelona og er í 2.-3. sæti deildarinnar. David Beckham horfði á leikinn úr stúkunni með mömmu sína sér við hlið. Fótbolti 14.1.2007 21:55
Ronaldo fer frá Real Madrid Ramon Calderon, forseti Real Madrid, hefur viðurkennt að brasilíski framherjinn Ronaldo sé á förum frá félaginu og það líklega nú í janúar. Newcastle er sagt líklegast til að klófesta markaskorarann. Fótbolti 14.1.2007 17:09
Óvænt tap Sevilla á heimavelli Topplið Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni tapaði óvænt fyrir Mallorca á heimavelli sínum í dag og mistókst þannig að auka við forskotið sem liðið hefur á Barcelona. Valencia er komið upp í þriðja sæti eftir sigur á Levante. Fótbolti 14.1.2007 20:31
Beckham til LA í þessum mánuði? Ekki er loku fyrir það skotið að David Beckham fari fyrr til Bandaríkjanna en áætlað er en líklegt þykir að forráðamenn LA Galaxy, sem Beckham samdi við fyrir helgi, reyni að kaupa upp samning hans við Real en sem kunnugt er mun Beckham ekki spila aftur fyrir spænska stórveldið. Fótbolti 14.1.2007 17:01
Ralf er ekki að hætta Ökuþórinn Ralf Schumacher segir að ekkert sé til í þeim fregnum að hann hyggist hætta í formúlu eftir að núverandi samningur hans við Toyota rennur út eftir næsta tímabil. Schumacher hefur enn ekki skrifað undir nýjan samning við Toyota og við það fóru sögusagnirnar af stað. Formúla 1 14.1.2007 16:58
Tekur Lippi við af Mourinho? Forráðamenn Chelsea eru sagðir hafa viðrað þá hugmynd við ítalska þjálfarann Marcello Lippi, sá er stýrði ítalska landsliðið til sigurs á HM í Þýskalandi í sumar, um að að taka við af Jose Mourinho – fari svo að portúgalski stjórinn yfirgefi herbúðir Englandsmeistaranna eftir tímabilið. Enski boltinn 14.1.2007 16:45
De Villiers eykur forskot sitt Giniel de Villiers frá Suður-Afríku bar sigur úr býtum í 8. dagleið í Dakar-rallinu sem fram fór í dag og hann nú kominn með yfir hálftíma forskot á næsta mann í kappakstrinum, Stephane Peterhansel frá Frakklandi. Sport 14.1.2007 18:14
Newcastle vann Tottenham í frábærum leik Newcastle sýndi mikinn karakter í leik sínum gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag og sigraði 3-2 eftir að hafa hafa lent undir í síðari hálfleik. Leikurinn var frábær skemmtun og buðu bæði lið upp á bullandi sóknarleik. Marktilraunir í leiknum voru alls 38 talsins, þar af áttu heimamenn 26 þeirra. Enski boltinn 14.1.2007 17:57
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent