Handboltakappinn Andri Stefan, leikmaður Hauka, gengur um á hækjum þessa dagana enda er hann ristarbrotinn. Það er bót í máli fyrir Hauka að Andri skuli meiðast meðan frí er í DHL-deildinni vegna heimsmeistarakeppninnar í handbolta.
Óvissa er með þáttöku Andra í fyrstu leikjunum eftir HM-fríið en hann ætti að öllu jöfnu ekki að missa af mörgum leikjum.