
Ástin og lífið

Stjörnulífið: Glæsibrúðkaup fegurðardrottningar og „heitasti rassinn í sumarfrí“
Liðin vika einkenndist af sumarfríi landsmanna, ekki síst hjá stjörnum landsins. Sólríkar myndir af erlendum slóðum eru áberandi á samfélagsmiðlum þessa dagana. Tískudrottningin Elísabet Gunnarsdóttir fór í fjölskyldufrí til Spánar og leikkonan Kristín Pétursdóttur til Ítalíu.

Það var eins og okkur væri ætlað að vera saman
Þau Hilda Michelsen og Kristján Ólafsson kynntust fyrst í New York þrátt fyrir að hafa bæði verið búsett í Los Angeles um margra ára skeið. Nú tíu árum síðar eiga þau saman fjögur börn, nokkur óvenjuleg gæludýr og eru með ótal járn í eldinum.

Hætti sem málari og gerðist poppstjarna
„Ég hef alltaf haft trú á mér sem tónlistarmaður og lét til skara skriða þegar ég loksins öðlaðist kjark,“ segir tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel Kristmundsson. Hann ákvað að elta drauminn um poppstjörnuferilinn og sagði skilið við starfið sem málari.

Forsætisráðherra meðal stofnfélaga Ástarsögufélagsins
Stofnfundur Ástarsögufélagsins fór fram þann 25. júní í Reykjavík en markmið félagsins er að skrifa og gefa út fjölbreytta texta drifna áfram af krafti ástarinnar ásamt því að standa fyrir viðburðum og gjörningum.

Ein fegursta kona landsins á lausu
Manuela Ósk Harðardóttir fegurðardrottning og framkvæmdarstýra er gengin í hóp eftirsóttustu einhleypra kvenna landsins.

Einhleypan: Fólk sem er bara með selfís lítur út fyrir að eiga enga vini
Fjöllistadísin Margrét Erla Maack nýtur þess að vera einhleyp og hafa tíma fyrir sjálfa sig. Hún er einstæð móðir og segir viku- og viku fyrirkomulagið lífsstíll sem henti henni afar vel.

Ekin-Su og Davide hætt saman
Stjörnuparið Ekin-Su Cülcüloğlu og Davide Sanclimenti, sem unnu Love Island í fyrra, eru hætt saman eftir ellefu mánaða samband.

Biggi lögga fór á skeljarnar
Lögreglumaðurinn Birgir Örn Guðjónsson, þekktur sem Biggi lögga, og Sísi Ingólfsdóttir, listakona eru trúlfofuð. Parið deildi gleðitíðindum í gær með því að skrásetja tímamótin á samfélagsmiðilinn Facebook.

Hilmir Snær og Vala Kristín stinga saman nefjum
Einn eftirsóttasti piparsveinn landsins, Hilmir Snær Guðnason, leikari og leikkonan Vala Kristin Eiríksdóttir eru að hittast.

Langþráður draumur Röggu Hólm rættist
Langþráður draumur rapparans og plötusnúðarins Röggu Hólm rættist þegar hún sá átrúnaðargoðið og poppstjörnuna Beyoncé berum augum á tónleikum í borginni Varsjá í Póllandi í vikunni.

Knattspyrnupar trúlofað
Glódís Perla Viggósdóttir greindi frá því fyrir skömmu að hún hefði trúlofast Kristófer Eggertssyni, kærasta sínum til margra ára. Það skammt milli fagnaðarefna hjá parinu en Glódís Perla varð 27 ára gömul í gær.

Giftist fyrrverandi bestu vinkonu dóttur sinnar
Richard Keys, fyrrverandi fjölmiðlamaður á Sky Sports, og Lucie Rose gengu í það heilaga um helgina. Fyrrverandi eiginkona Richard skildi við hann árið 2016 eftir að upp komst um framhjáhald hans með bestu vinkonu dóttur hans, Lucie Rose.

Gat ekki hætt að gráta eftir skilnaðinn
Bandaríska söngkonan og þáttastjórnandinn Kelly Clarkson segir skilnaðinn við fyrrverandi eiginmann sinn, Brandon Blackstock, hafa tekið á. Hún segist hafa þurft á þunglyndislyfjum að halda til að koma sér aftur á strik.

Scherzinger trúlofast ruðningskappanum
Bandaríska söngkonan og raunveruleikaþáttadómarinn Nicole Scherzinger hefur trúlofast kærasta sínum, ruðningskappanum fyrrverandi, Thom Evans.

Nafnið hans var skrifað í skýin
Leikaraparið Ellen Margrét Bæhrenz og Arnmundur Ernst Backman eignuðust sitt annað barn fyrr á þessu ári en fyrir eiga þau soninn Krumma. Barnið, sem er drengur fékk nafnið sitt við fallega athöfn nú um helgina.

Vellystingar í ferðalögum frægra Íslendinga
Ríkmannleg frí þar sem allt er til alls á vel við þegar skærustu stjörnur Íslands fara erlendis. Hvítar strendur, einkasigling og merkjavörur eru oftar en ekki í hávegum.

Snjólaug Lúðvíksdóttir á von á barni
Uppistandarinn og handritshöfundurinn Snjólaug Lúðvíksdóttir á von á barni en vinkonur hennar komu henni rækilega á óvart um helgina með glæsilegri barnasturtu.

Stjörnulífið: Svala fagnar ástinni og Edda Falak kvíðalaus á Ítalíu
Liðin vika hjá stjörnum landsins einkenndist af ferðalögum erlendis, rómantík og íslenskri náttúru.

Birnir og Vaka fjölga mannkyninu
Tónlistarmaðurinn Birnir Sigurðarson og kærasta hans Vaka Njálsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni í október. Vaka deilir gleðitíðindunum á Instagram.

Einhleypan: „Hvatvís, ástríkur og skemmtilegur“
Lífskúnstnerinn Bragi Árnason er 36 ára leikari búsettur í miðbænum. Hann segist vera gömul sál með barnshjarta og þykir fátt eins skemmtilegt en að ögra sjálfum sér.

„Örvæntingin um samþykki annarra var stöðugur eltingarleikur“
Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson reis úr þrettán ára dvala þegar hann gaf út lagið Ástin heldur vöku árið 2021. Hann segir mikla sjálfsvinnu hafi hjálpað honum að snúa blaðinu við í átt að betra lífi og hefur hann aldrei verið hamingjusamari.

Páll Óskar genginn út: „Ég er hamingjusamasti hommi í heimi“
Páll Óskar, ástsælasti söngvari þjóðarinnar er genginn út, 53 ára að aldri. Hann segir tilfinninguna vægast sagt áhugaverða. Í kjölfarið gaf hann út lagið Galið gott, ásamt Doctor Victor. Hann segir textann hafa komið til sín eftir að ástin barði að dyrum.

Slokknað í ástarlogum rappara og popp-pönkara
Samband tónlistarkonunnar Avril Lavigne og rapparans Tyga hefur runnið sitt skeið tæpum fjórum mánuðum eftir það hófst.

Hamagangur á Nesinu og flutningar
Athafnakonan og áhrifavaldurinn, Camilla Rut Rúnarsdóttir, hefur í mörgu að snúast um þessar mundir í húsnæðismálum. Íbúðin sem hún hefur verið með á leigu síðastliðna mánuði er komin á sölu auk þess hún er í framkvæmdum á framtíðarheimili fjölskyldunnar á Seltjarnarnesi.

Íslensk sundstjarna slær í gegn á gramminu
Myndband sem sýnir hina ungu og efnilegu sundkonu, Önnu Elínu, spreyta sig í ungbarnasundi hefur vakið stormandi lukku innan samfélagsmiðla. Móðir hennar, Emilía Madeleine Heenen, segist undrandi á viðtökunum en myndbandið hefur nú fengið yfir 40 milljón áhorfa.

Stjörnulífið: Hátíðarhöld, ástarjátning og íslenskt strákaband
Liðin vika var með eindæmum hátíðleg. Grímuverðlaunin voru veitt 21. sinn í Borgarleikhúsinu og Þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga, 17. júní, var haldinn hátíðlegur víða um land með tilheyrandi skemmtun og gleði.

„Hann er til í allar heimsins hugmyndir með mér“
Brashjónin Katla Hreiðarsdóttir og Haukur Unnar Þorkelsson hittust fyrst í október 2019. Þau urðu fljótlega ófrísk en fyrir átti Haukur tvö börn. Á stuttum tíma hafa þau tekist á við allskonar áskoranir, mestmegnis gleðilegar. Þau segja lykilinn að góðu sambandi vera að hafa nóg að gera.

Tinna Alavis tilkynnir fjölgun í fjölskyldunni
Áhrifavaldurinn og fegurðardísin Tinna Alavis á von á sínu öðru barni en fyrir á hún dótturina Ísabellu Birtu með Húsafellserfingjanum Unnari Bergþórssyni.

Þóra Karítas og Sigurður gengin í það heilaga
Listaparið Þóra Karítas Árnadóttir, leikkona og rithöfundur, og Sigurður Guðjónsson, myndlistarmaður, giftu sig í dómkirkjunni í Reykjavík í gær.

Einhleypan: Æfir sig í að láta ekkert stoppa sig
„Mín mikilvægustu og dýrmætustu hlutverk í lífinu eru að vera mamma, dóttir, systir, frænka, vinkona og tónlistarkona,“ segir tónlistarkonan og kennarinn Elísabet Eyþórsdóttir, betur þekkt sem Beta Ey.