
Verkföll 2019

„Okkar fólk hefur augljóslega fengið nóg“
Atkvæðagreiðslu BSRB um verkfallsaðgerðir lýkur í dag.

Verktakar máttu ganga í störf blaðamanna Mbl.is
Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, var sýknað í meginatriðum af ásökunum um verkfallsbrot í verkfalli vefblaðamanna fyrir áramót. Kveðinn var upp úrskurður þess efnis núna klukkan 16:30 í húsakynnum Landsréttar. Fréttaskrif Baldurs Arnarsonar, blaðamanns Morgunblaðsins, á Mbl.is voru úrskurðaðar ólöglegar.

Vill ekki fullyrða að fyrir fram vinnsla Morgunblaðsins sé verkfallsbrot
Fréttablaðið kom út í sérstæðu sniði í dag, eins og það er orðað á forsíðu þess, en fréttasíður blaðsins eru tómar vegna verkfalls blaðamanna á prentmiðlum í gær.

Auðar síður Fréttablaðsins daginn eftir verkfall
Fréttablaðið er gefið út með sérstæðu sniði í dag, eins og það er orðað á forsíðu þess, en síður blaðsins eru tómar vegna verkfalls blaðamanna á prentmiðlum í gær.

Tólf tíma verkfall á prentmiðlum hafið
Núna klukkan 10 hófst tólf tíma verkfall blaðamanna á prentmiðlum, það er Fréttablaðinu og Morgunblaðinu.

Fundi SA og blaðamanna slitið
Fundi samninganefnda Samtaka atvinnulífsins og Blaðamannafélags Íslands var slitið á fimmta tímanum, án niðurstöðu.

„Ég hef ekkert við Stefán Einar að segja. Ekkert“
Formaður Blaðamannafélags Íslands segir uppsagnirnar á Morgunblaðinu í morgun hörmulegar og málið þyngri en tárum taki.

Stefán Einar kennir formanni Blaðamannafélagsins um uppsagnirnar
Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu og fyrrverandi formaður VR, tengir uppsagnir hjá Morgunblaðinu í dag við verkfallsaðgerðir fréttamanna í Blaðamannafélagi Íslands.

Ræddu stöðuna hjá sáttasemjara
Samninganefndir Blaðamannafélagsins og Samtaka atvinnulífsins funduðu í eina og hálfa klukkustund í gær, degi eftir að blaðamenn kolfelldu nýundirritaðan kjarasamning.

Hefði verið ákjósanlegt ef kjarasamningur hefði verið undirritaður við aðrar aðstæður
"Það er auðvitað ánægjulegt að við höfum undirritað kjarasamning við Blaðamannafélag Íslands en það hefði verið ákjósanlegt ef það hafi gerst við aðrar aðstæður,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdarstjóri Samtaka atvinnulífsins.

Blaðamenn eigi digra verkfallssjóði
Nú síðdegis var skrifað undir kjarasamning milli Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem alls er óvist að verði samþykktur í atkvæðagreiðslu blaðamanna eftir helgi. Mikil ólga var í blaðamönnum á fundi í félaginu í dag.

Blaðamannafélagið undirritar kjarasamning
Blaðamannafélag Íslands skrifaði nú síðdegis undir kjarasamning við Samtök atvinnulífsins, samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissáttasemjara.

Hitafundur í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands
Töluverður hiti er meðal félagsmanna í Blaðamannafélagi Íslands sem komu saman í húsakynnum félagsins við Síðumúla klukkan tólf í dag. Tilefnið var að ráða ráðum sínum í ljósi stöðunnar sem upp er komin.

Verkfallsaðgerð vefblaðamanna í dag frestað
Ákveðið hefur verið að fresta fyrirhugaðri verkfallsaðgerð vefblaðamanna sem fyrirhuguð var í dag. Klukkan tíu stóð til að fréttamenn, ljósmyndarar og myndatökumenn á vefmiðlum legðu niður störf í tólf tíma.

Vefblaðamenn leggja niður störf frá 10 til 22
Klukkan tíu leggja fréttamenn, ljósmyndarar og myndatökumenn á vefmiðlum niður störf í tólf tíma. Um er að ræða þriðju aðgerðina í boðuðum verkfallsaðgerðum félaga í Blaðamannafélagi Íslands á fjórum fjölmiðlum. Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, RÚV og Vísi.

Blaðamenn fara í verkfall á morgun
Fundi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins lauk í húsakynnum ríkissáttasemjara nú fyrir stundu án þess að samningar næðust. Verkfall skellur á á morgun.

„Talsvert mikið eftir, því miður“
Lengsta fundi í kjaradeilu Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins lauk í húsakynnum ríkissáttasemjara skömmu fyrir klukkan níu í kvöld.

Funda aftur á morgun
Samningafundi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins lauk rétt fyrir klukkan sex í dag. Boðað hefur verið til annars fundars klukkan hálf tvö á morgun.

Ranglega sakaðar um verkfallsbrot
Þær Guðrún Selma Sigurjónsdóttir, Sonja Sif Þórólfsdóttir og Lilja Ósk Sigurðardóttir, blaðamenn á vef Morgunblaðsins, voru í gær ranglega sakaðar um brot gegn löglega boðuðum verkfallsaðgerðum Blaðamannafélags Íslands. Þær hafa nú fengið afsökunarbeiðni.

Blaðamenn og fréttastjórar mbl.is ítreka vonbrigði sín
Á meðan vinnustöðvuninni stóð birtust fréttir á mbl.is sem skrifaðar voru af öðrum blaðamönnum Árvakurs og lausapennum.

Vefblaðamenn leggja niður störf frá 10 til 18
Klukkan tíu leggja fréttamenn, ljósmyndarar og myndatökumenn á vefmiðlum niður störf í átta tíma. Um er að ræða aðra aðgerðina í boðuðum verkfallsaðgerðum félaga í Blaðamannafélagi Íslands á fjórum fjölmiðlum. Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, RÚV og Vísi.

Styðja verkföll kollega sinna
Það er kominn tími til að störf blaðamanna verði metin að verðleikum, að mati stéttarfélags fréttamanna sem starfa á fréttastofu Ríkisútvarpsins.

Deila áfram um lífskjarasamninginn
Kjarasamningar hafa ekki náðst á milli Samtaka atvinnulífsins og Blaðamannafélags Íslands. Boðað hefur verið til verkfalls blaðamanna í Blaðamannafélaginu á morgun.

„Það er afskaplega langt í land“
Fundur milli samningsaðila var haldinn hjá Ríkissáttasemjara í dag klukkan 13:30 og lauk honum skömmu fyrir sjö, án samnings.

Blaðamenn leggja aftur niður störf
Samninganefndir Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins náðu ekki samningum á fundi nefndanna hjá Ríkissáttasemjara í dag.

Meint verkfallsbrot Árvakurs tekin fyrir í Félagsdómi á þriðjudag
Blaðamannafélag Íslands hefur stefnt Samtökum atvinnulífsins vegna meintra verkfallsbrota Árvakurs í vinnustöðvun vefblaðamanna sem fór fram síðastliðinn föstudag frá klukkan 10 til 14.

Þrjátíu tilfelli um meint verkfallsbrot hjá Morgunblaðinu og eitt hjá RÚV
Blaðamannafélag Íslands hefur kært RÚV og Morgunblaðið fyrir meint verkfallsbrot en formaður félagsins óttast að Félagsdómur verði ekki búinn að komast að niðurstöðu fyrir næstu verkföll sem eru á föstudag.

Vinnustöðvun blaðamanna breytir ekki afstöðu SA
Framkvæmdastjóri SA segir ekki hægt að tefla lífskjarasamningum í hættu með því að semja á forsendum Blaðamannafélags Íslands.

Mikill meirihluti blaðamanna samþykkti verkfallsaðgerðir
Félagar í Blaðamannafélagi Íslands sem vinna hjá miðlum Árvakurs, Ríkisútvarpsins, Sýnar og Torgs samþykktu boðun verkfallsaðgerða í dag með 83,2 prósenta atkvæða

Blaðamenn greiddu atkvæði með vinnustöðvunum
Fyrsta vinnustöðvun blaðamanna verður föstudaginn 8. nóvember og nær til vefmiðla.