Kynferðisofbeldi

Bubbi hitti gerandann sinn: „Ég fór út í bíl og grét“
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens öðlaðist nýtt líf í fyrra eftir að hann hitti geranda sinn og ákvað að fyrirgefa honum. Til þessa hefur líf hans litast mjög af áfallinu.

Viðhalda og undirbúa kynferðisofbeldi með ýmsum leiðum
Íslenskir ofbeldismenn gera oft eitthvað til að undirbúa eða viðhalda kynferðisofbeldi sem þeir beita, en meirihluti þeirra eru tengdir brotaþolum sínum fjöslkylduböndum, eða vinir og kunningjar þeirra.

Vilja aðstoða ofbeldismenn að axla ábyrgð
Ráðgjafi á Stígamótum segir mikilvægt að karlmenn fái tæki og tól til að taka þátt í umræðu um kynbundið ofbeldi. Karlmenn séu meirihluti ofbeldismanna og umræðan komi öllum körlum við. Ofbeldismenn verða ræddir á ráðstefnu Stígamóta á morgun.

Kærendur hafi átt frumkvæði að því að ljúka málinu með greiðslu
Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun héraðssaksóknara um að fella niður rannsókn á meintri fjárkúgun þeirra Vítalíu Lazarevu og Arnars Grant gegn þremur mönnum sem Vítalía hafði kært fyrir meint kynferðisbrot. Ákvörðunin var tekin á þeim grundvelli að mennirnir hafi átt frumkvæði að því að ljúka málinu með peningagreiðslu.

Að vera nauðgað af kunningja reyndist ekki eina áfallið
Karen Eir Valsdóttir varð fyrir hrottalegri nauðgun í september árið 2018. Gerandinn var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir verknaðinn. Hann afplánaði tuttugu daga á Hólmsheiði áður en hann var fór í opið úrræði á Kvíabryggju. Fyrir dyrum stendur færsla í rafrænt eftirlit. Karen segir erfitt að lýsa reiði sinni að sá sem braut á henni hafi þurft að dvelja tuttugu daga í lokuðu fangelsi.

Fimm ár, svefnlausar nætur en vonandi endapunktur
Ragnhildur Eik Árnadóttir, lögmaður og brotaþoli í máli Jóhannesar Tryggvasonar, segir að sér sé létt eftir tíðindi úr Landsrétti í dag. Dómur yfir Jóhannesi var þyngdur og hann dæmdur í átján mánaða fangelsi í stað tólf og til þess að greiða tvær milljónir króna í miskabætur.

Dómur Jóhannesar Tryggva fyrir nauðgun þyngdur
Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni vegna nauðgunarbrots gegn konu á nuddstofu hans árið 2012. Jóhannes var dæmdur í átján mánaða fangelsi og til þess að greiða tvær milljónir króna.

Sérðu eftir því að hafa kært?
Samkvæmt nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra eru 42% brotaþola í tilkynntum kynferðisbrotum undir 18 ára aldri. Ég er hluti af þessari tölfræði.

Julia Ormond höfðar mál á hendur Weinstein, Disney og Miramax
Leikkonan Julia Ormond hefur höfðað mál á hendur kvikmyndaframleiðandanum Harvey Weinstein vegna árásar í kjölfar kvöldverðar árið 1995. Hún krefst einnig bóta frá Disney, Miramax og fyrrverandi umboðsskrifstofu sinni.

Gekkst við „bossapartýi“ á leikskóla
Ungur karlmaður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir blygðunarsemis- og barnaverndarlagabrot og kynferðislega áreitni gegn barni Ákvörðun um refsingu mannsins hefur verið frestað, og mun falla niður að fimm árum liðnum, en honum var gert að greiða þremur börnum miskabætur.

Hermaður svipti sig lífi eftir stanslaust áreiti af hálfu yfirmanns
Jaysley Beck, 19 ára breskur hermaður, er talin hafa svipt sig lífi eftir stöðug kynferðislegt áreiti yfirmanns innan hersins. Hún fannst látin á Larkhill-herstöðinni í Wiltshire í desember árið 2021.

Tískumógúll sakaður um skipulagt kynferðisofbeldi
Mike Jeffries, fyrrverandi forstjóri tískurisans Abercrombie & Fitch, hefur verið sakaður um að hafa haldið regluleg kynsvöll þar sem ungir menn voru misnotaðir kynferðislega.

Depardieu segir mannorði sínu hafa verið rústað
Gérard Depardieu hefur í fyrsta sinn tjáð sig opinberlega um ásakanir á hendur sér um meint kynferðisofbeldi og áreitni. Hann fullyrðir að fjölmiðlar hafi rústað mannorði hans.

„Að tengja þennan dag við fleiri jákvæða hluti er partur af batanum“
Guðný S. Bjarnadóttir beið í 721 dag frá því að hún kærði mann fyrir nauðgun þar til héraðssaksóknari tilkynnti henni að ekki yrði gefin út ákæra í máli hennar. Í dag verður hún 42 ára gömul, í dag eru tvö ár liðin síðan henni var nauðgað og í dag verður stofnfundur nýrra samtaka hennar - Hagsmunasamtaka brotaþola.

Lokkaði stúlkur á sloppnum með saltpillum og týndum kettlingum
„Þessi maður bauð mér einu sinni far þegar ég var mjög ung og það er far sem ég mun alltaf sjá eftir að hafa þegið. Ég fagna dauða hans,“ segir Sigrún Þorvaldsdóttir. Sigrún er ein þeirra kvenna sem urðu fyrir barðinu á skrímslinu svonefnda í bláa húsinu í Vestmannaeyjum. Bæjarstjórinn í Eyjum vonar að samfélagið myndi bregðast öðruvísi við kæmi slíkt mál upp í dag.

Segja stóran hluta kláms sýna refsivert ofbeldi gegn konum
Jafnréttisráð Frakklands segir allt að 90 prósent alls kláms á netinu sýna andlegt, líkamlegt og/eða kynferðislegt ofbeldi gegn konum. Þá er það í mörgum tilvikum svo alvarlegt að hægt væri að sækja menn til saka fyrir það samkvæmt frönskum lögum.

Ungmenni leita sér aðstoðar vegna neyslu barnaníðsefnis
Sérfræðingar og lögregla á Bretlandseyjum segja aukið aðgengi ungmenna að klámi vera að ýta undir skaðlega kynferðislega hegðun, meðal annars neyslu barnaníðsefnis.

Meint kynferðisbrot Brand til rannsóknar hjá lögreglu
Breska rannsóknarlögreglan Scotland Yard hefur nú til rannsóknar nokkrar ásakanir um kynferðisofbeldi á hendur grínistanum Russel Brand. Til rannsóknar eru bæði ásakanir um ofbeldi sem á að hafa átt sér stað á breskri grundu og annars staðar.

Íslendingur handtekinn í Brasilíu fyrir að áreita ungling kynferðislega
Íslenskur karlmaður var á föstudag handtekinn á flugvelli í Sao Paulo í Brasilíu fyrir að áreita unga stelpu kynferðislega.

Kynferðisofbeldi gegn börnum heldur áfram að aukast
Stigvaxandi aukning hefur orðið er á tilkynningum um kynferðisofbeldi gegn börnum til Barnaverndar Reykjavíkur á síðustu þremur árum. Tilkynningum þess efnis fjölgaði um fimmtán prósent í fyrra frá árinu á undan, 2021. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu Barnaverndar Reykjavíkur.

Skrímslið í bláa húsinu sem allir vissu af en enginn talaði um
Við Túngötu 21 í Vestmanneyjum stendur lítið einbýlishús. Evu Ólafsdóttur stendur stuggur af húsinu og hún er ekki ein um það. Húsið vekur upp vondar minningar.

Tjáir sig í fyrsta sinn eftir ásakanirnar
Leikarinn Russell Brand segir síðastliðna viku hafa verið „stórfurðulega og erfiða.“ Fjórar konur stigu nýlega fram og sögðu hann hafa brotið á sér kynferðislega. Ein þeirra hefur kært hann fyrir kynferðisbrot.

Meintur barnaníðingur gómaður eftir sviðsetningu á eigin dauðdaga
Bandarískur maður sem er grunaður um að sviðsetja eigin dauðdaga til að forðast saksókn í barnaníðsmálum var handtekinn á síðastliðinn sunnudag eftir að hafa reynt að flýja frá lögreglu í Georgíuríki Bandaríkjanna.

Eigum ekkert frábært handrit til að láta ofbeldismenn axla ábyrgð
Talskona Stígamóta, Drífa Snædal, segir samfélagið ekki eiga nægilega gott handrit til að takast á við ofbeldismenn. Þessu vilja samtökin breyta og munu hefja það samtal á sérstakri ráðstefnu um ofbeldismenn sem fer fram í næsta mánuði.

Kæmi ekki á óvart hefðu Íslendingar falsað nektarmyndir með gervigreind
Lögfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra segir að það myndi ekki koma sér á óvart að til séu tilfelli á Íslandi þar sem gervigreind hafi verið notuð til að falsa nektarmyndir.

Taldi særðri dóttur sinni trú um að þau ættu í ástarsambandi
Rúmlega fertugur karlmaður og barnaníðingur á suðvesturhorni landsins hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga fimmtán ára dóttur sinni ítrekað. Hann endurnýjaði kynni við dóttur sína vitandi að hann glímdi við barnagirnd. Hann þarf að greiða dóttur sinni sex milljónir króna í miskabætur.

Ballard fór frá eigin samtökum eftir rannsókn á áreitni
Tim Ballard, sem kvikmyndin Sound of Freedom hefur gert frægan, yfirgaf samtök sem hann stofnaði til að berjast gegn kynlífsþrælkun barna í kjölfar rannsóknar varðandi meinta kynferðislega áreitni hans gegn sjö konum. Hann er sagður hafa áreitt starfsmenn samtaka sem hann stofnaði í verkefnum sem ætlað var að bjarga börnum úr ánauð.

Mál Alberts komið til ákærusviðs
Rannsókn á máli knattspyrnumannsins Alberts Guðmundssonar er lokið og það er komið á borð ákærusviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Braut á bestu vinkonu sinni meðan hún svaf
Ungur karlmaður hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa brotið á bestu vinkonu sinni í lok desember árið 2021. Karlmaðurinn „puttaði“ konuna og sleikti á henni kynfærin á meðan hún lá sofandi í sófanum og varð einskis vör vegna ölvunar og svefndrunga.

YouTube lokar á auglýsingar hjá Russell Brand
YouTube hefur brugðist við þeim ásökunum um kynferðisofbeldi sem nú beinast að breska grínistanum, leikaranum og heilsugúrúnum Russell Brand með því að loka á auglýsingar á reikningum hans á YouTube.