Sjálfstæðisflokkurinn

Bjarni fær nafna á Bessastöðum í Hrútafirði
Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, eignaðist nafna í gær. Nafninn fæddist á bænum Bessastöðum í Hrútafirði og er kálfur.

Hefja viðræður um uppgjör á skuldabréfum ÍL-sjóðs
Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ÍL-sjóðs og íslenska ríkisins, og fulltrúar átján lífeyrissjóða hafa ákveðið að hefja viðræður um uppgjör á skuldabréfum sjóðsins.

„Nammið í rútunni vont“
Lítið fer fyrir þingmönnum í ræðupúlti Alþingishússins því nú fer í hönd kjördæmavika. Brynjar Níelsson, fyrrverandi alþingismaður, fær ekki að fara með Sjálfstæðisflokknum hringferð um landið.

Tvö eyru og einn munn
„Mundu að þú ert með tvö eyru og einn munn” sagði amma mín reglulega við okkur systkinin enda er það ágætis regla að við hlustum meira en við tölum.

Skýr flokkslína í útlendingamálum
„Frumvarpið er afleitt. Það er því ekki hægt að kenna einum stjórnmálamanni um harðneskjulega stefnu í útlendingamálum. Flokkslínan virðist skýr.” Þetta voru viðbrögð formanns Samfylkingarinnar árið 2019 þegar breytingar á útlendingalögum voru lagðar fram, í fyrsta skipti af fimm.

Tók við Kjörís 23 ára eftir að faðir hennar varð bráðkvaddur
Í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi hitti Sindri Sindrason Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra og fékk að kynnast henni betur.

Sigurður Ágúst kjörinn formaður Félags eldri borgara
Sigurður Ágúst Sigurðsson var í dag kosinn formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni á aðalfundi félagsins með rúmlega 60 prósent atkvæða. Meint hallarbylting sem fjallað var um í dag raungerðist.

Óttast hallarbyltingu í Félagi eldri borgara
Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík fer fram nú klukkan 14. Ábendingar hafa borist um að deild úr Sjálfstæðisflokknum hyggist yfirtaka félagið.

Vilja rannsaka ummerki Tyrkjaránsins í erfðamengi Íslendinga
Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja til að Íslenskri erfðagreiningu verði falið að gera rannsókn á ummerkjum Tyrkjaránsins í erfðamengi Íslendinga á Íslandi og finni blandaða afkomendur Íslendinganna í Alsír.

Vill flýta endurskoðun laga um leigubílaakstur
Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vill flýta endurskoðun laga um leigubifreiðaakstur. Í lögunum er heimild til endurskoðunar á næsta ári en hann telur best að henni sé flýtt. Vilji leigubílstjóra sem hann hafi talað við sé að þessu sé flýtt en að auk þess sé það áríðandi í ljósi nýlegra frétta af kynferðisbroti leigubílstjóra.

Upp með sér að vera andlag „smjörklípu“ Össurar
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki laust við að hún sé upp með sér að fá að vera andlag „smjörklípu“ Össurar Skarphéðinssonar. Hann velti því upp í dag að hún gæti hugsanlega orðið arftaki Bjarna Benediktssonar í stóli formanns Sjálfstæðisflokksins.

Rýnir í leið Bjarna til að halda Guðlaugi frá formennsku
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir forystukreppu blasa við Sjálfstæðisflokknum þegar Bjarni Benediktsson formaður flokksins kveður stjórnmálin eins og flokksmenn virðist telja að verði á næstunni. Þrír kandídatar séu fyrir löngu komnir í formannsstellingar og safni liði.

Loksins loksins!
Eftir hraðlestur á tillögum ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum er ég bara nokkuð sáttur við útkomuna. Auðvitað er eitthvað þarna sem að ég hefði viljað hafa öðruvísi.

„Ég skil að fólki sé misboðið“
Sú var tíðin að dæmdir kynferðisbrotamenn áttu auðsótta leið að uppreist æru hjá forseta Íslands. Á uppreisnarárinu 2017 ofbauð landsmönnum þessi möguleiki og áður en árið var úti hafði lögunum verið breytt. Ríkisstjórnin var sömuleiðis sprungin eftir að í ljós kom að faðir forsætisráðherra hafði mælt með uppreist æru fyrir mann sem braut kynferðislega á stjúpdóttur sinni yfir tólf ára tímabil.

Sjálfstæðismenn skriðið í eina sæng með röngum bandamanni
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, beindi fyrirspurn til Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra á Alþingi nú áðan. Og vandaði Sjálfstæðisflokknum ekki kveðjurnar í leiðinni.

„Þeirra er skömmin“ - „Það verður eftir því tekið hvernig atkvæði falla hér í dag“
Ég hef þurft að spyrja mig undanfarna daga hvort ég sé stödd í hliðarraunveruleika þegar ég sé nokkra fulltrúa stjórnarandstöðunnar vilja í fyrsta skipti ræða af alvöru stöðu flóttamannamála á Íslandi. Við í þingflokki Sjálfstæðisflokksins segjum bara velkomin loksins í mikilvæga umræðu.

„Við getum því ekki einu sinni passað upp á þetta eina hlið“
Færsla Páls Magnússonar, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja, þar sem hann fjallar um aðkomu umsækjenda að alþjóðlegri vernd að hnífstunguáras, hefur vakið athygli. Hann segir málið skýrt dæmi um það óefni sem málaflokkur hælisleitenda og landamæravarsla sé kominn í.

Rannsóknir lögreglu megi ekki dragast á langinn
Þingmenn fimm þingflokka hafa lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um meðferð sakamála. Þar er lagt til að rannsókn lögreglu á sakamálum megi ekki standa yfir í meira en ár.

Fólk hefur gengið örna sinna í garði Bjarna
Jón Gunnarsson fyrrverandi dómsmálaráðherra og Brynjar Níelsson aðstoðarmaður hans voru gestir í hlaðvarpinu Chess after dark og þar upplýsti Jón um að Bjarni Benediktsson mætti sæta ótrúlegasta aðkasti í starfi.

Vilja leggja niður RÚV ohf.
Níu af sextán þingmönnum Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram frumvarp um breytingar á lögum sem snerta fjölmiðla, þar á meðal. Ríkisútvarpið. Leggja þeir til að RÚV ohf. verði lagt niður og til verði ríkisstofnun á fjárlögum með sjálfstæða stjórn. Það sé ekkert samræmi fólgið í því að RÚV auki tekjur sínar í hlutfalli við aukna fólksfjölgun vegna útvarpsgjaldsins. Beinir styrkir til einkarekinna fjölmiðla verði einnig felldir niður.

Veist að þingmanni: „Hann langaði bara að hræða mig“
Formaður utanríkismálanefndar varð fyrir aðkasti mótmælanda fyrir utan Alþingi í dag. Maður sem kom askvaðandi að henni þegar hún kom út úr þinghúsinu kastaði hlut í bíl hennar og hellti úr skálum reiði sinnar.

Þingmaður VG biðlar til Bjarna sem ráði alfarið ferðinni
Brynhildur Björnsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, skorar á Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra að sjá til þess að „fólkið okkar“ verði sótt á Gaza. Hún segir Katrínu Jakobsdóttur ólma vilja gera það en hún hafi ekki vald til þess að segja utanríkisráðherra fyrir verkum.

Bjarni skipað 23 vinkonur í sendiherrastöður miðað við höfðatölu
Heitar umræður sköpuðust um útlendingamál og stöðu fólks á Gasa, sem komið er með dvalarleyfi á Íslandi, í Pallborðinu á Vísi í gær. Samstaða náðist um fátt, fyrir utan að stytta þarf málsmeðferðartíma hjá hælisleitendum.

Fjölskyldusameiningar strandi á Bjarna: „Ég trúi á mennskuna í fólki“
Félagsmálaráðherra segir allt klárt í sínu ráðuneyti hvað varðar fjölskyldusameiningar Palestínubúa. Þær strandi nú á utanríkisráðherra. Hann segist trúa á mennskuna í ríkisstjórninni og vonar að Palestínumönnum verði komið til landsins sem allra fyrst.

Sigríður Andersen fór ekki út fyrir þægindarammann
Sigríður Á. Andersen, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, setti persónulegt met í réttstöðulyftu um helgina þegar hún lyfti hundrað kílóum á byrjendamóti Kraftlyftingasambands Íslands.

Hafi þegar leiðrétt ummæli sín
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir að fréttaflutningur Ríkisútvarpsins af því að hún hafi farið með ósannindi varðandi stefnu stjórnvalda á Norðurlöndunum í aðstoð þeirra við flóttafólk á Gasa vera rangan. Hún hafi þegar leiðrétt ummæli sem hún hafi látið falla um málið þann 29. desember síðastliðinn.

Samfylkingin yfir þrjátíu prósenta múrinn
Samfylkingin er enn í sókn í nýjum þjóðarpúlsi Gallup og bætir flokkurinn við sig 2,3 prósentum í fylgi. Hann mælist nú með tæplega 31 prósent fylgi.

„Sumir myndu bara kalla þetta pjúra spillingu“
Bæjarfulltrúar Viðreisnar, Garðabæjarlistans og Framsóknar í Garðabæ gera alvarlegar athugasemdir við ráðningu Lúðvíks Arnar Steinarssonar lögmanns í starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs í Garðabæ. Þær segja ekki gætt að óhlutdrægni og segja Lúðvík flokksbundinn. Sá sem gegni stöðunni þurfi að vera hlutlaus.

Innantómir fagurgalar og Dagur augljóslega mjög áhrifamikill
Borgarstjóri boðaði í dag sérstakan átakshóp í húsnæðismálum til að efla uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í borginni. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir fyrri átakshóp borgarstjórans sem hún segir að boðað hafi verið til árið 2022 aldrei hafa fundað. Sjálfur kannast borgarstjóri ekki við að hafa boðað slíkan hóp og segir uppbyggingu eiga að vera aðalatriði málsins.

„Ríkisstjórnin eyðir eins og drukkinn sjómaður“
Hanna Katrín Friðriksson Viðreisn sótti mjög að Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur fjármálaráðherra á þingi í morgun.