Grímuverðlaunin

Fréttamynd

Buxur með opið klof vöktu at­hygli

„Þessar buxur eru magnaðar því þær eru með opið í klofinu og yfir rassinn. Þetta hylur allt nema það sem buxur eiga að hylja,“ segir leikstjórinn Egill Andra sem vakti athygli fyrir klæðaburð sinn á Grímunni í vikunni. Egill er 24 ára gamall og tók við verðlaunum fyrir hönd leikarans Árna Péturs sem var staddur á Spáni.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Stóri skandallinn, ó­væntir sigur­vegarar og ó­tví­ræð taplið

Leikhúsgagnrýnandi Vísis segir stóra skandalinn á Grímunni vera að Benedict Andrews hafi ekki verið valinn leikstjóri ársins þegar Óresteia var valin bæði sýning og leikrit ársins. Ótvíræðu tapliðin í ár séu aðstandendur Ormstungu og Borgarleikhúsið meðan óvæntur sigurvegari sé óperan Sæmundur fróði.

Menning
Fréttamynd

Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni

Harmleikurinn Óresteia og barnasýningin Lína langsokkur hlutu flest verðlaun á Grímunni í ár eða fjögur verðlaun hvor. Óresteia var valin sýning og leikrit ársins og Agnes Wild var valin leikstjóri ársins fyrir Línu Langsokk. Söngleikurinn Ormstunga sem var tilnefndur til tólf verðlauna hlaut engin.

Menning
Fréttamynd

Orms­tunga og Óresteia með flestar til­nefningar

Rappsöngleikurinn Ormstunga fékk tólf tilnefningar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, þetta árið. Harmleikurinn Óresteia fékk tíu tilnefningar og Galdrakarlinn í Oz er í þriðja sæti yfir fjölda tilnefninga með sex slíkar.

Lífið
Fréttamynd

Gríman og glens í Borgar­leik­húsinu

Grímuverðlaunin voru veitt í 23. sinn við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi, þar sem sviðslistum síðasta árs voru fagnað. Flest verðlaun, eða þrenn, hlutu sýningarnar Ungfrú Ísland og Hringir Orfeusar og annað slúður. Alls voru tíu sýn­ing­ar verðlaunaðar.

Lífið
Fréttamynd

Ung­frú Ís­land með flestar til­nefningar

Ungfrú Ísland fær flestar tilnefningar til Grímunnar, eða alls níu talsins, fyrir síðasta ár. Meðal annars er hún tilnefnd sem sýning ársins og leikrit ársins. Þar á eftir koma Sýslumaður dauðans og Hringir Orfeusar og annað slúður með sjö tilnefningar en bæði Köttur á heitu blikkþaki og Innkaupapokinn eru með fimm.

Menning
Fréttamynd

Líf og fjör á Grímunni

Grímuverðlaunin voru haldin með pomp og prakt í gærkvöldi þar sem sviðslistum síðasta árs voru fagnað við hátíðlega athöfn. Leiksýningarnar Saknaðarilmur og Ást Fedru hlutu flest verðlaun á hátíðinni, eða fern verðlaun hver og var Saknaðarilmur meðal annars valin sýning ársins. 

Menning
Fréttamynd

Grímuverðlaunum dreift jafnt í kvöld

Grímuverðlaunin voru veitt í tuttugasta og fyrsta skiptið í kvöld. Óhætt er að segja að verðlaunum hafi verið dreift nokkuð jafnt milli tilnefndra sýninga í kvöld.

Menning
Fréttamynd

Ís­lands­klukkan hlaut tíu til­nefningar til Grímunnar

Íslandsklukkan í sviðsetningu leikhópsins Elefant í samstarfi við Þjóðleikhúsið, hlaut tíu tilnefningar til Grímunnar í ár, flestar allra sýninga ársins. Tilkynnt var um tilnefningar til ís­lensku sviðslista­verðlaun­anna í kvöld.

Menning
Fréttamynd

Tvær sýningar fá sjö til­nefningar til Grímunnar

Sýningarnar Vertu Úlfur og Ekkert er sorg­legra en manneskjan hljóta flestar til­nefningar Grímunnar, ís­lensku sviðs­lista­verð­launanna, í ár eða sjö til­nefningar hvor. Næst­flestar til­nefningar hlýtur Haukur og Lilja – Opnun eftir Elísa­betu Kristínu Jökuls­dóttur.

Menning
Fréttamynd

Allir vinningshafar á Grímunni 2020

Atómstöðin - endurlit eftir Halldór Laxness Halldórsson og Unu Þorleifsdóttir var valin sýning ársins á Grímunni fyrir leikárið 2019-2020. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í kvöld.

Menning
Fréttamynd

Fórn – No Tomorrow valin sýning ársins

Verkið Fórn – No Tomorrow í sviðsetningu Íslenska dansflokksins og Borgarleikhússins var valin sýning ársins 2017 á Grímunni, íslensku sviðslistaverðlaununum, sem afhent voru í Þjóðleikhúsinu í kvöld.

Menning
Fréttamynd

Elly með flestar tilnefningar til Grímuverðlaunanna

Katrín Halldóra Sigurðardóttir, sem fengið hefur lof fyrir túlkun sína á Elly, er bæði tilnefnd sem leikkona ársins í aðalhlutverki og söngvari ársins. Þá er sýningin einnig tilnefnd fyrir leikkonu í aukahlutverki, leikara í aukahlutverki, leikmynd, búninga og hljóðmynd. Tilefningar voru tilkynntar í Þjóðleikhúskjallaranum í dag en Sviðslistasamband Íslands stendur þeim að baki.

Menning
Fréttamynd

Ég geri allt nema tónlist

Sunneva Ása Weisshappel myndlistarkona hlaut Grímuverðlaun fyrr í vikunni fyrir frumraun sína í búningahönnun fyrir leikverkið Njálu. Sunneva vinnur nú í samstarfi við Þorleif Örn Arnarsson leikstjóra en það er óhætt að segja að nóg sé fram undan hjá þeim, bæði hér heima og erlendis, og mörg afar spennandi verkefni bíða.

Menning
  • «
  • 1
  • 2