Ísafjarðarbær

Rannsaka hvers vegna björgunarbátar blésu ekki út á Flateyri
Rannsóknarnefnd samgönguslysa athugar málið.

Gámarnir „krumpuðust“ utan um húsið
Ró er tekin að færast yfir Flateyri eftir mikinn eril og viðbúnað síðustu daga í kjölfar snjóflóðanna sem féllu á bæinn í byrjun síðustu viku.

Enginn uppgjafartónn í Vestfirðingum
"Ég held að þessar byggðir hafi skilað svo miklu inn í samfélagið að þær eigi það skuldlaust að staðið verði vörð um öryggi þessara íbúa,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir,

Héldu að það væri komið steypiregn þegar flóðbylgjan skall á þakinu
Flóðbylgjan sem skall á land á Suðureyri á þriðjudagskvöld er ekki eins há og talið var í fyrstu. Útbúið verður tölvulíkan af flóðbylgjunni.

Vestfirðingar og samgöngu- og sveitastjórnarráðherra í Víglínunni
Náttúruhamfarir, óveður og alvarleg slys settu svip sinn á vikuna sem leið. Snjóflóðin sem féllu á Vestfjörðum höfðu töluverðar afleiðingar í för með sér og hafa vakið ýmsar spurningar.

Fyrsti báturinn kominn á land
Vinna hófst í dag við að ná bátunum upp úr höfninni á Flateyri eftir snjóflóðin í vikunni.

Vonast til að ná fyrsta bátnum upp úr höfninni í dag
Vinna er hafin við að hreinsa upp úr höfninni á Flateyri eftir snjóflóðin sem þar féllu á þriðjudagskvöld. Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri Ísafjarðarbæjar segir í samtali við fréttastofu að mikið verk sé fyrir höndum en vonast er til þess að það takist að koma fyrsta bátnum, Blossa, í land í dag.

Sendu síðustu stöðuskýrsluna vegna snjóflóðanna
Aðgerðarstjórn á Ísafirði og Samhæfingastöð almannavarna í Skógarhlíð í Reykjavík hafa lokið störfum vegna snjóflóða á Flateyri og í Súgandafirði.

Skipa starfshóp sem metur fjárveitingar til ofanflóðasjóðs
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að skipa starfshóp sem fara mun yfir framkvæmdaáætlun ofanflóðasjóðs í kjölfar snjóflóðanna sem féllu á Flateyri og við Suðureyri 14. janúar síðastliðinn.

Íbúafundir í næstu viku vegna snjóflóðanna
Bæjarstjórinn í Ísafjarðarbæ og lögreglustjórinn á Vestfjörðum boða til íbúafunda í kjölfar snjóflóðanna sem féllu á Flateyri og í Súgandafirði 14. janúar.

Snjórinn fór í gegnum allt húsið og reif með sér alla milliveggi
Karl Hjálmarsson, eigandi hússins við Ólafstún 14 á Flateyri sem varð fyrir öðru af tveimur snjóflóðum sem féllu í bænum á þriðjudagskvöld, segir að það hafi ekki verið góð tilfinning að fá fregnir af því að snjóflóð hafi fallið á húsið.

Segir atvinnulífið á Flateyri í molum
Þorgils Þorgilsson, sem rekur fiskverkun og fiskmarkað á Flateyri, segist ekki hafa átt von á því að bátarnir sykkju í snjóflóði.

„Þetta eru bara dauðir hlutir og stelpan bjargaðist“
"Maður heyrir að þetta er ónáttúrulegt hljóð. Maður er ekki vanur þessu hljóði sem kemur þarna,“ segir Magnús Einar Magnússon, formaður Sæbjargar á Flateyri, um það hvernig hann varð var við fyrra snjóflóðið í vikunni.

Óttast að tjónið á Flateyri kunni að vera meira en talið var í fyrstu
Viðbragðsaðilar á Flateyri hafa unnið að verðmætabjörgun í morgun. Ljóst er að gífurlegt tjón hefur orðið í bænum sem enn hefur þó ekki verið metið en óttast er að það gæti verið meira en áður var talið.

Kisurnar í Ólafstúni 14 heilar á húfi
Eyþór Jóvinsson, íbúi á Flateyri og eigandi bókabúðarinnar í bænum, birti fallega mynd af sér á Facebook-síðu bókabúðarinnar í dag þar sem hann heldur á öðrum heimiliskettinum í Ólafstúni 14 sem varð fyrir snjóflóðinu sem féll á þriðjudagskvöld.

Flateyrarvegur opnaður
Tekin hefur verið ákvörðun um að opna Flateyrarveg, eftir veðurofsa og hamfarir síðustu daga.

„Ólýsanlegt“ að sjá herbergi stúlkunnar sem grófst undir snjóflóðinu
Þá hafi það verið dýrmætt að ræða við fólkið á svæðinu en setja þurfi metnaðarfyllri markmið í uppbyggingu ofanflóðavarna en nú eru í gildi.

Drónamyndir frá Flateyri sýna eyðilegginguna í höfninni
Líkt og komið hefur fram varð gríðarlegt tjón í höfninni við Flateyri eftir að annað af tveimur snjóflóðum sem féll við bæinn á þriðjudaginn fór í höfnina.

Snjóflóðið á Flateyri hafi líklega verið stærra en flóðið árið 1995
Forsætisráðherra segir að henni og ráðherrum í ríkisstjórn hennar, sem heimsóttu snjóflóðasvæðin á Vestfjörðum í dag, hafi verið tjáð að annað flóðið á Flateyri á þriðjudag hafi líklega verið stærra en flóðið 1995, þar sem tuttugu fórust.

„Umfram allt þá þarf og verður að tryggja öryggi íbúanna til frambúðar“
Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir mikilvægt að öryggi íbúa í byggðarlögum þar sem hætta er á snjóflóðum verði tryggt sem fyrst. Hann segir að þörf sé á nýju hættumati og að ráðast þurfi hratt og örugglega í að reisa snjóflóðavarnir þar sem þörf er á.

Snjóflóðin tvö með þeim allra stærstu sem fallið hafa á leiðigarða í heiminum
Flóðin úr Skollahvilft og Innra-Bæjargili eru með allra stærstu snjóflóðum sem fallið hafa á leiðigarða í heiminum

„Hraðfara massi sem kemur í einu höggi“
Tómas Jóhannesson, fagstjóri ofanflóðavarna hjá Veðurstofu Íslands, lýsir snjóflóðinu sem kom úr Skollahvilft fyrir ofan Flateyri á þriðjudagskvöld eins og teppi niður hlíðina sem var allt á mjög mikilli ferð.

Missti meðvitund í snjónum og man eftir sér á sjúkrabörunum
Alma Sóley Ericsdóttir Wolf, fjórtán ára stúlka sem bjargað var úr snjóflóði sem féll á Flateyri á þriðjudagskvöld, segist hafa verið að kveðja vinkonu sína í netspjalli og fara að halla sér þegar hún heyrði drunur. Þremur sekúndum síðar var hún föst í snjó.

Svona er staðan á Flateyri í dag
Vestfirðingar eru farnir að geta ferðast meira á milli staða en opnað hefur verið fyrir umferð um fjölmarga vegi í dag.

Mokstur á Flateyrarvegi gengur vel
Gert er ráð fyrir að mokstri inn á Flateyri ljúki einhvern tímann á fimmta tímanum í dag.

Varnargarðarnir á Flateyri ekki hannaðir fyrir flóð sem fer á allt að 200 kílómetra hraða
Tómas Jóhannesson, fagstjóri ofanflóðavarna á Veðurstofu Íslands, segir að hraði snjóflóðsins úr Skollahvilft á Flateyri á þriðjudagskvöld sé væntanlega meginskýringin á því að það flæddi yfir varnargarðana fyrir ofan bæinn.

Unglingsstúlkan útskrifuð og ráðherrar fljúga vestur
Búist er við því að opnað verði fyrir umferð um Flateyrarveg um þrjúleytið í dag en samgöngur eru óðum að komast í samt lag á Vestfjörðum.

Segir það hafa verið nánast ómögulegt að verja smábátahöfnina fyrir hamfaraflóði
Flosi Sigurðsson, byggingarverkfræðingur hjá verkfræðistofunni VERKÍS og einn af aðalhönnuðum snjóflóðavarnargarðanna á Flateyri, segir að það hafi komið á óvart að snjóflóð hafi farið yfir varnargarðinn og á hús.

Flateyringar enn innlyksa
Flateyrarvegur er enn lokaður eftir snjóflóðin sem þar féllu á þriðjudag og íbúar Flateyrar því enn innlyksa.

Þyrlan enn á ný send á Vestfirði vegna snjóflóðanna
Þyrla Landhelgisgæslunnar lagði af stað frá Reykjavík til Vestfjarða um tíuleytið í kvöld með óþreytt björgunarsveitarfólk.