Innlent

Menntaskólinn á Ísafirði braut lög

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Menntaskólinn á Ísafirði braut lög þegar hann synjaði Eyþóri Inga Falssyni um skólavist. 
Menntaskólinn á Ísafirði braut lög þegar hann synjaði Eyþóri Inga Falssyni um skólavist.  Vísir/Vísir

Menntaskólinn á Ísafirði braut stjórnsýslulög þegar hann synjaði fötluðum pilti um skólavist á grundvelli heildarhagsmuna skólans samkvæmt úrskurði Menntamálaráðuneytisins. Þá hafi mannréttindi hans verið virt að vettugi samkvæmt stjórnarskrá.

Við sögðum í fréttum okkar frá Eyþóri Inga Falssyni fötluðum dreng sem býr í Bolungarvík. Þar kom fram að Byggðasamlag Vestfjarða hafi brotið stjórnsýslulög þegar félagsþjónusta Ísafjarðarbæjar vísaði honum úr skammtímavistun með nokkurra daga fyrirvara.

Þá var honum einnig synjað um skólavist með í Menntaskólanum á Ísafirði á grundvelli heildarhagsmuna skólans.

Foreldrar Eyþórs kærðu ákvörðun Menntaskólans til Menntamálaráðuneytisins sem hefur úrskurðað í málinu.

Í úrskurðinum er ákvörðunin felld úr gildi. Fram kemur að kærendum hafi ekki verið veittur andmælaréttur áður en hin kærða ákvörðun var tekin. Málið hafi ekki rannsakað á fullnægjandi hátt og ekki séð verði séð skólameistari hafi fylgt upplýsingum barnalæknis. Þá sé ekki málefnalegt af hálfu skólameistarans að hafna umsókn drengsins á grundvelli þess að hagsmunir skólans væru meiri en hagsmunir hans.

Foreldrar drengsins ætla þó ekki að sækja aftur um skólavist í Menntaskólanum á Ísafirði. 

Þetta er áfangasigur en við erum ekki búin að sigra stríðið að mínu mati. Það er kveðið á í úrskurðinum að það verði ekki frekar gert í þessu nema við sækjum um skólavist fyrir drenginn í Menntaskólanum á Ísafirði og það er ekki spennandi kostur. Þarna er sami yfirstjórnandi með sömu viðhorf,“ segir  Falur Þorkelsson faðir Eyþórs Inga.

Þau segja að í báðum úrskurðunum komi fram að rannsóknarskyldu og andmælarétti hafi verið virt af vettugi. 

Þau Kristrún Hermannsdóttir og Falur Þorkelsson foreldrar Eyþórs segja ólíklegt að aftur verði sótt um skólavist fyrir hann.Vísir

„Það er í raun og veru ekkert gert. Það eru engin viðurlög við úrskurðunum bæði hvað varðar félagsþjónustu Ísafjarðar og Menntaskólann á Ísafirði . Það er sérstakt að stjórnvöld á þessum sviðum geti brotið lög án þess að við því því séu nokkur viðurlög gerendur sleppa við alla refsingu,“ segir Kristrún Hermannsdóttir móðir Eyþórs Inga.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×