Ísa­fjarðar­bær

Ísa­fjarðar­bær

Mannfjöldi: 3.832 (2025). Flatarmál: 2.380 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Ísafjörður, Suðureyri, Flateyri, Þingeyri, Hnífsdalur.

Fréttamynd

Önnur rúta fór út af og Hring­vegi lokað að hluta

Þrenging er á Hringvegi um Holtavörðuheiði þar sem rúta fór út af vegi í dag, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Þá hefur Hringveginum verið lokað milli Hvammstanga og Víðigerðis þar sem bílar sitja fastir. Ríflega hundrað björgunarmenn hafa verið ræstir út síðasta sólarhring, að sögn Landsbjargar.

Veður

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Snjó­flóð þveraði veginn þegar opið var fyrir um­ferð

Hættustig hefur verið sett á Flateyrarveg og veginn um Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu og óvissustig er víða í gildi. Hættustig er einnig í gildi vegna snjóflóðahættu á Ísafirði og nokkur fjöldi snjóflóða hefur fallið á norðanverðum Vestfjörðum og Tröllaskaga í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Hjálmar H. Ragnars­son er látinn

Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld og fyrrverandi rektor Listaháskólans, er látinn, 74 ára að aldri. Hjálmar lést á líknardeild Landspítalans í nótt. Hjálmar starfaði sem tónskáld, söngstjóri, kennari og var rektor LHÍ til fimmtán ára auk þess sem hann tók virkan þátt í félagsmálum listamanna. 

Menning
Fréttamynd

„Ægi­lega hamingju­samur“ með milljarðana frá Kerecis

Það er gríðarlegt ánægjuefni að fjörutíu milljarða skattgreiðsla frá Kerecis komi að óbreyttu til með að snúa við rekstri ríkissjóðs á þessu ári, að sögn fjármálaráðherra. Ekki var gert ráð fyrir tekjunum í fjármálaáætlun en ráðherra gerir ráð fyrir að peningarnir nýtist til að ná betra jafnvægi í ríkisreksturinn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Einn læknir sinnir þremur stjórnunar­stöðum

Mönnun fagfólks er ein helsta áskorunin hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, líkt og víða annars staðar, samkvæmt úttekt embættis Landlæknis. Einn læknir sinnir þremur stjórnendastöðum og eru fengnir læknar frá Danmörku til að manna stöður. Þá fer rafmagnið reglulega af í húsnæði stofnunarinnar á Patreksfirði.

Innlent
Fréttamynd

„Flókið að koma saman fram­boði með fjóra flokka“

Enn er óvíst hvort einhverjir þeirra flokka sem áttu aðild að Í-listanum í Ísafjarðarbæ muni bjóða fram sameiginlegan lista í komandi sveitarstjórnarkosningum eða hvort þeir bjóði fram í eigin nafni. Viðræðum um áframhaldandi samstarf var slitið í vikunni eftir að ekki náðist samstaða um uppstillingu á lista undir formerkjum Í-listans. Sitjandi oddviti listans segir kjarnann úr hópnum hafa áhuga á að halda áfram og sjálfur hyggst hann gefa kost á sér. Það eigi eftir að koma í ljós hvort það verði í nafni Viðreisnar eða annars sameiginlegs framboðs.

Innlent
Fréttamynd

Samninga­við­ræðum slitið og á­fram­haldandi sam­starf Í-listans úr sögunni

Samningaviðræðum um áframhaldandi samstarf aðildarflokka Í-listans í Ísafjarðarbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar hefur verið slitið. Þannig ekki útlit fyrir að boðið verði fram undir merkjum Í-listans í sveitarfélaginu í komandi kosningum en ástæðan er sú að ekki náist samstaða milli aðildarflokkanna um uppstillingu framboðslista né heldur að samræma ólíkar áherslur.

Innlent
Fréttamynd

Harma launalækkanir í fisk­eldi á Vest­fjörðum

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga segist harma að stjórnendur Arnarlax og Arctic fish hafi tekið þá ákvörðun að lækka laun starfsfólks í fiskeldi. Sú ákvörðun mun hafa verið tilkynnt starfsfólki fyrr í mánuðinum og á að taka gildi þann 1. maí.

Innlent
Fréttamynd

Fisk­eldi til fram­tíðar

Nýr grunnskóli á Bíldudal. Heimavöllur bikarmeistara Vestra. Vatnsveitur og fráveitur. Skólastofur og slökkvistöð. Nemendagarðar og göngustígar. Allt eru þetta dæmi um hvernig framlög fiskeldissjóðs hafa styrkt sveitarfélög á Vestfjörðum síðustu ár til uppbyggingar, aukið lífsgæði og styrkt innviði.

Skoðun
Fréttamynd

Hér verða áramótabrennur á gaml­árs­dag 2025

Áramótin nálgast óðfluga og halda mörg sveitarfélög í þá hefð að hlaða í áramótabrennur. Vísir tók saman lista með helstu áramótabrennum landsins, listinn er ekki tæmandi og tekur fréttastofa fagnandi ábendingum um brennur sem ekki eru á lista.

Innlent
Fréttamynd

Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis

Engin guðþjónusta verður í boði í Mýrakirkju í dag vegna rafmagnsleysis í Dýrafirði. Presturinn segist ætla að nýta tækifærið og vera heima með börnunum á jóladag.

Innlent
Fréttamynd

Klæðning fauk af Stjórnsýslu­húsinu og skemmdi bíla

Foktjón varð á Ísafirði í óveðrinu sem gekk yfir landið í gær, aðfangadag. Lögreglumenn á Ísafirði urðu varir við að nokkrir lausir munir höfðu fokið og að í tveimur tilvikum að minnsta kosti hafi orðið skemmdir á mannlausum bílum sem stóðu á bílastæði við Hafnarstræti á Ísafirði.

Innlent