Ísafjarðarbær
1 2 3 4 5 6 7 … 31 ›
Björgunarsveitum tókst að losa bátinn Rétt fyrir klukkan 18 í gær tókst björgunarsveitum á Vestfjörðum að losa fiskibátinn sem strandaði í mynni Súgandafjarðar í gærmorgun. Innlent 29.10.2024 10:16
Verkfall kennara skollið á Kennarar í níu skólum víða um land hafa nú lagt niður störf. Um er að ræða fjóra leikskóla, þrjá grunnskóla, einn framhaldsskóla og einn tónlistarskóla. Búið er að samþykkja verkföll í fjórum skólum til viðbótar sem hefjast í nóvember. Innlent 29.10.2024 00:01
Áhöfn smábáts sem strandaði hífð upp í þyrlu Tveir menn sem voru um borð í smábát sem strandaði í utanverðum Súgandafirði í morgun voru hífðir upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar og fluttir til Suðureyrar í morgun. Báturinn situr enn fastur á strandstaðnum. Innlent 28.10.2024 09:25
Formaðurinn og þjálfarinn handskafa völlinn fyrir stórleikinn á morgun Vestramenn sitja ekki auðum höndum þessar klukkustundirnar. Fjölmennur hópur vaskra manna er mættur á Kerecisvöllinn til þess að handskafa völlinn eftir snjókomu síðustu tveggja sólarhringa. Á morgun taka Vestramenn á móti Fylki í lokaumferð Bestu deildarinnar. Leikur sem að sker úr um hvort heimamenn haldi sæti sínu í deildinni. Íslenski boltinn 25.10.2024 13:47
Arna Lára leiðir lista Samfylkingar í Norðvestur Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og ritari Samfylkingarinnar, leiðir lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ), er í öðru sæti. Innlent 24.10.2024 22:38
Bæjarstjóri dembir sér í landsmálin Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar gefur kost á sér í oddvitasæti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Innlent 21.10.2024 14:20
Lýsir augnablikinu þegar hann náði Örnu á sitt band Björn Jörundur Friðbjörnsson og Arna Magnea Danks aðalleikarar kvikmyndarinnar Ljósvíkingar segjast muna það vel þegar þau hittust í fyrsta sinn við tökur á myndinni á Ísafirði. Björn hélt einkatónleika fyrir Örnu í sjoppu og segist fullviss um að þetta hafi verið augnablikið sem hann hafi náð henni á sitt band. Bíó og sjónvarp 15.10.2024 16:40
Tvö kvenfélög taka á móti karlmönnum „Valkyrjur milli fjalls og fjöru” er yfirskrift fertugasta landsþings Kvenfélagasambands Íslands, sem fer fram um helgina á Ísafirði. Um 230 konur af öllu landinu taka þátt í þinginu. Innlent 12.10.2024 13:06
Allir tónlistarkennararnir til í verkfall Félagsfólk í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, sem starfar í Tónlistarskóla Ísafjarðar, samþykkti að boða til verkfalls 29. október næstkomandi, með öllum greiddum atkvæðum. Þar með hafa verkföll verið boðuð í níu skólum. Innlent 11.10.2024 17:08
Orkan á Vestfjörðum Síðustu ár hafa verið góð fyrir vestfirskt samfélag en uppbygging í tengslum við fiskeldi, vöxtur Kerecis og fjölgun ferðamanna hafa stóraukið verðmætasköpun í fjórðungnum. Gera má ráð fyrir áframhaldandi vexti og fjárfestingu hjá Kerecis, Kalkþörungafélaginu, fiskeldinu og í sjávarútvegi. Skoðun 4.10.2024 14:31
Rafmagnsleysi sums staðar fram á kvöld Sjötíu mínútur þurfti til að byggja upp flutningskerfi Landsnets eftir að sló út á stórum hluta landsins rétt fyrir klukkan eitt í gær. Fólk í Mývatnssveit var sumt hvert rafmagnslaust fram á kvöld. Innlent 3.10.2024 11:31
Ökumaður bakkaði á barn á Ísafirði Lögreglan á Vestfjörðum óskar eftir vitnum að atviki þar sem maður bakkaði bíl á barn. Jafnframt vill lögreglan ná tali af manninum sem var að keyra silfurlituðum fólksbíl. Innlent 30.9.2024 15:12
Segist hafa væntingar um meira fé til samgöngumála Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra segir nýja samgönguáætlun verða lagða fyrir Alþingi í næsta mánuði og segist hafa væntingar til þess að þingmenn auki framlög til samgönguinnviða við afgreiðslu fjárlaga fyrir jól. Innlent 25.9.2024 21:11
Leituðu á stóru svæði en fundu ekki fleiri hvítabirni Engir hvítabirnir fundust við leitarflug Landhelgisgæslunnar yfir Vestfirði í dag. Lögreglustjóri segir menn nú hafa leitað af sér allan grun um að annað dýr sé á svæðinu, eftir að ung birna var felld á Höfðaströnd í Jökulfjörðum á fimmtudag. Innlent 23.9.2024 16:35
Kanna hvort fleiri bjarndýr leynist fyrir vestan Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar, ásamt lögreglumanni af Vestfjörðum, kanna nú hvort hvítabirni sé að finna í Jökulfjörðum eða á Hornströndum. Engar vísbendingar eru um að fleiri dýr en það sem fellt var fyrir helgi hafi komið til landsins, en lögreglustjórinn á Vestfjörðum segir gott að leita af sér allan grun. Innlent 23.9.2024 12:29
Tæpur helmingur íbúa hefur séð myndina Kvikmyndin Ljósvíkingar sló aðsóknarmet á Ísafirði á föstudag og eru 1203 manns nú búnir að sjá hana í Ísafjarðarbíó. Bíó og sjónvarp 21.9.2024 14:30
Hvers vegna að fella ísbirni? Ísbjörninn sem kom á land á Hornströndum í gær var birna, líklegast tveggja eða þriggja vetra. Birnan var ekki í góðum holdum þegar hún kom hingað á land. Líklega hafði aðeins reynt á fituforðann síðustu daga. Kona á níræðisaldri í sumarhúsi tilkynnti lögreglu um birnuna sem var felld nokkrum tímum síðar. Innlent 20.9.2024 22:31
Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Hvítabjörn sem kom á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum var felldur nú fyrir skömmu. Hann fannst skammt frá sumarhúsi, þar sem konan sem tilkynnti um hann dvaldist einsömul. Innlent 19.9.2024 16:01
Senda vopnaða menn á svæðið Sá sem tilkynnti um að hvítabjörn hefði gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum var staddur í sumarhúsi á svæðinu, og er einn eftir því sem lögregla kemst næst. Ekki hefur náðst aftur í viðkomandi. Lögreglumenn eru á leið á svæðið ásamt mönnum frá Landhelgisgæslunni sem eru sérþjálfaðir í meðferð skotvopna. Innlent 19.9.2024 14:59
Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Lögreglan á Vestfjörðum fékk fyrir skömmu tilkynningu um að hvítabjörn hafi gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum. Innlent 19.9.2024 14:26
Ákall um aðgerðir! Það þarf oft alvarlega atburði svo stjórnvöld vakni við og grípi til aðgerða og sá alvarlegi atburður sem varð þegar farþega rúta brann rétt utan við gangnamunna Vestfjarðarganga hlýtur að vekja stjórnvöld við og að ráðist verði í viðunandi ráðstafanir í Vestfjarðargöngum sem eru orðin eins og rússnesk rúlletta með mikilli umferð og einbreiðum göngum að stærstum hluta. Skoðun 16.9.2024 13:01
Funda með Vegagerðinni um Vestfjarðagöng Rútan sem kviknaði í nálægt Ísafirði fyrir helgi var nýkomin út úr Vestfjarðagöngunum. Slökkviliðið fundar með Vegagerðinni á næstunni og segir slökkviliðsstjórinn að með aukinni umferð um göngin þurfi að tvöfalda einbreiðu kaflana. Innlent 16.9.2024 12:06
„Við erum hundfúl yfir þessu“ Bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar var í síðustu viku falið að krefja Vegagerðina svara um stöðu framkvæmda á Dynjandiheiði, en aðeins sjö kílómetra vantar upp á að bundið slitlag verði á heiðinni allri. Svarið sem barst var einfalt; fjármagn skortir og ekkert verður aðhafst í bili. Innlent 13.9.2024 17:01
Rúta í ljósum logum á Ísafirði Eldur logar í rútu í Tungudal í Ísafirði. Slökkvilið á Ísafirði sinnir verkefninu en getur engar frekari upplýsingar veitt að svo stöddu. Innlent 13.9.2024 15:15
Manngerðar hörmungar á Flateyri Spilling íslenska kvótakerfisins birtist m.a. í furðulegum undirlægjuhætti stjórnvalda með þeim stóru í greininni á meðan nýliðun er gerð erfiðari og nánast útilokuð. Það er t.d. gert með sérstökum vigtarreglur fyrir þá stóru sem reka, samhliða útgerð, eigin fiskvinnslu og eru reglurnar þeim mun hagstæðari en þær reglur sem gilda fyrir þá minni. Afleiðingin er hröð samþjöppun í greininni og byggðaröskun. Skoðun 13.9.2024 11:32
Björgunarsveit í fýluferð vegna neyðarblyss Áhöfn björgunarskipsins Gísla Jóns á Ísafirði var kölluð út á laugardagkvöldið eftir að tilkynning barst frá íbúa sem hafði séð fleiri en eitt neyðarblys á lofti í firðinum. Sveitin var síðar afturkölluð eftir að ljós kom að blysunum hafði verið skotið á loft af hópi fólks sem hafði komið saman vegna hátíðarhalda fyrir utan veitingastað á Skutulsfjarðareyri. Innlent 9.9.2024 08:07
Sjö sóttu um embætti héraðsdómara Sjö umsækjendur voru um tvö embætti héraðsdómara sem dómsmálaráðuneytið auglýsti lausar til umsóknar í ágúst. Innlent 6.9.2024 10:54
Skútur rekur á land í röðum Þrjár skútur hefur rekið í land við Pollinn á Ísafirði það sem af er degi, eftir að hafa slitnað af legufærum í höfninni. Einni skútunni var komið í tog í morgun og bjargað en of slæmt er í sjóinn eins og er til að bjarga hinum tveimur. Innlent 5.9.2024 15:45
Skúta slitnaði frá bryggju í aftakaveðri fyrir vestan Bálhvasst hefur verið á Norðvesturlandi og á Vestfjörðum í morgun og björgunarsveitum á svæðinu hafa borist fjölmargar tilkynningar. Á Ísafirði slitnaði lítil skúta frá bryggju og rak upp í grjótgarðinn við Pollinn. Innlent 5.9.2024 11:21
Skólabörn óttuðust mann sem sofnaði á bekk í almenningsgarði Lögreglan á Vestfjörðum kom manni í andlegu ójafnvægi undir læknishendur í gær eftir að tilkynnt var um veru hans í almenningsgarði á Ísafirði. Hann hafði legið sofandi á bekk í garðinum yfir nóttina og þegar kennsla hófst í grunnskóla bæjarins hafði maðurinn vaknað og nemendur orðið hræddir við hann. Innlent 4.9.2024 12:10