Hveragerði

Kalla eftir úrbótum eftir að heiðin var lokuð í þrjá sólarhringa
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar hefur skorað á Vegagerðina að gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að koma í veg fyrir að aftur komi upp ástand viðlíka því sem varð í byrjun vikunnar, þegar vegurinn um Hellisheiði var lokaðir fyrir allri umferð í þrjá sólarhringa vegna veðursins sem gekk yfir landið.

Kviknaði í snjóruðningstæki í Kömbunum
Eldur kviknaði í snjóruðningstæki í Kömbunum austan Hellisheiðar á fimmta tímanum í dag. Ekki er vitað til þess að nein slys hafi orðið á fólki.

Sviðahausapizzur í Hveragerði á bóndadaginn
Veitingamaður í Hveragerði ætlar að fara alla leið á bóndadaginn, sem er í dag því hann verður með sviðahausapizzur fyrir þá sem þora.

Fengu tiltal frá lögreglu vegna ruglingslegra sóttvarnareglna
Lögreglan á Suðurlandi heimsótti Gróðurhúsið í Hveragerði fyrr í kvöld vegna sóttvarnareglna sem höfðu verið brotnar inni í mathöllinni á staðnum. Eigandi Gróðurhússins segir að bætt verði úr sóttvörnum á staðnum fyrir morgundaginn en reglur hafi verið óskýrar þegar þær breyttust á miðnætti í gær.

Fella niður leikskólagjöld þeirra sem halda börnum heima vegna faraldursins
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar hefur ákveðið að fella niður leikskólagjöld og gjöld vegna mötuneyta hjá þeim foreldrum sem halda börnum sínum heima vegna faraldurs kórónuveirunnar. Um 40 prósent starfsmanna Grunnskólans í Hveragerði er fjarverandi vegna veikinda.

Óvissan er gríðarleg: „Eigum við að segja upp fólki? Eða ekki?“
Veitingamenn eru í mikilli óvissu varðandi hertar aðgerðir sem talið er líklegt að kynntar verða á morgun. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir skilaði minnisblaði til heilbrigðisráðherra í dag en hann hefur talað um að hertra aðgerða sé þörf.

„Heilsustofnun hefur ekkert að fela“
Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunarinnar í Hveragerði segir stofnunina ekkert hafa að fela eftir að Kjarninn greindi frá úttekt eftirlitsdeildar Sjúkratrygginga Íslands, þar sem fram kom að Náttúrulækningafélag Íslands, eigandi stofnunarinnar, hefði með ólögmætum hætti tekið um 600 milljónir úr starfsemi Heilsustofnunarinnar. Þórir segir hverri einustu krónu hafa verið veitt til að þjónusta sjúklinga í samræmi við þjónustusamning.

600 milljóna ólögmæt úttekt úr rekstri Heilsustofnunarinnar í Hveragerði
Náttúrulækningafélag Íslands (NLFÍ), eigandi Heilsustofnunarinnar í Hveragerði, tók um 600 milljónir króna út úr stofnuninni á fimmtán árum með ólögmætum hætti. Þetta er niðurstaða úttektar eftirlitsdeildar Sjúkratrygginga Íslands á Heilsutofnuninni sem Kjarninn birtir ítarlega umfjöllun um í dag.

Ítrekað kallaðir út vegna sinuelda í Árnessýslu sem raktir voru til óleyfisbrenna
Liðsmenn Brunavarna Árnessýslu þurftu að sinna alls 54 útköllum, meðal annars vegna gróðurelda sem blossuðu upp víða í umdæminu, í gærkvöldi og í nótt.

Skjálfti við Ingólfsfjall í nótt
Jarðskjálfti upp á 3 stig reið yfir í nótt, klukkan sextán mínútur yfir fjögur. Í þetta skiptið skalf jörð þó ekki í grennd við Fagradalsfjall, heldur átti skjálftinn upptök sín um átta kílómetra austur af Hveragerði, í Ingólfsfjalli.

Loftorka átti lægsta boð í Ölfusi og Mosfellsbæ
Annir gætu orðið hjá fyrirtækinu Loftorku Reykjavík ehf. við vegagerð næsta árið. Verktakinn átti lægsta boð í tveimur stórum útboðsverkum sem Vegagerðin opnaði fyrir jól.

Kviknaði í út frá kertaskreytingu í Hveragerði
Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp í íbúðarhúsi í Hveragerði rétt í þessu. Um var að ræða eld frá kertaskreytingu á borði.

Innlit í nýtt og öðruvísi hótel í Hveragerði
Í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær fengu áhorfendur að sjá Gróðurhúsið í Hveragerði, nýtt og spennandi hótel í hjarta bæjarins.

Sundfólk ársins úr Hveragerði og Hafnarfirði
Keppendur Íslands í sundi á Ólympíuleikunum í Tókýó í sumar, þau Anton Sveinn McKee og Snæfríður Sól Jórunnardóttir eru sundfólk ársins hjá SSÍ.

Gróðurhúsið í Hveragerði formlega opnað
Gróðurhúsið opnaði formlega í Hveragerði í dag og var haldið partý þar á laugardag til að halda upp á opnunina. Fjölbreytt starfsemi er í byggingunni sem á að höfða bæði til Íslendinga og erlendra ferðamanna en þar er að finna hótel, mathöll, bar, verslanir, kaffihús, matarmarkað og ísbúð.

Töfratálgari í Hveragerði
Útskurðarhnífar Andrínu Guðrúnar í Hveragerði hljóta að vera einhverskonar töfrahnífar því fuglarnir, sem hún tálgar verða svo fallegir í höndunum á henni. Mesta áskorun Andrínu er að tálga hrafninn.

Kafli milli Hveragerðis og Ölfusborga boðinn út
Vegagerðin hefur boðið út næsta áfanga í breikkun Suðurlandsvegar um Ölfus, milli Hveragerðis og Selfoss. Útboðið sem núna er auglýst er tæplega áttahundruð metra langur tengivegur við austurjaðar Hveragerðis, ásamt smíði nýrrar brúar yfir Varmá norðan Suðurlandsvegar.

Útlit fyrir að framkvæmdum á Suðurlandsvegi ljúki ári á undan áætlun
Útlit er fyrir að framkvæmdir við Suðurlandsveg milli Hveragerðis og Selfoss muni ljúka um ári fyrir áætluð verklok. Mögulega verður hægt að opna fyrir umferð um nýja veginn næsta sumar eða haust.

Sterkasta flugfreyja landsins býr í Hveragerði
Anna Guðrún Halldórsdóttir í Hveragerði er líklega sterkasta flugfreyja landsins en hún gerði sér lítið fyrir á dögunum og setti þrjú Evrópumet og tvö heimsmet í Ólympskum lyftingum.

Milljarður á 30 sekúndum
Undanfarið kjörtímabil hefur samstarf í bæjarstjórn Hveragerðis verið með ágætum. Þó koma reglulega upp mál sem minni- og meirihluta greinir á um, sem telst nú nokkuð eðlilegt í hinu pólitíska umhverfi. Gott samstarf minni- og meirihluta í Hveragerði má einnig rekja lengra aftur í tímann en þess má geta að fjárhagsáætlun bæjarins hefur verið unnin sameiginlega síðasta áratug eða svo.

Bjórostur kynntur í Hveragerði á bjórhátíð
Unnendur íslensk bjórs geta farið að láta sér hlakka til því nú er í undirbúningi risa bjórhátíð í Hveragerði í gróðurhúsi þar sem nýr bjórostur verður meðal annars kynntur. Í dag eru tuttugu og fimm brugghús á Íslandi, sem veita um 300 manns atvinnu.

Umferð á Suðurlandsvegi komin í eðlilegt horf eftir bílslys
Fyrr í dag urðu miklar tafir á umferð milli Selfoss og Hveragerðis vegna áreksturs tveggja bíla. Nú er búið að greiða úr teppunni að sögn Lögreglunar á Suðurlandi.

Með bækistöðvar í Hveragerði og keppa í golfi í dag
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta undirbýr sig á nýjum stað fyrir fyrsta leik í undankeppni heimsmeistaramótsins.

Þrettán í sóttkví eftir smit hjá starfsmönnum Heilsustofnunar í Hveragerði
Alls hafa þrettán verið sendir í sóttkví eftir að tveir starfsmenn Heilsustofnunar í Hveragerði greindust með Covid-19 í gær.

Þakkar lífsgæðum landsbyggðarinnar í túnfæti Reykjavíkur fyrir mikinn vöxt
Íbúum Hveragerðis hefur fjölgað um hátt í fimmtung á þremur árum og tvö hundruð íbúðir eru nú í byggingu til að mæta þeirri fjölgun. Bæjarstjórinn reiknar með að bæjarbúar verði orðnir fimm þúsund eftir tíu ár, en þeir voru 2.777 um áramótin síðustu.

Blómstrandi atvinnulíf á Suðurlandi
Atvinnuástand á Suðurlandi hefur sjaldan eða aldrei verið eins gott og um þessar mundir. Víða vantar þó fólk til starfa eins og í ferðaþjónustu og við byggingaframkvæmdir.

55 í sóttkví vegna smita tengdum Heilsustofnun
Starfsemi Heilsustofnunar er komin af stað aftur eftir tveggja daga meðferðahlé á meðan unnið var að smitrakningu eftir að skjólstæðingur greindist með kórónuveiruna síðastliðinn þriðjudag. Alls eru nú 55 í sóttkví vegna tveggja einstaklinga sem hafa dvalið hjá Heilsustofnun og greinst með veiruna.

Allt stopp á Heilsustofnun eftir að skjólstæðingur greindist
Skjólstæðingur á Heilsustofnun í Hveragerði greindist með Covid-19 um hádegisbil í dag. Gert hefur verið hlé á öllu endurhæfingarstarfi vegna þessa á meðan unnið er að smitrakningu.

Allir heimilismenn virðast hafa sloppið við smit
Enginn heimilismaður á hjúkrunarheimilinu Ási greindist smitaður af kórónuveirunni í skimun sem var gerð á þeim í gær. Starfsmaður hjúkrunarheimilisins greindist með veiruna fyrr í vikunni.

Starfsmaður á hjúkrunarheimilinu Ási greindist smitaður
Starfsmaður á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði hefur greinst smitaður af kórónuveirunni. Starfsmaðurinn var síðast í vinnu á miðvikudag.