Grindavík

Áfram Grindavík!
Við Íslendingar höfum þurft í gegnum aldir alda að eiga við all hrikalega krafta móður jarðar. Þau allra verstu á landnámstímum væntanlega móðuharðindin í kjölfar Skaftárelda, djöfulganginn í systrunum Heklu og Kötlu auk frændanna í Vatnajökli, Bárðarbungu og Öræfajökli.

Nota Suðurstrandarveg á morgun en leita fleiri leiða
Suðurstrandarvegur verður áfram leiðin inn í Grindavík fyrir þá bæjarbúa sem þangað fara á morgun.

Verði kannski komin á byrjunarreit eftir tíu daga
Víðir Reynisson segir aðgerðir við verðmætabjörgun í Grindavík heilt yfir hafa gengið vel í dag, þrátt fyrir hnökra í upphafi dags. Hann segist vel skilja reiði og pirring Grindvíkinga. Með áframhaldandi landrisi aukist óvissan um hvað gerist næst.

Segir galið að aka Krýsuvíkurleiðina í aðstæðum eins og í morgun
Miklar umferðartafir urðu við Grindavík í morgun þegar íbúar fengu að fara inn í bæinn að sækja eigur sínar. Veður og hálka gerði fólki erfitt fyrir og þurftu sumir að snúa við. Íbúi segir galið að almannavarnir hafi beint fólki um Krýsuvíkurveg sem sé þekktur fyrir að vera hættulegur í aðstæðum eins og í morgun.

Hefði verið til í fleiri til að bera hægindastólana
Einar Dagbjartsson, íbúi í Grindavík, var á meðal Grindvíkinga sem fengu að sækja eigur sínar til Grindavíkur í dag. Hann segir að vel hafi gengið þó að hann hefði verið til í fleiri hendur til að aðstoða sig, við að sækja dót upp á þriðju hæð.

Takmarka aðgengi svo hægt sé að rýma skyndilega
Sérfræðingar í áhættugreiningu hafa greint hvert einasta svæði í Grindavík og leiðbeint Almannavörnum þannig að unnt sé að hleypa íbúum bæjarins heim til sín í skamma stund. Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, segir bæinn hættulegan og sífelt erfiðara verði að halda lífi í honum.

Miklar umferðartafir við Grindavík
Miklar umferðartafir eru við Grindavík. Hafa Grindvíkingar á leið í bæinn að sækja eignir þurft að snúa við. Vegagerðin mun senda fleiri snjóruðningstæki á vettvang. Einstefna um bæinn er til að koma í veg fyrir flöskuháls, samkvæmt bæjaryfirvöldum.

Kristrún kallar eftir opinskárri umræðu um aðstoð við Grindvíkinga
Það sem skiptir máli þegar kemur að því hvernig stjórnvöld hyggjast mæta Grindvíkingum sem nú sjá fram á að þurfa að finna sér nýtt húsnæði til lengri tíma og jafnvel langframa, er ekki hvaðan fjármagnið kemur heldur áhrif aðgerðanna á efnahagslífið.

Vinnueftirlitið rannsakar slysið í Grindavík og vill lögregluskýrslu
Vinnueftirlitið rannsakar nú vinnuslysið í Grindavík, þar sem maður féll ofan í sprungu. Hefur eftirlitið óskað eftir lögregluskýrslu um málið.

Ánægja með að komast heim þó margir séu ósáttir við yfirvöld
Grindvíkingur segir ánægjulegt að fólk fái loksins að fara inn í bæinn eftir „ævintýralega efiða“ mánuði. Mörgum Grindvíkingum líði þó eins og yfirvöld hafi komið illa fram við íbúa og forgangsraðað undarlega aðgengi að bænum.

„Það fá allir tíma og það er nægur tími fram undan“
Frá og með morgundeginum verður Grindvíkingum hleypt inn á heimili sín í hollum. Ekkert kalt vatn er á bænum og hitaveita verulegua löskuð, þannig að kalt er í húsum. Grindvíkingar fá þrjá klukkutíma til að vera í bænum í fyrstu lotu.

Heimsækja þrjúhundruð heimili í þrjár klukkustundir
Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, kynnti í dag nýtt skipulag um takmarkaða opnun Grindavíkur á upplýsingafundi.

Upplýsingafundur Almannavarna vegna opnunar Grindavíkur
Í dag klukkan eitt fer fram upplýsingafundur Almannavarna í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð. Fundurinn verður í beinni útsendingu hér.

Körfuboltakvöld: Tilþrif 15. umferðar
Subway körfuboltakvöld hélt áfram göngu sinni á föstudagskvöldið þar sem Stefán Árni og sérfræðingar hans fóru yfir 15. umferðina.

Kynna opnun Grindavíkur á morgun
Upplýsingafundur Almannavarna verður haldinn á morgun í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð. Tímasetning fundarins kemur í ljós á morgun. Skipulag almannavarna vegna opnunar Grindavíkur með takmörkunum kynnt.

Aðgerðir taki tíma en tími Grindvíkinga líði hægt
Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segir vel koma til greina að halda borgarafund, þannig að Grindvíkingar geti komið óskum sínum og áhyggjum til skila. Samtal við ríkið gangi vel, en samtalið við borgarana sé ekki síður mikilvægt.

Færeyingar gefa Grindvíkingum tíu milljónir
Færeyski Rauði krossinn hefur undanfarna viku staðið fyrir fjársöfnun til að styðja við Grindvíkinga vegna hamfaranna. Rauði krossinn tilkynnti í dag að hann muni gefa 250 þúsund danskar krónur.

Biðlar til fólks að sýna samfélagslega ábyrgð
Hópur Grindvíkinga hefur hafið undirskriftasöfnun á Ísland.is þar sem þess er krafist að Grindvíkingar fái að halda borgaralegan fund með bæjarstjórninni um þær aðgerðir sem eru í smíðum fyrir Grindvíkinga.

Skoða að nota skattalega hvata til að auka framboð á húsnæði
Verið er að undirbúa fjölda aðgerða til að auka framboð á húsnæði fyrir Grindvíkinga að sögn ráðherra í ríkisstjórninni. Þær miði að því að halda niðri verðbólgu. Forsætisráðherra segir ekki búið að ákveða hvort förgunargjald í altjóni verði afnumið en áhersla sé lögð á jafnræði íbúa.

Komast ekki heim í dag og mögulega ekki um helgina
Ljóst er að Grindvíkingar fá ekki að fara heim til að sækja eigur sínar í dag og Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri Almannavarna er heldur ekki bjartsýn á að þeir muni geta það heldur um helgina.

Fjölskyldan kallar eftir rannsókn óháðra aðila á hvarfinu
Fjölskylda mannsins sem féll ofan í sprungu í Grindavík þann 10. janúar á þessu ári vill að hvarf hans verði rannsakað af óháðum aðilum. Fjölskyldan vill svör um aðdraganda og aðstæður á vettvangi þar sem maðurinn, Lúðvík Pétursson, var við störf.

Grindvíkingar komist vonandi sem fyrst heim að sækja verðmæti
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir unnið að því að gefa Grindvíkingum búsettum vestan Víkurbrautarinnar kost á því að komast heim til sín sem fyrst að sækja verðmæti.

Hættumat fært niður en hætta af sprungum enn mjög mikil
Hætta í tengslum við sprungur innan Grindavíkur er áfram metin mjög mikil í uppfærðu hættumati. Heildarhættumat fyrir Grindavík hefur verið fært niður í appelsínugult, töluverð hætta.

Spyr hvort ráðherrar hafi vísvitandi viljað spilla kjaraviðræðum
Fjármálaráðherra segir það ekki hafa verið tilgang utanríkisráðherra og hennar að hleypa illu blóði í viðræður breiðfylkingarinnar við Samtök atvinnulífsins með yfirlýsingum sínum um mögulega aðkomu stjórnvalda að kjarasamningum. Þingmaður Pírata segir SA hins vegar hafa lækkað tilboð sitt í viðræðunum eftir yfirlýsingar ráðherranna.

Enn óráðið með förgunargjald í Grindavík
Eigendur altjónshúsa í Grindavík fá aðeins hluta bóta greiddan því enn liggur ekki fyrir hvernig staðið verður að förgun og niðurrifi slíkra húsa. Enn á eftir að koma hita og rafmagni á tugi húsa í bænum. Veðurstofan birtir nýtt hættumat í dag.

Framboð óskast fyrir Grindvíkinga
Hvað á að gera þegar allar íbúðir í heilu bæjarfélagi hverfa af húsnæðismarkaði? Með jarðhræringum og eldsumbrotum í Grindavík hefur heimilum hérlendis fækkað svo um munar á einu bretti, en slík fækkun mun að öðru óbreyttu leiða til mikils ójafnvægis á markaði með fasteignir og leiguíbúðir.

Útrýmum óvissu Grindvíkinga
Óvissa getur skapast þegar fólk hefur of litlar upplýsingar um atburð eða atburðarás. Sú óvissa gerir það að verkum að það er erfitt að skipuleggja eða spá fyrir um framtíðina. Þegar óvissa er til staðar þá magnast upp mikil streita.

Samkennd er samfélagsleg verðmæti
Í dag er hálf öld, eitt ár og einn dagur síðan framtíðin sem íbúar Vestmannaeyja sáu fyrir sér kollvarpaðist á einnu nóttu. Eins og þar og þá stendur samfélagið í Grindavík nú frammi fyrir því að forsendur framtíðarinnar eru að bresta.

Dregur úr landrisi og rólegt á Reykjanesi
Verulega virðist hafa dregið úr landrisi í Svartsengi og nágrenni síðustu tvo sólarhringa samkvæmt gögnum úr síritandi GPS mælum. Náttúruvásérfræðingur segir sérfræðinga horfa til samspils fleiri mælinga og staðan því óbreytt.

Jákvæð þróun: Hnattræn losun í hámarki
„Við fylgjumst eðilega mest með fréttum um það sem er að gerast hverju sinni. Núna erum við með augun á hamförunum í Grindavík og reglulega sjáum við fréttir á forsíðum um skógarelda erlendis og fleira. Fyrir vikið falla í skuggann upplýsingar um ýmislegt sem þó er að sýna okkur jákvæða þróun,“ segir Halldór Björnsson fagstjóri veðurs og loftlags hjá Veðurstofunni.