Erlent

Birtu áður óséðar myndir af einkaeyju Epsteins

Samúel Karl Ólason skrifar
Nokkrar af myndunum frá einkaeyju Epsteins.
Nokkrar af myndunum frá einkaeyju Epsteins. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþing

Demókratar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings birtu í kvöld myndir og myndbönd frá einkeyju barnaníðingsins heitna, Jeffreys Epstein. Hluti myndefnisins hefur aldrei sést áður.

Meðal annars sýna myndirnar svefnherbergi, baðherbergi og aðra hluta eyjunnar en þær marka í rauninni engar nýjar vendingar í máli Epsteins.

Ekki liggur fyrir hvenær myndirnar og myndböndin voru tekin.

Ríkisstjórn Donalds Trump er enn undir töluverðum þrýstingi um að opinbera Epstein-skjölin svokölluðu, sem Trump hefur sagt að verði opinberuð. Lítið hefur frést af stöðu mála hvað varðar þau skjöl síðan Trump skrifaði undir frumvarp um að þau ætti að birta.

Þó nokkur af fórnarlömbum Epsteins segjast hafa verið flutt á eyjuna og að þar hafi verið brotið á þeim, eins og fram kemur í frétt BBC, en hún kallast Little Saint James og er í bandarísku Jómfrúaeyjum.

Samhliða birtingunni sagði Robert Garcia, leiðtogi Demókrata í nefndinni, að til stæði að opinbera frekari gögn á næstu dögum. Þar væri um að ræða gögn frá JP Morgan og Deutsche Bank en báðar fjármálastofnanirnar hafa verið gagnrýndar harðlega vegna tengsla við Epstein.

Skjöl frá rannsóknum lögreglu og FBI

Þegar talað er um Epstein-skjölin er talað um fjölda skjala og gagna sem dómsmálaráðuneytið hefur aflað í tengslum við rannsóknir í garð Jeffreys Epstein og annarra sem honum tengjast í gegnum árin. Það á við um rannsóknina þegar hann var handtekinn 2019 en gögnin ættu meðal annars að varpa ljósi á samkomulag sem Epstein gerði við saksóknara í Flórída á árum áður og rannsóknirnar sem bæði lögreglan í Flórída og Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) gerðu þá.

Samkvæmt minnisblaði frá dómsmálaráðuneytinu sem sent var út fyrr á árinu situr FBI á hundruðum gígabæta af skjölum og öðrum sönnunargögnum sem tengjast Epstein. Töluverður fjöldi þessara skjala hefur áður litið dagsins ljós.

Áður en hann tók aftur við embætti forseta vörðu Trump og bandamenn hans miklu púðri í að ýta undir samsæriskenningar og sögusagnir í tengslum við Epstein. Þá sökuðu þeir Demókrata um að hylma yfir mál barnaníðingsins auðuga en Trump og hans fólk hétu því að birta öll þau gögn sem voru til.

Tónninn breyttist þó nánast strax og Trump tók aftur við embætti og hefur ríkisstjórnin lítið birt.

Í júlí tóku svo tiltölulega fáir þingmenn beggja flokka í fulltrúadeildinni sig til og sömdu frumvarp um að þvinga dómsmálaráðuneytið til að birta skjölin. Mike Johnson, forseti fulltrúadeildarinnar, kom lengi í veg fyrir að það frumvarp yrði tekið fyrir.

Í síðasta mánuði leit út fyrir að krafan yrði samþykkt og lúffaði Trump. Hann sagði sjálfur að birta ætti skjölin og skrifaði undir lög þess efnis. Hann gæti þó opinberað gögnin sjálfur, eða skipað Pam Bondi, dómsmálaráðherra, að gera það hvenær sem er og hefur getað gert það frá því hann tók við embætti.

Hér að neðan má sjá myndband frá eyjunni og þar að neðan eru myndir sem birtar voru í kvöld.

Uppfært 22:30 - Birtum myndum og myndböndum hefur fjölgað verulega frá því fréttin var birt. Áhugasamir geta skoðað allar myndirnar hér.


Tengdar fréttir

Hættir á þingi vegna deilna við Trump

Marjorie Taylor Greene, bandarísk þingkona sem lengi var ötull stuðningsmaður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að hún ætli að láta af störfum. Er það í kjölfar þess að Trump fordæmdi hana og kallaði hana svikara vegna krafna hennar um birtingu Epstein-skjalanna svokölluðu.

Öldungadeild samþykkir líka birtingu Epstein-skjalanna

Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í kvöld frumvarp um að birta Epstein-skjölin eftir að allir þingmenn nema einn í fulltrúadeild samþykktu birtingu skjalanna. Enginn mótmæli í öldungadeild og fer frumvarpið nú til Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, til undirritunar. 

Hvíta húsið hlutaðist til um rannsókn á Tate-bræðrum

Bandarískur embættismaður á snærum Hvíta hússins reyndi að hafa áhrif á rannsókn á Andrew Tate, sem sakaður er um mansal í þremur löndum, fyrr á þessu ári. Skammaði hann fulltrúa heimavarnarráðuneytis og skipaði þá að skila snjalltækjum Tate sem landamæraverðir lögðu hald á.

Dregur sig í hlé af skömm vegna tengsla við Ep­stein

Fyrrverandi rektor Harvard-háskóla og fjármálaráðherra Bandaríkjanna segist ætla að draga sig í hlé á opinberum vettvangi eftir uppljóstranir um að hann hafi átt í vinasambandi við Jeffrey Epstein löngu eftir að sá síðarnefndi hlaut dóm sem kynferðisbrotamaður. Hann skammist sín ákaflega.

Þekktir vísinda­menn lögðu lag sitt við Ep­stein

Ýmsir þekktir vísindamenn voru á meðal þeirra sem áttu í trúnaðarsamskiptum við Jeffrey Epstein, bandaríska kynferðisbrotamanninn og auðkýfinginn. Einn áhrifamesti málvísindamaður heims hélt samskiptum sínum við Epstein áfram jafnvel eftir að hann hlaut dóm fyrir kynferðisbrot.

Kallar nú sjálfur eftir birtingu Epstein-skjalanna

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur breytt um kúrs og hvatt þingmenn Repúblikanaflokksins til að greiða atkvæði með birtingu allra gagna sem yfirvöld sitja á eftir rannsóknir á athafnamanninum Jeffrey Epstein.

Segist hafa fengið fjölda hótana eftir að Trump hætti að styðja hana

Marjorie Taylor Greene, sem var lengi einn helsti bandamaður og stuðningsmaður Donald Trump og MAGA-hreyfingarinnar, sagði í gær að einkarekið öryggisfyrirtæki hefði haft samband við sig „með viðvörunum um öryggi hennar“ eftir að Trump tilkynnti á föstudag að hann drægi til baka stuðning sinn við þingkonuna frá Georgíu.

Rann­saka tengsl Ep­stein við Clin­ton

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur fallist á beiðni Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að rannsaka tengsl barnaníðingsins Jeffrey Epstein við nokkra háttsetta Demókrata, en þar á meðal eru Bill Clinton fyrrverandi Bandaríkjaforseti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×