Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Lovísa Arnardóttir skrifar 17. október 2026 08:35 Umfangsmiklar lögregluaðgerðir hófust í kjölfar skotárásarinnar. Myndin er úr safni af lögreglu. Vísir/EPA Kona á þrítugsaldri er alvarlega slösuð í kjölfar skotárásar í íþróttahúsi í Älvsjö í suðurhluta Stokkhólms í gærkvöldi. Tveir ungir karlmenn voru snemma í morgun handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald samkvæmt vef SVT. Fjöldi var yfirheyrður í nótt vegna málsins og mennirnir handteknir í kjölfarið.
Konan, sem er á þrítugsaldri, var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús með áverka sem lögreglan lýsti sem „mjög alvarlegum“. Á laugardagsmorgun var ástand hennar enn lífshættulegt. „Við getum ekki útilokað að fleiri tengist málinu,“ er haft eftir Mats Eriksson, talsmanni lögreglunnar í Stokkhólmi, í fréttinni. Þar kemur fram að skotárásin hafi orðið í Kämpetorpshallarna í Solberga í Älvsjö um klukkan 21 í gærkvöldi en á sama tíma stóð yfir bæði fótboltaleikur og innibandýleikur í íþróttamannvirkinu. Konan skotmarkið Í frétt SVT segir að þegar lögregla kom í íþróttahúsið í gær hafi gerendur verið farnir og umfangsmiklar lögregluaðgerðir hafist og stóru svæði umhverfis íþróttahúsin var lokað. Ungmenni sem voru í húsinu fengu ekki að fara út á meðan aðgerðunum stóð og voru síðar leidd út í hópum. Lestarumferð til Älvsjö-stöðvarinnar var stöðvuð tímabundið á meðan leit að hinum grunuðu stóð yfir. Samkvæmt frétt SVT hefur lögreglan ekki greint frá því hvar mennirnir voru handteknir eða hvort þeir hafi áður komið við sögu lögreglu. Umfangsmikil rannsókn stendur yfir, meðal annars til að varpa ljósi á tilefni skotárásarinnar. Atvikið er rannsakað sem tilraun til manndráps en talið er að konan hafi verið skotmark árásarinnar. Bjóða upp á áfallahjálp Fram kemur í frétt SVt að vegna alvarleika árásarinnar og þess fjölda sem varð vitni að henni verði boðið upp á áfallahjálp í dag vegna málsins. „Við lítum skotárásir alltaf mjög alvarlegum augum. Í gær virkjuðum við strax neyðarstjórn okkar. Félagsmiðstöðin verður opin í allan dag og þangað geta almenningur, börn og ungmenni leitað til að fá stuðning,“ er haft eftir Lee Orberson, hverfisstjóra í Hägersten-Älvsjö, í frétt SVT.
Svíþjóð Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Sjá meira