Kópavogur

Þarf að prjóna á hjólastólnum til að komast í búðina
Íbúi í Kópavogi sem notar hjólastól kvartar yfir mokstri við verslanir í Hamraborg og Fannborg í Kópavogi. Til að komast í verslun Krónunnar í Hamraborg þarf hún að prjóna á afturdekkjum hjólastólsins.

Tókst ekki að sanna að hross væri hrekkjótt
Ung kona sem höfðaði mál til heimtu skaðabóta vegna alvarlegs reiðslyss, sem hún lenti í þegar hún var sextán ára gömul, fær engar bætur úr hendi eiganda hrossins. Ekki taldist sannað að hrossið væri hrekkjótt.

Réðst á afgreiðslustúlku og sló hana ítrekað í andlitið
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til rétt fyrir klukkan 22 í gærkvöldi þegar ungur maður réðst á stúlku sem var að störfum í verslun í Kópavogi og sló hana ítrekað í andlitið.

Eldur í bíl við Furugrund
Eldur kviknaði í bíl við Furugrund í Kópavogi fyrir skömmu síðan. Aðrir bílar voru í hættu en slökkviliðsmönnum tókst að slökkva eldinn í tæka tíð.

Sundlaugar áfram lokaðar á morgun
Vegna bilunar í Hellisheiðarvirkjun verður ekki hægt að opna sundlaugar Reykjavíkurborgar og Ylströnd í fyrramálið eins og vonir stóðu til.

Hótaði þremur félögum sínum með skotvopni á Heimsenda í Kópavogi
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann sem hafði hótað þremur félögum sínum með skotvopni í hesthúsahverfinu á Heimsenda í Kópavogi í nótt.

Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu lokað vegna bilunar
Bilun er komin upp í Hellisheiðarvirkjun svo engin framleiðsla er á heitu vatni sem stendur. Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu verður lokað vegna þessa.

Löggan sinnir betlara, þefar uppi graslykt og ræðir við gervilöggur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með starfsmann á Twitter-vaktinni í kvöld þar sem greint er frá öllum útköllum lögreglunnar. Twitter-verkefnið stendur í hálfan sólarhring.

Valið „Jólahús Kópavogsbæjar 2022“
Múlalind 2 hefur verið valið jólahús Kópavogsbæjar árið 2022 af lista- og menningaráði Kópavogsbæjar.

„Það er ekki eðlilegt að það verði svona mörg slys“
Móðir þriggja ára stelpu sem fótbrotnaði í trampólíngarðinum Rush vill að foreldrar séu meðvitaðir um hætturnar sem fylgt geta trampólínhoppi. Dóttir vinkonu hennar fótbrotnaði vikuna áður.

Almenningur býður parinu samastað
Par sem fór illa út úr leka þegar lögn á landi Kópavogsbæjar fór í sundur með þeim afleiðingum að gríðarlegt vatn lak inn til þeirra og skemmdi nær allt innbú, segir að almennir borgarar hafi haft samband og boðið þeim samastað. Tryggingafélag þeirra hafnar bótaskyldu og bíða þau enn eftir svörum frá bænum.

Viðgerð á Kaldavatnslögn við Kársnesbraut lokið
Viðgerð á kaldavatnslögn við Kársnesbraut sem rofnaði í gær lauk á tíunda tímanum í gærkvöldi og var vatni hleypt aftur á fljótlega eftir það.

Hafa ekki í nein hús að venda eftir að íbúðin skemmdist í gríðarlegum leka
Par hefur ekki í nein hús að venda eftir að gríðarlegt magn af vatni flæddi inn í íbúð þeirra með þeim afleiðingum að heimilið er óíbúðarhæft. Þau vita ekki hvar þau ætla að verja nóttinni og segja Kópavogsbæ ekkert vilja gera fyrir þau.

Vildi ekki kanna hvort bílnum hefði verið stolið vegna kulda
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um að bíl hefði verið stolið við verslun í Kópavogi. Eigandi bílsins vildi ekki fara út og ganga úr skugga um að bílnum hefði verið stolið vegna þess hve kalt var, samkvæmt dagbók lögreglu.

Tvö börn fótbrotin og Rush breytti reglunum
Trampólíngarðurinn Rush hefur tilkynnt breytingar á reglum sínum til að auka öryggi gesta. Eldri systkini barna fimm ára og yngri mega ekki fylgja þeim í krakkatíma án forráðamanns. Þar að auki mega börn á þessum aldri einungis sækja garðinn þegar fyrrnefndir krakkatímar eru.

Kaldavatnslaust á Kársnesi og heitavatnslaust í Laugarnesi
Kaldavatnslaust er víða á Kársnesi og truflana á vatnsflæði gætir víðar í Kópavogi eftir að kaldavatnslögn við Kársnesbraut rofnaði. Þá er heitavatnslaust á Laugarnesvegi í Laugardalnum vegna bilunar.

Flæddi inn í tvö hús þegar vatnslögn rofnaði á Kársnesi
Slökkvilið höfuðborgarsvæðinu var kallað út eftir að vatnslögn rofnaði á Kársnesi í Kópavogi á sjötta tímanum í morgun. Kaldavatnslaust er á Kársnesi.

Kaldir og blautir eftir svaðilför við Elliðavatn
Betur fór en á horfðist í gær þegar tíu og ellefu ára drengir lentu í vandræðum á Elliðavatni þegar þeir fóru út á ísilagt vatnið og ísinn brotnaði undan þeim. Þeir komust í land, kaldir og blautir með aðstoð slökkviliðsins. Varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir aldrei óhætt að fara út á ísilagt vatn.

Lögregla varar við ísilögðum vötnum og tjörnum
Ungir drengir voru hætt komnir þegar þeir féllu í Elliðavatn síðdegis í gær þegar ísinn undir þeim brotnaði. Lögregla varar við ísilögðum vötnum, lækjum og tjörnum.

Bjargað eftir að hafa orðið strandaglópar á Elliðavatni
Þrír ungir drengir urðu strandaglópar úti á Elliðavatni um klukkan fjögur í dag.

Fimm réðust á gest veitingahúss í Kópavogi
Veitingahússgestur í Kópavogi hlaut áverka á höndum og fótum þegar ráðist var á hann á öðrum tímanum í nótt. Fimm manns eru sagðir hafa tekið þátt í árásinni en þeir voru farnir af vettvangi þegar lögreglu bar að garði.

Dómur mildaður fyrir manndráp af gáleysi í Vindakór
Landsréttur mildaði í dag dóm yfir Dumitru Calin fyrir að hafa af gáleysi banað Daníel Eiríkssyni fyrir utan heimili Daníels í Vindakór árið 2021. Dumitru var dæmdur í tveggja ára fangelsi en hafði áður hlotið þriggja og hálfs árs fangelsi í héraði.

„Gamla skammtíma- og óskilvirka loforðapólitíkin ræður nú aftur ríkjum í Kópavogi“
Fulltrúar í minnihluta í bæjarstjórn Kópavogs eru allt annað en ánægðir með verklag við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2023. Segja þeir að mikil afturför hafi orðið hvað þetta varðar með nýjum meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna sem myndaður var eftir kosningarnar í vor og að nú hafi vinnan ekki verið unnin í þverpólitískri sátt líkt og síðustu ár.

Spilar á 20 kílóa hljóðfæri í tveimur lúðrasveitum
Það er heilmikil vinna og fyrirhöfn hjá 15 ára strák í Kópavogi að koma sér á lúðrasveitaæfingu í þeim tveimur lúðrasveitum, sem hann spilar með, því hljóðfærið hans er það allra stærsta í lúðrasveitum, eða túba. Hljóðfærið vegur um 20 kíló.

Fólkið sem fann draumaheimilið við þjóðveginn austur úr borginni
Þegar við fylgjum Hólmsá og Suðurlandsvegi austur úr borginni, upp með vatnasviði Elliðavatns, má finna leyndar perlur og áhugavert mannlíf. Svæðið geymir sögu nýbýla frá vaxtarárum Reykjavíkurbæjar eftir fyrri heimsstyrjöld og einnig stríðsminjar úr síðari heimsstyrjöld.

Iðinn sjálfsafgreiðslusvindlari gripinn glóðvolgur
Maður sem virðist hafa stundað það að nýta sér sjálfsafgreiðslukassa til þess að greiða lægra verð fyrir vörur var gripinn glóðvolgur við iðjuna í verslun í Kópavogi í gær.

Handtekinn fyrir að ganga berserksgang í apóteki
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einstakling sem var sagður hafa gengið berserksgang í apóteki í Kópavogi í dag. Þá stóð lögregla innbrotsþjóf að verki í Hlíðahverfi.

Spurt hvort fjarlægja ætti stíflu Elliðavatns eftir lokun virkjunar
Spurningar hafa vaknað um hvort fjarlægja eigi stíflu Elliðavatns og koma vatninu í upprunalegt horf, eftir að rekstri Elliðaárstöðvar var hætt. Líffræðingur sem vaktar Elliðavatn segir að slíkt þyrfti að hugsa vandlega og að söknuður yrði af vatninu.

Njóta sveitalífs við niðinn í ánni en búa samt í jaðri borgarinnar
Elliðavatn og vatnasvið þess upp með ánum Bugðu og Hólmsá geymir leyndar perlur og áhugavert mannlíf. Því kynnumst við í þættinum Um land allt á Stöð 2 í kvöld.

Guðmundur í Víði bjó sér til fossnið við Elliðavatn
„Það blundaði alltaf í honum svo mikill bóndi. Hann hafði svo gaman af náttúrunni,“ segir Ólafur Kr. Guðmundsson, þegar hann útskýrir hversvegna faðir hans, Guðmundur Guðmundsson, forstjóri Trésmiðjunnar Víðis, valdi að byggja upp heimili fjölskyldunnar í sveit við Elliðavatn.