Kjaramál

Samþykktu frumvarp um launagreiðslur á tímum veirunnar
Ríkisstjórn Íslands samþykkti rétt í þessu frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar félags- og barnamálaráðherra til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um ábyrgðarsjóð launa.

Enginn samningafundur milli Eflingar og sveitarfélaga fyrr en á mánudaginn
„Ég er bara gáttaður á seinagangi Sambands íslenskra sveitarfélaga við að sinna þessum viðræðum,“ segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar.

Kjarasamningur Félags fréttamanna og SA í höfn
Samninganefndir Félags fréttamanna og Samtaka atvinnulífsins vegna Ríkisútvarpsins náðu samkomulagi og undirrituðu kjarasamning í húsakynnum ríkissáttasemjara í gær.

Fella niður kennslu vegna verkfalls: „Þetta getur orðið heilsuspillandi mjög fljótt“
Stjórnendur Salaskóla í Kópavogi hafa tekið þá ákvörðun að fella niður alla kennslu vegna yfirstandandi verkfalls félagsmanna Eflingar. Skólastjórinn segir að útbreiðsla kórónuveirunnar hafi haft áhrif á niðurstöðuna.

Segir umhugsunarvert að ekki hafi verið hægt að ná þessari niðurstöðu fyrir einhverjum vikum
Borgarstjóri Reykjavíkurborgar kveðst mjög ánægður með að samningar hafi náðst í kjaradeilu félagsmanna Eflingar og borgarinnar.

„Við mættumst á miðri leið“
Formaður samninganefndar Reykjavíkurborgar segir samningurinn sem undirritaður var í nótt hafi byggt á grunni Lífskjarasamningsins.

Sólveig Anna segir upprisu láglaunakvenna í borginni sannarlega hafna
Formaður Eflingar segir að staðfesta og samstaða samninganefndar Eflingar og félagsmanna hafi skilað þeim samningi við Reykjavíkurborg sem undirritaður var í nótt.

Fögnuðu samningnum á táknmáli vegna kórónuveirunnar
Þrátt fyrir að Efling og Reykjavíkurborg hafi náð að landa kjarasamningi eftir harðvítugar deilur síðastliðinn mánuði heyrðist ekkert lófatak frá Karphúsinu í nótt.

Samið um allt að 112 þúsund króna hækkun
Launahækkanir, styttri vinnuvika, yfirvinnutímar auk námskeiða og fræðslu eru meðal þess sem Efling og Reykjavíkurborg náðu saman um í nótt.

Ótímabundnu verkfalli félagsmanna Eflingar hjá Reykjavíkurborg aflýst
Samninganefndir Eflingar og Reykjavíkurborgar undirrituðu nú á fjórða tímanum í nótt, í húsakynnum Ríkissáttasemjara, nýjan kjarasamning fyrir um 1800 félagsmenn Eflingar sem starfa hjá borginni. Ótímabundnu verkfalli aflýst.

Efling og Reykjavíkurborg funda enn í Karphúsinu
Samningafundir Eflingar og Reykjavíkurborgar halda áfram í húsakynnum Ríkissáttasemjara.

Nýir kjarasamningar BSRB: Vinnuvikan stytt og launahækkanir í samræmi við lífskjarasamninginn
Fimmtán aðildarfélög BSRB skrifuðu í nótt og í morgun undir kjarasamninga við ríki og sveitarfélög.

Útbreiðsla kórónuveirunnar hafði áhrif á undirritun kjarasamninga
Nóttin var löng í húsakynnum ríkissáttasemjara en BSRB og aðildarfélög ásamt viðsemjendum hafa fundað stíft og nær sleitulaust alla helgina til þess að reyna að afstýra verkfalli.

Verkfall Eflingar í nokkrum sveitarfélögum hefst á hádegi
Verkfall rúmlega 270 félagsmanna Eflingar sem starfa hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og sveitarfélaginu Ölfusi hefst klukkan 12 á hádegi.

Sjúkraliðar búnir að semja við ríkið
Samninganefndir Sjúkraliðafélags Íslands og ríkisins náðu samkomulagi og skrifuðu undir samning nú skömmu fyrir klukkan átta í morgun.

Öllum verkföllum sem hefjast áttu á miðnætti aflýst
Nær öllum verkfallsaðgerðum um 16 þúsund félagsmanna BSRB sem byrjuðu eða áttu að byrja á miðnætti hefur verið aflýst.

Sjúkraliðar semja við sveitarfélög
Sjúkraliðafélag Íslands (SLFÍ) hefur skrifað undir kjarasamninga viðSamband íslenskra sveitarfélaga og verða verkföll félagsmanna því felld niður.

Sameyki gerir „tímamótasamning“ við borgina
Sameyki, stéttarfélag í almannaþjónustu, hefur gert kjarasamning við Reykjavíkurborg. Viðræður standa enn yfir á milli félagsins og hins opinbera.

Efling og Reykjavík fresta fundi
Saminganefndir Reykjavíkurborgar og Eflingar hafa ákveðið að fresta samningafundi sem hófst klukkan tvö í dag.

Verkfall BSRB skollið á: Einn af mörgum kjarasamningum undirritaður
BSRB hefur undirritað einn kjarasamning við samninganefnd hins opinbera. Samningur þessi nær til allra bæjarstarfsmanna.

Klukkan tifar í Karphúsinu
Fundað er í hverju hverju herbergi í húsnæði Ríkissáttasemjara. Fólk gengur á milli herbergja enda allra leiða leitað til þess að afstýra verkfalli sextán þúsund félagsmanna BSRB sem hefst á miðnætti.

Styttist í verkföll
Verkföll nærri sextán þúsund félagsmanna BSRB skella á á miðnætti náist ekki samningar hjá deiluaðilum fyrir þann tíma.

Enn ósamið þegar rétt um hálfur sólarhringur er í verkfall BSRB
Reynt verður til þrautar í dag að ná kjarasamningum milli félaga BSRB og viðsemjenda þeirra áður en verkföll nærri sextán þúsund félagsmanna BSRB skella á á miðnætti.

Stíf fundarhöld hjá BSRB halda áfram eftir nætursvefn
Fundi í kjaraviðræðum BSRB við ríki, borg og sveitarfélög lauk nú á tólfta tímanum í kvöld. Fundarhöld hafa staðið yfir í allan dag og í gær og hefur verið boðað aftur til fundar hjá Ríkissáttasemjara klukkan tíu í fyrramálið.

Efling semur við ríkið
Efling og hið opinbera hafa skrifað undir kjarasamninga. Það mun þó engin áhrif hafa á verkföll sem eru í gangi og eru fyrirhuguð.

Fundað stíft í kjaradeilu BSRB: „Getur brugðið til beggja vona“
Samninganefndir félaga BSRB og viðsemjenda þeirra reyna nú hvað þær geta til að ná kjarasamningi áður verkfallsaðgerðir hátt í sextán þúsund félagsmanna í BSRB hefjast eftir einn og hálfan sólarhring.

Ábyrg afstaða
Félagsmenn Landssambands slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna (LSS) eru með þessari ákvörðun að taka ábyrga afstöðu til samfélagsins og fresta boðuðu verkfalli. Félagsmenn LSS eru fólkið í framlínu utanspítalaþjónustu á Íslandi og oftar en ekki fyrsti snertipunktur fólks við heilbrigðisþjónustuna.

Efling og borgin ætla að halda áfram að funda um helgina
Fundi samninganefndar Eflingar og Reykjavíkurborgar lauk um kvöldmatarleytið.

Verkfallsundanþágur á Landspítala og Heilsugæslu
Félagsmenn stéttarfélagsins Sameykis og Sjúkraliðafélags Íslands sem starfa á Landspítalanum og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins munu ekki taka þátt í fyrirhuguð verkfalli nú eftir helgi. Ástæðan er útbreiðsla COVID-19 kórónuveirunnar.

Öll félög Starfsgreinasambandsins nema Efling hafa lokið öllum samningum
Öll verkalýðsfélög innan Starfsgreinasambandsins að Eflingu undanskilinni hafa lokið samningum sínum við ríki, sveitarfélög og á almennum vinnumarkaði. Vonir eru bundnar við að stórum áfanga verði náð í samningum BSRB við ríki og sveitarfélög í kvöld.