Kjaramál
141 142 143 144 145 146 147 148 149 … 153 ›
Slökkviliðsmenn og launanefnd semja Skrifað var undir samninga í kjaradeilu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og launanefndar sveitarfélaganna klukkan fimm í nótt eftir um sextán tíma samningafund. Samningurinn er til þriggja ára og er sambærilegur þeim samningum sem launanefnd sveitarfélaganna hefur gert við aðra hópa. Innlent 5.3.2006 09:53
Ljósmæður í heimaþjónustu samþykkja kjarasamning Ljósmæður í heimaþjónustu samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða nýgerðan kjarasamning Ljósmæðrafélags Íslands og samninganefndar heilbrigðisráðuneytisins á fundi í dag Innlent 4.3.2006 17:22
Kvarta undan seinagangi í kjaraviðræðum Starfsmannafélag Reykjavíkur lýsir vanþóknun sinni á seinagangi Orkuveitu Reykjavíkur og Félagsbústaða hf. við gerð nýrra kjarasamninga við félagið. Innlent 4.3.2006 17:10
Vonar að ekki komi til verkfalls Formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna vonar að ekki komi til verkfalls hjá stéttinni síðar í mánuðinum. Deiluaðilar sátu á maraþonfundi í gær og nótt sem gefur ákveðnar vonir um að sátt náist í deilunni á næstunni. Innlent 4.3.2006 12:28
16 tíma samningafundur í deilu LSS og LH Fundur samninganefndar Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og launanefndar sveitarfélaga hjá ríkissáttasemjara stóð til klukkan fimm í nótt en hann hófst klukkan eitt í gær. Annar fundur hefur verið boðaður klukkan eitt í dag. Innlent 4.3.2006 09:49
Fundahlé í kjaradeilu slökkviliðsmanna Samningafundi Landssambands slökkviliðs-og sjúkrafutningamanna við fulltrúa ríkisins, var frestað hjá Ríkissáttasemjara um klukkan ellefu í gærkvöldi , eftir að hafa staðið í tíu klukkustundir. Fundi verður fram haldið eftir hádegi. Innlent 3.3.2006 07:07
Atkvæðagreiðsla vegna verkfalls slökkviliðsmanna hafin Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hófu á hádegi að greiða um það atkvæði hvort boða eigi til verkfalls sem hefjast á um miðjan marsmánuð. Um 280 atvinnuslökkviliðsmenn eru á kjörskrá og er kosið í deildum þeirra víða um land. Innlent 28.2.2006 12:32
LSS og LN funda eftir hádegi Fundur hefur verið boðaður klukkan eitt hjá ríkissáttasemjara í kjaradeilu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og launanefndar sveitarfélaganna. Innlent 27.2.2006 10:23
Sáttafundi lauk án árangurs Sáttafundi slökkviliðsmanna og viðsemjenda þeirra hjá Ríkissáttasemjara lauk án árangurs nú fyrir stundu. Annar fundur hefur verið boðaður á morgun. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykktu í gærkvöldi heimild til boðun verkfalls um allt land. Innlent 24.2.2006 17:35
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykkja heimild til verkfalls Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hafa samþykkt heimild til boðunar verkfalls um allt land þar sem ekkert hefur þokast í samkomulagsátt í kjaraviðræðum þeirra og Launanefndar sveitarfélaganna. Ef af því verður hefst það væntanlega 16. eða 17. mars. Innlent 23.2.2006 22:01
Slitnað upp úr viðræðum við sjúkraflutninga- slökkviliðsmenn Slitnað hefur upp úr viðræðum Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við launanefnd sveitarfélaganna. Allar deildir slökkviliða landsins hafa verið boðaðar til fundar í Reykjavík í kvöld þar sem ræða á stöðu mála. Innlent 23.2.2006 16:58
Félagsráðgjafar mótmæltu á borgarstjórnarfundi Félagsráðgjafar fjölmenntu á áhorfendapalla á borgarstjórnarfundi í dag til að krefjast bættra kjara og knýja á um að kraftur komist í viðræður þeirra og borgarinnar um nýjan kjarasamning. Þeir útiloka ekki verkfall. Innlent 21.2.2006 21:57
Vélstjórar fella kjarasamning í annað sinn Vélstjórar á fiskiskipum felldu nýgerðan kjarasamning við LÍÚ með aðeins tveggja atkvæða mun. Skrifað var undir samninginn um áramót en þetta er í annað sinn sem vélstjórar fella kjarasamning á innan við ári, en þeir felldu einnig samning sem gerður var á fyrri hluta síðasta árs. Innlent 20.2.2006 16:13
Samningafundur hjá LN og slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum Samninganefndir launanefndar sveitarfélaganna og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna funda í Karphúsinu nú klukkan eitt um kjaramál síðarnefnda hópsins, en eins og greint hefur verið frá höfnuðu slökkviliðs- sjúkraflutningamenn tilboði launanefndarinnar um 24 prósenta launahækkun fyrir helgi. Innlent 13.2.2006 12:49
Heimildir LN til launahækkana nýttar í Hafnarfirði Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í gær, þriðjudaginn 7. febrúar, að nýta að fullu þær heimildir til hækkunar launa leikskólakennara og félagsmanna í Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar sem tillögur launanefndar frá 28. janúar sl. gera ráð fyrir. Innlent 8.2.2006 14:36
Ríki og fyrirtæki hækki lægstu laun Formannafundur Starfsgreinasambandsins sem haldinn var í dag, krefst þess að bæði ríkið og Samtök atvinnulífsins, beiti sér nú þegar fyrir hækkun lægstu launa til samræmis við þá launaviðbót sem Launanefnd sveitarfélaga leggur til. Innlent 7.2.2006 16:51
Flytji réttleysið ekki milli landa Forystumenn allra launþegasamtaka á Norðurlöndum hafa skorað á norræna þingmenn á Evrópuþinginu að styðja breytingartillögu við þjónustutilskipun Evrópusambandsins. Þannig megi koma í veg fyrir að réttindaleysi launþega í sumum aðildarríkjum sé í raun flutt með þeim landa á milli segir formaður BSRB. Innlent 6.2.2006 22:06
Samþykkja að nýta sér heimildir til launahækkana Bæjarráð Dalvíkurbyggðar og Akureyrarbær hafa samþykkt að nýta sér þær heimildir sem Launanefnd sveitarfélaga samþykkti fyrir rúmri viku til tímabundinna viðbótargreiðslna umfram gildandi kjarasamninga við stéttarfélögin Einingu-Iðju, Kjöl og Félag leikskólakennara. Þetta kemur fram á vefnum dagur.net. Innlent 6.2.2006 18:06
Leikskólakennarar farnir að draga uppsagnir til baka Leikskólakennarar í Reykjavík eru farnir að draga uppsagnir sínar til baka eftir að borgarráð samþykkti að hækka laun þeirra í samræmi við tillögur launanefndar sveitarfélaga. Innlent 6.2.2006 16:32
Náttúrufræðingar semja við borgina Félag íslenskra náttúrufræðinga hefur samið við Reykjavíkurborg um kaup og kjör um fimmtíu félagsmanna sinna sem starfa hjá borginni. Samningurinn var undirritaður í síðustu viku og gildir út október 2008. Innlent 6.2.2006 15:31
Hækka laun á Akranesi Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi sínum í gær að fullnýta heimildir Launanefndar sveitarfélaga til að hækka laun leikskólakennara og hækka laun þeirra starfsmanna sem lægst launin hafa. Laun hinna lægst launuðu hækka því um allt að tólf prósent. Innlent 3.2.2006 06:18
Langlundargeðið á þrotum Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn eru orðnir þreyttir á því hve dregist hefur að ganga frá kjarasamningum þeirra við Launanefnd sveitarfélaga. Innlent 2.2.2006 13:44
Samið á einkareknum skólum Samtök sjálfstæðra skóla hafa undirritað fyrsta kjarasamning sinn við Eflingu fyrir hönd um 170 Eflingarfélaga sem vinna í einkareknum leik- og grunnskólum í Reykjavík. Innlent 1.2.2006 12:38
Verða að greiða fyrrum starfsmanni laun G.P.G fiskvinnsla verður að greiða fyrrum stjórnanda fiskvinnslunnar Jökuls á Raufarhöfn hálfa þriðju milljón króna sem hann á hjá félaginu í ógreiddum launum. Innlent 31.1.2006 13:16
Samið um kjör á Herjólfi Sjómannasamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa gengið frá kjarasamningi fyrir háseta og þjónustufólk á Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi. Samningurinn gildir til ársloka 2010 en aðrir samningar við starfsmenn á kaupskipum gilda almennt til loka næsta árs. Innlent 31.1.2006 06:21
Samið við þrjú félög Fulltrúar Reykjavíkurborgar gengu í gær frá samningum við þrjú stéttarfélög um breytingar og framlengingu á samningum félaganna við borgina. Félögin eru Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Stéttarfélag lögfræðinga og Útgarður. Innlent 30.1.2006 10:39
Stjórnskipulegur vandi blasir við Stjórnskipulegur vandi blasir við ef einhver dómari höfðar mál á hendur ríkinu vegna afnáms úrskurðar kjaradóms um laun dómara segir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari. Innlent 30.1.2006 06:49
Laun leikskólakennara hækka um 12 prósent að meðaltali Laun leikskólakennara hækka að meðaltali um 12 prósent samkvæmt ákvörðun sem tekin var á fundi Launanefndar sveitarfélaganna í morgun. Kjör leikskólakennara verða þau sömu og aðrir háskólamenntaðir starfsmenn fengu í kjarasamningum Reykjavíkurborgar við Eflingu og Stafsmannafélag Reykjavíkurborgar í desember en launahækkununum verður náð með því að bæta við launaflokkum og eingreiðslum. Innlent 28.1.2006 15:50
LN heimilar sveitarfélögum að hækka laun leikskólakennara Launanefnd sveitarfélaganna ákvað á fundi sínum í morgun að heimila sveitarfélögum að hækka laun leikskólakennara með því að bæta við launaflokkum og eingreiðslum. Gildistími launaviðbótanna er frá upphafi þessa árs til 30. september þegar kjarasamningur Félags leikskólakennara við launanefndina rennur út. Það er því á herðum sveitarfélaganna sjálfra að ákveða hvort og þá hve mikið laun leikskólakennara hækka. Innlent 28.1.2006 13:37
Starfsmönnum fækkað um hátt í 60 Starfsmönnum HB Granda á Akranesi hefur fækkað um hátt í sextíu á rúmu ári frá því fyrirtækið varð til við sameiningu Haralds Böðvarssonar á Akranesi og Granda í Reykjavík. Innlent 25.1.2006 21:31