Danmörk

Ísland á rauðan lista Breta
Frá og með klukkan fjögur að morgni laugardagsins 26. september þurfa ferðamenn frá Íslandi, Danmörku, Slóvakíu og Curacao að fara í fjórtán daga sóttkví.

Rússneskt herskip rakst á frystiskip á Eyrarsundi
Áreksturinn varð innan danskrar lögsögu, rétt sunnan Eyrarsundsbrúarinnar.

Aldrei fleiri greinst með veiruna í Danmörku
589 greindust með kórónuveiruna í Danmörku síðastliðinn sólarhring. Aldrei hafa fleiri smitast í Danmörku frá því að faraldurinn barst þangað til lands.

Samkomutakmarkanir hertar á ný og fólk hvatt til að vinna að heiman
Veitingastaðir alls staðar í Danmörku skulu nú loka í síðasta lagi klukkan 22 á kvöldin og þá verða samkomurtakmarkaðar við fimmtíu að hámarki frá hádegi á morgun.

Fjórtán og sextán ára unglingar handteknir fyrir morð í Danmörku
Lögregla í Kaupmannahöfn handtók í gærkvöldi fjórtán og sextán ára unglinga vegna morðsins á átján ára manni í Frederiksberg síðastliðið föstudagskvöld.

Tíu ára barátta Brian Laudrup endaði á jákvæðan hátt
Brian Laudrup, Evrópumeistari með danska fótboltalandsliðinu fyrir 28 árum síðar, fékk frábærar fréttir í krabbameinsskoðuninni sinni á dögunum.

Hertar takmarkanir í Kaupmannahöfn
Heilbrigðisráðherra Dana kynnti í morgun hertar kórónuveiruaðgerðir á höfuðborgarsvæði landsins.

Grænlendingar kynna olíuleit norðan Íslands
Grænlensk stjórnvöld hafa kynnt umhverfismat vegna fyrirhugaðrar olíuleitar við Austur-Grænland, beint norður af Íslandi. Matsskýrslan fjallar meðal annars um áhrif olíuleka á lífríki sjávar milli Íslands og Grænlands.

Banna dvöl fólks í almenningsgörðum á Nørrebro
Lögregla í Danmörku hyggst um helgina banna dvöl fólks á ákveðnum svæðum í tveimur almenningsgörðum á Nørrebro í Kaupmannahöfn til að koma í veg fyrir fjölmennar samkomur.

Brjálaður út í danska landsliðið: „Eins og að heilsa að nasistasið“
Auðkýfingurinn Lars Seier er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum og hann hefur heldur kveikt í Danmörk eftir sín síðustu ummæli.

Peter Madsen viðurkennir loks að hafa drepið Kim Wall
Danski kafbátasmiðurinn og uppfinningamaðurinn Peter Madsen hefur loks viðurkennt að hafa drepið sænsku blaðakonuna Kim Wall í kafbát hans í Køgeflóa tíunda dag ágústmánaðar 2017.

Hertar veiruaðgerðir í Danmörku
Hertar aðgerðir vegna faraldurs kórónuveiru taka gildi í Danmörku á morgun.

Lést í fallhlífastökkskeppni
54 ára karlmaður lést í fallhlífastökkskeppni í borginni Herning í Danmörku í morgun.

Bakslag í uppbyggingu flugvallar á Grænlandi
Flugvallafyrirtæki grænlensku landsstjórnarinnar, Kalaallit Airports, hefur frestað framkvæmdum við nýjan flugvöll við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Ástæðan er sögð sú að tilboð sem bárust reyndust öll verulega yfir fjárhagsramma verksins.

Utanríkisráðherra segir Íslendinga hafa sofið í netöryggismálum
Smári McCarthy þingmaður Pírata segir að eftir upplýst var að leyniþjónusta danska hersins veitti Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna aðgang að

Telur njósnamálið í Danmörku snerta Íslendinga beint
Smári McCarthy, þingmaður Pírata, segir að njósnamál sem kom upp nýverið í Danmörku tengist Íslendingum beint. Utanríkisráðherra telur að stjórnvöld hér á landi hafi ekki verið nógu vakandi í netöryggismálum.

Danir breyta lögum um nauðgun: Kynlíf skuli byggt á samþykki
Meirihluti danskra þingmanna hefur náð samkomulagi um breytingar sem skuli gerðar á lögum um nauðgun. Framvegis skuli tryggt að allir viðkomandi aðilar séu þess samþykkir áður en kynlíf er stundað.

Vildi býtta á Grænlandi og Púertó Ríkó
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna sagðist tilbúinn til að gefa Dönum yfirvöld á Púertó Ríkó í stað þess að Bandaríkin fengju völd yfir Grænlandi.

Dönum ráðið frá ferðalögum til Íslands
Utanríkisráðuneyti Danmerkur mælir gegn því að Danir ferðist til Íslands.

Grímuskylda í almenningssamgöngum í Danmörku
Yfirvöld í Danmörku kynntu í morgun hertar aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins og verður meðal annars skylt að bera grímur fyrir vitum í almenningssamgöngum frá og með laugardeginum 22. ágúst.

Ósáttir með ráðherra: „Þegar hann vaknar á morgun mun honum líða eins og mesta fífli Danmerkur“
Forráðamenn FCK voru allt annað en sáttir við tíst Mattias Tesfaye, útlendinga- og aðlögunaráðherra, og hafa krafið hann um afsökunarbeiðni.

Landinn að drukkna í Dönum
Alls flugu 9.949 Danir frá Íslandi í síðasta mánuði og voru þeir fjölmennasti hópur ferðamanna hér.

Danir fresta því að slaka á aðgerðum
Til stóð að opna fyrir starfsemi í tónleikasölum og næturklúbbum á ný í ágústmánuði, en nú er ljóst að það verður að bíða betri tíma í ljósi þróunar síðustu vikna.

Danirnir máttu ekki vera á pöllunum en stemningin var rosaleg fyrir utan völlinn
Það máttu engir áhorfendur vera á pöllunum í Evrópuleikjum gærkvöldsins en stuðningsmenn danska liðsins FCK mættu þess í stað bara fyrir utan völlinn og höfðu gaman.

Séra Sigfús nýr sendiráðsprestur í Kaupamannahöfn
Séra Sigfús Kristjánsson hefur tekið til starfa sem sendiráðsprestur í sendiráðinu í Kaupmannahöfn.

Jóakim muni ná sér að fullu af blóðtappa
Jóakim Danaprins mun ná sér að fullu af blóðtappa í heila. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dönsku konungsfjölskyldunni.

Jóakim prins gekkst undir aðgerð vegna blóðtappa í heila
Jóakim prins hefur verið lagður inn á háskólasjúkrahúsið í frönsku borginni Toulouse þar sem hann hefur gengist undir aðgerð vegna blóðtappa í heila.

Danir toppa Norðmenn með lagningu lengsta sæstrengs heims til Bretlands
Lagning lengsta raforkusæstrengs heims stendur nú yfir milli Noregs og Bretlands. Sá strengur mun þó ekki lengi halda metinu því núna í júlímánuði hófust framkvæmdir við streng milli Danmerkur og Bretlands, sem ætlað er að verða ennþá lengri.

Deila um fyrirkomulag stuðningssjóðs vegna veirunnar
Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna hittast í dag í fyrsta sinn augliti til auglitis frá því kórónuveirufaraldurinn fór að láta á sér kræla í Evrópu.

Sakfelldir fyrir skattstofusprenginguna
Tveir sænskir ríkisborgarar voru í dag dæmdir fyrir aðild að sprengingu við skattstofu Danmerkur í ágúst fyrra.