
Bretland

Corbyn vill kosningar
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, segir Theresu May, forsætisráðherra, hafa tekið rétta ákvörðun. Hún tilkynnti í morgun að hún myndi hætta sem leiðtogi Íhaldsflokksins þann 7. júní og að nýr leiðtogi yrði valinn.

May ætlar að hætta 7. júní
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að segja af sér sem leiðtogi Íhaldsflokksins.

May greinir frá starfslokum sínum
Búist er við því að Theresa May, forsætisráðherra Breta, tilkynni samstarfsmönnum sínum um hvenær hún ætli sér að láta af embætti forsætisráðherra.

Áratugalangri deilu The Rolling Stones og The Verve lokið
Í 22 ár hefur Ian Ashcroft, söngvari The Verve mátt þola það að sjá allar tekjur vegna Bittersweet Symphony, vinsælasta lags hljómsveitarinnar, renna í aðra vasa en hans eigin. Nú verður hins vegar breyting á eftir að Mick Jagger og Keith Richards samþykktu að binda enda á deiluna.

Evrópubúar segjast ekki hafa fengið að kjósa á Bretlandi
Stjórnsýslulegum mistökum sveitarstjórna sem áttu að senda út eyðublöð gæti verið um að kenna.

36. ráðherrann til að segja af sér í stjórnartíð May
Andrea Leadsom, þingflokksformaður Íhaldsflokksins, hefur sagt af sér embætti og yfirgefur hún þar með ríkisstjórn Theresu May forsætisráðherra. Leadsom er þar með 36. ráðherrann eða ígildi ráðherra til þess að segja af sér í stjórnartíð May.

May kaupir sér pólitískan líftíma fram á föstudag
Bandamenn forsætisráðherrans yfirgefa hana hægri og vinstri eftir að hún afhjúpaði nýja Brexit sáttmálann.

May stendur höllum fæti eftir að síðasta útspil hennar klikkar
May virðist hafa mistekist að afla stuðnings á þingi við fjórðu atkvæðagreiðsluna um samkomulag hennar við forsvarsmenn Evrópusambandsins um úrgöngu Bretlands úr sambandinu. Hvorki meðal stjórnarandstöðunnar né eigin þingmanna í Íhaldsflokknum.

Icelandair flutti farþega með Bombardier til Manchester
Flugvélin notuð til að mæta vandanum sem fylgir kyrrsetningu MAX-vélanna.

Gefur þingmönnum lokatækfæri til að afgreiða Brexit
Samþykki þingið nýjan Brexit-sáttmála forsætisráðherrans gæti farið fram þjóðaratkvæðagreiðsla um staðfestingu á honum.

Af hverju kasta mótmælendur mjólkurhristingum í Farage og félaga?
Lögreglan í Edinborg í Skotlandi hefur farið fram á það við skyndibitakeðjuna McDonalds að hætta sölu á mjólkurhristingum í borginni á laugardaginn til þess að koma í veg fyrir að stjórnmálamaðurinn Nigel Farage verði aftur fyrir barðinu á mjólkurhristingsárás.

Árásarmaður Farage ákærður fyrir líkamsárás
Mjólkurhristingi var kastað yfir leiðtoga Brexit-flokksins í Newcastle á Englandi í gær.

Farage ataður mjólkurhristingi í Newcastle
Mjólkurhristingsárásir á frambjóðendur yst á hægri jaðrinum í Evrópuþingskosningum á Bretlandi undanfarið.

Leggja fram formlega beiðni um handtöku
Saksóknari í Svíþjóð hefur farið fram á það við þarlenda dómstóla að gefin verði út handtökuskipun á Julian Assange, stofnanda Wikileaks.

Johnson mælist vinsælastur
Boris Johnson, fyrrverandi utanríkisráðherra Bretlands og einn helsti baráttumaðurinn fyrir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu, mælist með mest fylgi í nýrri könnun YouGov um mögulega arftaka Theresu May sem leiðtogi flokksins.

Sleit viðræðum við May um Brexit
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, tilkynnti nú í morgun að viðræðum hans og Theresu May, forsætisráðherra og leiðtoga Íhaldsflokksins, um úrgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu væri lokið.

May útskýrir leiðtogaval í júní
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hét því í gær að leggja fram áætlun um val á arftaka, það er nýjum formanni Íhaldsflokksins, þegar næsta atkvæðagreiðsla um Brexit-samning hennar er að baki.

Boris Johnson vill verða formaður Íhaldsflokksins
Boris Johnson, fyrrverandi utanríksráðherra Bretlands, mun bjóða sig fram til formennsku í Íhaldsflokknum eftir að núverandi formaður segir starfi sínu lausu.

Sjónvarpsþátturinn umdeildi heyrir sögunni til
Breska sjónvarpsstöðin ITV hefur ákveðið að hætta alfarið framleiðslu á sjónvarpsþættinum The Jeremy Kyle Show eftir að þátttakandi í þættinum lést, um viku eftir að hann féll á lygaprófi við tökur.

Útgöngusamningur May enn fyrir breska þingið
Frumvarp um að leiða útgöngusamninginn í bresk lög verður lagður fyrir breska þingið í byrjun júní.

Féll á lygaprófi í þættinum sem tekinn var af dagskrá
Breskir þingmenn hafa skorað á ITV-sjónvarpsstöðina þar í landi að hætta alfarið við frekari framleiðslu á The Jeremy Kyle Show eftir að karlmaður sem átti að koma fram í þættinum lést.

Dæmd í tíu ára fangelsi fyrir njósnir
Írönsk kona hefur verið dæmd í tíu ára fangelsi í Íran fyrir njósnir fyrir Bretland.

Segir málið tækifæri fyrir Assange til að hreinsa mannorð sitt
Rannsókn hefur verið opnuð á nýjan leik vegna ásakana á hendur Julian Assange um nauðgun.

Fann foreldra sína 33 árum eftir að hafa verið skilinn eftir á flugstöð
Lífsýnarannsókn hefur leitt í ljós að móðir hans er látin en faðir hans er enn á lífi.

Vinsæll breskur þáttur tekinn af dagskrá eftir dauðsfall þátttakanda
Breska sjónvarpsstöðin ITV hefur ákveðið að taka The Jeremy Kyle Show tímabundið af dagskrá á meðan dauðsfall þátttakenda stutti eftir að hann kom fram í þættinum er rannsakað.

Rannsókn á nauðgunarmáli Assange opnuð aftur
Lögmaður konu sem sakar stofnanda Wikileaks um nauðgun fór fram á að rannsókn yrði tekin upp aftur í kjölfar þess að hann er ekki lengur í skjóli í sendiráði Ekvadors.

Björgólfur og Bakkavararbræður á lista yfir ríkustu menn Bretlands
Björgólfur bætir við sig en Bakkavararbræður tapa.

City Englandsmeistari annað árið í röð
Manchester City vann á endanum öruggan sigur á Brighton og varði Englandsmeistaratitilinn.

Silfurkóngurinn hneig niður í miðjum bardaga í London og lést
Mexíkóski glímukappinn og leikarinn Cesar Barron, einnig þekktur sem Silfurkóngurinn, er látinn eftir að hann féll saman á sviðinu í miðjum bardaga í London í gær.

Blússandi sigling á Farage
Allt útlit er fyrir að hinn háværi íhaldsmaður og Brexit-sinni Nigel Farage muni standa uppi sem sigurvegari Evrópuþingskosninganna sem fara fram í Bretlandi þann 23. maí.