
Stjórnsýsla

Íslenskar bókmenntir í bullandi útrás
Fyrri hluti úthlutunar til þýðinga á íslenskum bókum fyrir þetta ár hafa nú farið fram. 54 verk hljóta styrki að upphæð 9 milljónir króna til þýðinga á 15 tungumál.

Aflvaki í skapandi greinum
Aflvaki merkir kraftur sem örvar menn til dáða. Þann 10. maí 2023 sendi Hagstofa Íslands frá sér nýja og uppfærða menningarvísa og upplýsingarnar sem þar koma fram eru sannarlega örvandi fyrir atvinnuveg sem var fyrst skilgreindur í kortlagningu á hagrænum áhrifum skapandi greina á Íslandi árið 2011.

Nicole Leigh Mosty ráðin leikskólastjóri í Vík í Mýrdal
Nicole Leigh Mosty hefur verið ráðin í starf leikskólastjóra leikskólans Mánalands í Vík í Mýrdal.

Innfluttar trjátegundir nauðsynlegar
Framkvæmdastjóri Landsamtaka skógareigenda segir að innfluttar tegundir nauðsynlegar til landgræðslu á Íslandi. Landnýting skipti meira máli en ferðamennska.

Skipanir Karls Gauta og Gríms án hæfisnefndar óvanalegar
Aðeins í tvígang á fimm árum hefur verið skipað í stöðu lögreglustjóra án þess að hæfisnefnd hafi verið skipuð. Í annað skiptið var Karl Gauti Hjaltason, fyrrverandi þingmaður Miðflokksins, skipaður sem lögreglustjóri Vestmannaeyja.

„Við viljum ekki fá að sjá þessar útskýringar“
Stjórnarmaður í eftirlitsnefnd EFTA segir íslensk stjórnvöld oft gerast sek um seinagang þegar kemur að svörum við úrskurðum nefndarinnar. Nefndin fundar með stjórnvöldum hér á landi í næsta mánuði.

Segir hið pantaða álit engan bömmer fyrir stjórnarandstöðuna
Morgunblaðið birti í morgun frétt um lögfræðiálit HÍ undir fyrirsögninni „Tillaga um vantraust misskilningur“. Rætt er við Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra þar sem hann segist ekki hafa brotið þingskaparlög með vísan til álitsins. Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata telur lítið hald í þessu.

Rödd innflytjenda sem virðist aldrei ná áheyrn eða umboði
Það var mjög erfitt að kyngja þeirri ákvörðun sem félags- og vinnumarkaðsráðuneytið tók um að leggja niður Fjölmenningarsetur og færa hlutverk þess undir Vinnumálastofnun. Við upplausn stofnunarinnar var einnig leyst upp eina leiðtogastaðan hjá ríkinu þar sem manneskja af erlendum uppruna með þekkingu og reynslu varðandi inngildingu og málefni innflytjenda starfaði í.

Afturköllun leyfis gæti þýtt bætur til Hvals
Ákvæði stjórnsýslulaga, um tjón leyfishafa, meðalhófsreglu og fleira, eru ástæða þess að Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, afturkallar ekki hvalveiðileyfi Hvals hf. Ákvörðunin hefur verið gagnrýnd í ljósi þess að í leyfinu segir að ráðherra hafi rétt til afturköllunar.

Bein útsending: Ræða framtíð opinberrar skjalavörslu
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis heldur opinn fund í dag þar fyrirkomulag og framtíð opinberrar skjalavörslu verður til umræðu.

Umbæru aldrei slíka meðferð á öðrum dýrategundum
Lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir að Íslendingar myndu aldrei sætta sig við að aðrar dýrategundir væru látnar sæta sömu meðferð og hvalir eins og lýst er í nýrri skýrslu Matvælastofnunar um hvalveiðar. Ráðherra sé skylt að afturkalla veiðileyfi á grundvelli hennar.

„Mér finnst þetta náttúrulega alveg rosalega mikið“
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir starfsmannafjölda ráðuneytanna vera mikinn. Hún gagnrýnir að hið opinbera keppi um starfsfólk við markað og bjóði betri kjör. Ekki sé hægt að horfa fram hjá því að báknið hafi blásið út á vakt Sjálfstæðisflokksins.

Umbi vill skýrari svör frá Bjarna um Íslandsbankasöluna
Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, hefur óskað eftir frekari skýringum af hálfu Bjarna Benediktssonar á hæfi hans en þetta er vegna sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka í mars í fyrra.

Ríflega sjö hundruð manns starfa í ráðuneytunum
Alls starfa ríflega sjö hundruð manns í ráðuneytum ríkisstjórnar Íslands í dag. Starfsmannafjöldinn er mestur í utanríkisráðuneytinu. Erfitt er að bera saman starfsmannafjölda í öllum ráðuneytum milli ára sökum uppstokkunar á ráðuneytum.

Fyrsta þjónustuheimsókn bandarísks kjarnorkukafbáts í dag
Í dag fór fram fyrsta þjónustuheimsókn bandarísks kjarnorkukafbáts í íslenskri landhelgi. Landhelgisgæslan leiddi framkvæmdina í samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og utanríkisráðuneytið. Vel gekk að flytja kost um borð í bátinn.

Rúnar settur forstöðumaður Minjastofnunar til eins árs
Rúnar Leifsson, doktor í fornleifafræði, hefur verið settur tímabundið í embætti forstöðumanns Minjastofnunar Íslands. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur sett hann í embættið til eins árs.

21 vill verða fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins
Utanríkisráðuneytinu barst 21 umsókn um stöðu fjölmiðlafulltrúa ráðuneytisins. Staðan var auglýst þann 22. mars síðastliðinn.

Sigurði meinað að ræða efni bréfs sem hann þó hafði sent þinginu
Samkvæmt gögnum sem Vísir hefur undir höndum og birtir nú má sjá að farnar hafa verið undarlegustu króka- og Krísuvíkurleiðir í stjórnsýslunni til að koma í veg fyrir að nokkuð í greinargerð Sigurðar Þórðarsonar setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol verði gert opinbert.

Teitur aðstoðar Ásmund Einar
Teitur Erlingsson mun taka við Arnari Þór Sævarssyni sem aðstoðarmaður Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra. Teitur mun starfa ásamt Sóleyju Ragnarsdóttur sem er einnig aðstoðarmaður Ásmundar.

Sara Lind sett forstjóri Ríkiskaupa
Fjármála- og efnahagsráðherra setti Söru Lind Guðbergsdóttur sem forstjóra Ríkiskaupa tímabundið eftir að Björgvin Víkingsson lét af störfum um mánaðamótin. Staðan verður að líkindum auglýst á næstunni.

Leiðrétta ofteknar innheimtuþóknanir vegna vangoldinna meðlagskrafa
Innheimtustofnun sveitarfélaga mun leiðrétta ofteknar innheimtuþóknanir vegna vangoldinna meðlagskrafna sem stofnunin innheimti frá nóvember 2018 til desembers 2021. Leiðréttingarnar eru alls 906 og nemur heildarupphæð endurgreiðslna um 70 milljónum króna.

Atli Viðar ráðinn samhæfingarstjóri í móttöku flóttafólks
Atli Viðar Thorstensen hefur verið ráðinn sem samhæfingarstjóri í móttöku flóttafólks hjá forsætisráðuneytinu. Alls sóttu sextán um starfið sem var auglýst í mars síðastliðnum.

Daníel færist á milli skrifstofustjóraembætta
Daníel Svavarsson hefur verið skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu samhæfingar og stefnumála í forsætisráðuneytinu. Daníel mun flytjast úr embætti skrifstofustjóra í menningar- og viðskiptaráðuneytinu.

Kjarnorkuknúnir kafbátar fá að hafa viðkomu við Ísland
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur tilkynnt bandarískum stjórnvöldum að kjarnorkuknúnum kafbátum sjóhers þeirra verður heimilt að hafa stutta viðkomu við Ísland. Kafbátarnir sem fá heimild til að að hafa viðdvöl hér bera ekki kjarnavopn og eru ekki útbúnir til þess. Búist er við að fyrsti kafbáturinn komi á næstunni.

Gísli Snær segir ekki litið til þess hvar eigi að sýna afurðina
Gísli Snær Erlingsson hjá Kvikmyndamiðstöð segir það rangt hjá Magnúsi Ragnarssyni hjá Símanum að horft sé til þess hvar sýna eigi þætti sem styrktir hafa verið af Kvikmyndasjóði. Styrkirnir séu ekki til sjónvarpsstöðvanna heldur er litið fyrst og síðast til möguleika handritsins.

Herðist á rembihnútnum sem Lindarhvolsmálið er í
Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi var gestur á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun. Þar var Lindarhvolsmálið enn og aftur til umfjöllunar.

Landgræðslunni hugnast ekki heitið Land og skógur fyrir sameinaða stofnun
Landgræðslunni hugnast ekki að ný stofnun sem verður til með sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar verði kölluð „Land og skógur“, líkt og lagt er til í samnefndu frumvarpi um hina nýju stofnun.

Tímamót í viðskiptum með fasteignir
Eftir margra ára undirbúning er fyrsta rafræna þinglýsingin í fasteignaviðskiptum orðin að veruleika. Fyrsta afsalinu var þinglýst rafrænt fyrir helgi og gert er ráð fyrir að rafrænar þinglýsingar á kaupsamningum komi með haustinu. Fasteignasali segir að um mikla búbót sé að ræða og að starfsgreinin sé ekki í hættu.

Hæstiréttur tekur mál Amelíu Rose fyrir
Samgöngustofa hefur fengið málskotsbeiðni sína til Hæstaréttar í máli gegn ferðaþjónustufyrirtækinu Seatrips ehf. samþykkta. Hæstiréttur telur dóm í málinu geta haft fordæmisgildi og að á dómi Landsréttar kunni að vera ágallar.

Sagður neita að mæta múlbundinn á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Alþingi kemur saman aftur eftir páskafrí á mánudag og stjórnskipunar og eftilitsnefnd þingsins tekur upp þráðinn í Lindarhvolsmálinu svokallaða. Leynd sem hvílir á greinargerð setts ríkisendurskoðanda er áfram steinn í götu nefndarinnar