
Heilbrigðismál

Eignaðist barn eftir að hafa fengið gjafaegg frá systur sinni
Kona, sem fór í tíu frjósemisaðgerðir og eignaðist loks barn eftir að hafa fengið gjafaegg hjá systur sinni, segir umræðu þarfa um málefnið. Margir fáist við frjósemisvanda sem taki gríðarlega á.

Segir ávinning þess að Sjúkratryggingar niðurgreiði sálfræðikostnað vega upp á móti kostnaði ríkisins
Þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi nema Framsókn eru flutningsmenn frumvarps um að ríkið greiði sálfræðikostnað. Formaður Viðreisnar og fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er afar ánægð með samstöðuna á þinginu og er vongóð um að málið nái fram að ganga. Verði það að veruleika gæti kostnaðurinn numið hundruðum milljóna króna.

Danir hefja framkvæmdir við lagningu 70 kílómetra landamæragirðingar
Danir vonast til að hægt verði að koma í veg fyrir að svínapest berist frá Evrópu og til landsins.

Þriðjungur þingmanna vill að ríkið greiði sálfræðikostnað
Frumvarp í pípunum um að SÍ taki þátt í kostnaði við sálfræðimeðferðir. Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að frumvarpið komi til kasta þingsins.

Telja lyfsala ekki kaupa lyf eftir raunverulegri þörf hér á landi
Frumtök, félag frumlyfjaframleiðenda á Íslandi, telja skort á lyfjum hér á landi mega oft á tíðum rekja til gengisbreytinga íslensku krónunnar og þeirrar reglugerðar að verðskrá lyfjagreiðslunefndar sé gefin út aðeins á mánaðar fresti. T

Hollvinir gáfu HSN nýja íbúð á Blönduósi
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) hlaut veglega gjöf frá hollvinasamtökum sínum á Blönduósi fyrir skömmu.

Segir fréttaflutning af fjölgun HIV-smita villandi
Stór hópur nýsmitaðra í farsóttafréttum landlæknis skýrist af útlendingum, sem nú þegar eru smitaðir, og flytja hingað til lands.

Vinnuálag lækna sýni brot á kjarasamningum
Tæplega helmingur læknanema finnur fyrir einkennum síþreytu, samkvæmt könnun sem var gerð í tengslum við forvarnaverkefni gegn streitu hjá læknum og læknanemum.

Tíðari líffærabilun af völdum sykursýki og áfengisdrykkju
Sjúkdómum sem valda líffærabilunum fer ört vaxandi og þess vegna má búast við því að á næstu árum verði eftirspurnin eftir líffæraígræðslum meiri.

Segir mikil tækifæri fólgin í nýju erfðakorti
Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar sér fram á spennandi tíma og nýjar rannsóknir með útgáfu nýs korts af erfðafræðilegum fjölbreytileika mannskepnunnar.

Verða á bakvakt á vinnustöðinni
Byggðarráð Rangárþings ytra segir að breytt fyrirkomulag sjúkraflutninga í Rangárþing hafi skýrst að nokkru leyti á fundi með forstjóra og hluta framkvæmdastjórnar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands um miðjan mánuðinn.

Halldóra segir kvenfrelsi ekki eiga heima í höndum trúaðra
Yfir 50 umsagnir bárust velferðarnefnd um þungunarrof. Trúaðir hafa mikinn áhuga á málinu en Siðfræðistofnun sendi ekki inn umsögn. Formaður nefndarinnar vill að nefndin fjalli um málið á grundvelli vandaðra gagna.

Mikil fjölgun á lekandatilfellum á síðastliðnu ári
Mikil fjölgun varð á lekandatilfellum árið 2018. Að því er fram kemur í Farsóttarfréttum, fréttabréfi sóttvarnalæknis, var lekandi greindur rúmlega 100 sinnum á liðnu ári.

Ýmsar ástæður fyrir minnkandi frjósemi
Mikil þörf á gjafaeggjum en ársbið er eftir þeim á meðferðarstofu við ófrjósemi að sögn fæðingar-og kvensjúkdómalæknis. Konur hugi of seint að barneiginum á sama tíma og frjósemi hafi minnkað bæði hjá konum og körlum. Umhverfisþættir eins og plast og of mikil seta getur haft áhrif á frjósemi karla.

Frestun barneigna hefur ýmsar afleiðingar
Meðalaldur frumbyrja á Íslandi fer sífellt hækkandi. Í dag er aldurinn rúm 27 ár sem virðist ekki vera svo slæmt en ef litið er til heildarfjölda mæðra þá fer þeim fjölgandi sem eru 35 ára og eldri.

Hælisleitandi á tólfta degi hungurverkfalls: „Ég ætla ekki að borða þar til þau láta sig mál mitt varða“
Rauði krossinn hefur miklar áhyggjur af manninum sem er sárþjáður af gyllinæð. Þá hafa geðheilbrigðismál í hæliskerfinu aldrei verið þyngri.

Lokaþrif um helgina og afhending í lok mánaðar
NLSH tók við verkinu ókláruðu af verktakanum Munck Ísland ehf. vegna ágreinings.

Óttast fjölda umsagna trúfélaga um frumvarp um þungunarrof
Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður Kvenréttindafelags Íslands, er ósátt við að óskað hafi verið eftir umsögnum þrjátíu og fimm trúfélaga um frumvarp um þungunarrof. Hún óttast að neikvæðar umsagnir kunni að hafa áhrif á að frumvarpið verði að lögum.

Þrír af hverjum fjórum læknum opnir fyrir einkarekinni heilsugæslu
76% lækna eru opin fyrir einkarekinni heilsugæslu. Í nýrri könnun kemur fram að tæplega helmingur lækna telur að ekki einungis ríkið eigi að reka sjúkrahús.

Kvíðinn heltók Eymund sem talaði fyrst við son sinn þegar hann var 14 ára
Kvíðinn og óttinn við annað fólk var svo mikill að hann gat ekki hugsað sér að umgangast aðra. Hann hefur aldrei verið í föstu sambandi og myndaði ekki tengsl við son sinn fyrr en strákurinn var orðinn fjórtán ára.

Um helmingur lækna vill endurskoða reglur um frítökurétt
Um helmingur lækna telur að endurskoða þurfi reglur um frítökurétt, samkvæmt nýrri könnun sem var gerð fyrir Læknafélag Íslands.

Telur hugsanlegt að fjöldi Íslendinga fái röng sýklalyf vegna ofnæmisskráningar
Ný grein í Jama bendir til að fjöldi Bandaríkjanna sé rangt greindur með ofnæmi.

Læknar á Íslandi kljást við ofurálag og kulnun
Um helmingur lækna hefur hugleitt það oft eða stundum að láta af störfum. Ný könnun verður kynnt í dag á Læknadögum. Meirihluti finnur fyrir of miklu álagi. Geðlæknir segir upplifun lækna bera merki um ofurálag og jafnvel kulnun.

Tveir af hverjum þremur segjast vera undir ofurálagi
Læknadagar hófust í Hörpu í dag og þar er meðal annars fjallað um nýja og viðmikla könnun á því hvernig læknum líður í vinnunni.

Læknaslagur á Facebook um veipur og rafrettur
Lækna-Tómas og Guðmundur Karl kljást um rafrettur eða veipur.

Meirihluti lækna vill ekki Landspítala við Hringbraut
Yfir 60 prósent lækna telja staðsetningu Landspítala við Hringbraut óheppilega og þörf á nýju staðarvalsmati vegna byggingar nýs spítala.

Íslendingar vanað tíu börn síðustu tuttugu ár
Tíu ófrjósemisaðgerðir hafa verið gerðar á börnum síðustu tuttugu ár að undirlagi lögráðamanna. Nýjasta dæmið er frá tímabilinu 2016-2018 þegar slík aðgerð var gerð á dreng.

Reglugerð ekki verið sett í sex ár
Reglugerð um auglýsingar heilbrigðisstarfsmanna hefur ekki litið dagsins ljós en þá reglugerð átti að setja eftir að lög um heilbrigðisstarfsmenn voru sett árið 2012.

66% lækna segjast vera undir of miklu álagi
Tveir af hverjum þremur læknum segjast vera undir ofurálagi og stór hluti þeirra er með einkenni kulnunar í starfi. Þetta kemur fram í nýrri könnun um líðan og starfsaðstæður lækna.

Fékk tvö hjartaáföll á leið til Íslands
Hjartveikur Bandaríkjamaður tók þá áhættu að ferðast til Íslands á tölvuleikjasamkomu. Hann segist hafa fengið tvö minniháttar hjartaáföll á leiðinni en ferðin hafi samt verið þess virði.