
Heilbrigðismál

Mikil óvissa ríkir um framtíð sjúkraflutninga í Ólafsfirði
Björgunarfélagið Tindur segir að ekki hafi reynst að manna vettvangsliðateymi á sjúkrabílinn í sjálfboðavinnu. Því hefur Tindur sagt sig frá málinu.

Lést af völdum snjall-lyfs
Matvælastofnun og Lyfjastofnun vara nú við neyslu á efninu tianeptine og annarra efna sem seld eru á netinu undir heitinu Nootropics.

Hætta notkun blárra ljósa á salernum
Ljósin eiga að fæla fólk frá því að sprauta sig með fíkniefnum en eru ekki talin skila árangri og auka skaða.

Talinn hafa látist eftir að hafa tekið inn heilaörvandi efni
Matvælastofnun og Lyfjastofnun vara við neyslu á efninu tianeptine og öðrum efnum sem seld eru á netinu undir heitinu Nootropics. Mörg þessara efna hafa lyfjavirkni og eru meðal annars sögð örva heilastarfsemi en talið er að einstaklingur hafi nýlega látist hérlendis eftir að hafa tekið inn tianeptine.

630 milljónir króna í geðheilbrigðisþjónustu
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tilkynnti í gær hvernig 630 milljónum króna af fjárlögum ársins verður ráðstafað til að efla geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu.

Geðheilsuteymi taka til starfa í öllum heilbrigðisumdæmum fyrir lok árs
Heilbrigðisráðherra kveðst ekki óttast að erfitt verði að manna stöðurnar en alls verður 630 milljónum króna varið í að efla geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu.

Reglur um blóðgjafir samkynhneigðra verði rýmkaðar en varlega
Lagt er til að reglurnar verði rýmkaðar eftir eitt til tvö ár svo undirbúa megi breytingarnar vel.

Velti fyrir sér hvort Þórhildur Sunna hefði reynslu af þungunarrofi
Þórhildur Sunna spurði Þorstein að því hvaða forsendur hann teldi sig hafa fyrir því að halda því fram að ákvörðun um að fara í þungunarrof sé öllum konum þungbær.

Smitberinn kom til Íslands frá Filippseyjum
Smitin tvö sem tilkynnt var um í vélum Icelandair og Air Iceland Connect eru því rakin til sama einstaklings.

Mislingar um borð í flugvélum Icelandair og Air Iceland Connect
Mislingasmit kom upp um borð í flugvélum Icelandair og Air Iceland Connect þann 14. og 15. febrúar.

Veldur miklum áhyggjum hvernig íslenskt heilbrigðiskerfi sinnir intersex fólki
Laura Carter, rannsakandi hjá Amnesty International, segir að það valdi miklum áhyggjum hvernig heilbrigðiskerfið á Íslandi sinni intersex fólki en það eru einstaklingar sem fæðast með líffræðileg kyneinkenni sem eru ekki dæmigerð fyrir karlmenn eða konur.

Heilsugæslan ekki nútímafólki bjóðandi
Formaður Félags heilsugæslulækna segir heilsugæslu á sumum svæðum úti á landi ekki nútímafólki bjóðandi. Verið sé að stoppa í göt með afleysingum og skortur sé á læknum. Fjölga þarf læknum um 100 prósent á næstu árum

Sóttvarnalæknir skorar á ráðherra að gera bólusetningu gegn hlaupabólu almenna
Eitt barn lést í fyrra vegna hlaupabólu hér á landi og segir sóttvarnarlæknir að sjúkdómurinn geti orðið mjög alvarlegur og eru nokkur dæmi um að börn hafi þurft að leggjast inn á spítala vegna hans. Embætti landlæknis skorar nú á ráðherra að gera bólusetningu barna gegn hlaupabólu almenna.

Tryggvi fær loksins að snúa heim á Hvolsvöll í haust
Tryggvi Ingólfsson sem hefur verið í stofufangelsi á Landspítalanum í að verða eitt ár fær loksins að snúa heim á Hvolsvöll 1. september næatkomandi. Fer hann á dvalar- og hjúkrunarheimilið Kirkjuhvol þar sem hann hefur búið í ellefu ár eftir að hafa dottið af hestbaki og lamast frá hálsi.

Takmarka áróður gegn bólusetningum á Facebook
Facebook hyggst takmarka áróður gegn bólusetningum á samfélagsmiðlinum. Þetta staðfesti talsmaður fyrirtækisins í gær.

Lækna-Tómas og Jóhannes eftirherma spjalla um líffæraígræðslur
Tómas Guðbjartsson læknir og Jóhannes Kristjánsson eftirherma munu spjalla um líffæraígræðslur og hjartaflutninga í Ásmundarsal klukkan 15 í dag. Aðgangur er ókeypis.

Rosalegt ferðalag fíkils
Nína Dögg hefur slegið í gegn í hlutverki sínu í leiksýningunni Fólk, staðir, hlutir. Hún segir fíkn vera mikið vandamál hér á landi enda þekki hún það í eigin fjölskyldu. Enginn er þar hólpinn og því mikil vægt að hlúa betur að andlegri heilsu.

Kulnun í starfi vaxandi vandamál
Það er fyrst og fremst fólk sem er að vinna með fólk fær kulnun í starfi. Fólk innan heilbrigðisþjónustunnar, kennarar, háskólastarfsmenn, stjórnendur og þeir sem vinna innan félagsþjónustunnar og sögn prófessors og forstöðumanns streiturannsóknarstofnunar Gautaborgar

Fyrirhuguð umferðarlög ógni trúnaði lækna og sjúklinga
Læknafélag Íslands telur frumvarp samgönguráðherra um endurskoðun umferðarlaga vega að trúnaðarsambandi lækna og sjúklinga og gagnrýnir það harðlega í umsögn við frumvarpið. Vill breytingar á frumvarpinu.

Hundruð milljóna króna krafa á RKÍ í Sjúkrabílasjóði en engin endurnýjun bíla
Rúmlega þrjú hundruð og sextíu milljóna króna skuld í ársreikningi Sjúkrabílasjóðs vekur athygli Heilbrigðisráðuneytisins. Rauði krossinn á Íslandi segist ekki vera fá lán úr Sjúkrabílasjóði

Ekki nóg fjármagn til að mæla þungmálma
Ólafur Reykdal og Helga Gunnlaugsdóttir hjá Matís segja skorta gögn og mælingar á óæskilegum efnum og næringarinnihaldi matvæla á Íslandi. Nýleg gögn séu ekki til. Stjórnvöld styðji ekki nægilega vel við slíkar rannsóknir.

Vill banna börnum að skalla fótbolta
Ryan Mason þurfti að leggja fótboltaskóna á hilluna eftir að hafa fengið slæmt höfuðhögg í leik á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Nú ætlar hann að berjast fyrir reglubreytingu í barnafótboltanum í Englandi.

Raunveruleg ógn við heilbrigði
Sandra Mjöll, doktor í líf- og læknavísindum segir nauðsynlegt að geta nálgast aðra, örugga kosti en sýklalyf. Florealis hefur þróað jurtalyfið Lyngonia og er lyfið eina viðurkennda meðferðin við endurteknum þvagfærasýkingum hjá konum sem ekki er hefðbundið sýklalyf.

Vilja afskrá kannabis sem hættulegt fíkniefni
Sérfræðiráð Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um ávanabindandi fíkniefni hefur lagt til endurskoðun á kannabisefnum með það að leiðarljósi að afskrá kannabis úr flokki með hættulegustu fíkniefnum þessa heims.

„Ömurlegt að sjúkraflutningamenn þurfi að vinna á sjúkrabílum sem ekki sé hægt að treysta á“
Nægir fjármunir eru til að endurnýja sjúkrabíla í landinu en deila Heilbrigðisráðuneytisins og Rauða krossins á Íslandi kemur í veg fyrir það.

Jóhanna Fjóla skipuð til eins árs í þriðja skipti
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til eins árs. Jóhanna hefur gegnt starfinu frá 1. febrúar 2017.

Komin á örorkubætur eftir að hafa fengið boltann í höfuðið
Guðrún Ósk Maríasdóttir á erfitt með daglegt líf eftir að fá heilahristing fyrr í vetur.

Verða að upplýsa hverjir tilkynntu meint annarlegt ástand læknis í útkalli
Heilbrigðisstofnun Suðurlands ber að veita lækni aðgang að tveimur tilkynningum um meint annarlegt ástands hans í útkalli vorið 2015. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál.

Fáir tekið afstöðu gegn líffæragjöf
Innan við eitt prósent landsmanna hefur tekið afstöðu gegn líffæragjöf eftir andlát.

Læknar hætti að stimpla mæður móðursjúkar
Konur sem leita til lækna með grun um fötlun eða frávik í þroska ungra barna sinna segja betra að hafa karlmann með í heimsóknina. Þá séu þær síður dæmdar móðursjúkar Því á þá sé frekar hlustað.