Þjóðadeild karla í fótbolta

Leikmaður Englendinga traðkaði á vítapunktinum rétt áður en Birkir steig á punktinn
Ísland var óheppið að ná ekki í stig á móti Englandi í Þjóðadeild UEFA á Laugardalsvelli í dag. Birkir Bjarnason fór á vítapunktinn í lok uppbótartíma leiksins en skaut því miður yfir markið.

Southgate: Heppnir að fara ekki héðan aðeins með eitt stig
Gareth Southgate þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu segir að sínir menn hafi verið heppnir með stigin þrjú úr Laugardalnum í kvöld.

Guðlaugur Victor: Vörðumst eins og kóngar
,,Ég er svona hálf orðlaus einhvernveginn. Eftir þessa liðsheildarframmistöðu, að fá þessa dramatík í endann, fyrst fá þeir víti og svo klúðrum við víti, varð maður hálf svekktur og svo aftur ánægður og svo enn þá meira svekktur. Þannig þetta er mjög erfitt,‘‘ sagði Guðlaugur Victor Pálsson eftir leikinn.

Sjáðu uppgjörsþáttinn um leikinn gegn Englandi
Sérfræðingar Stöðvar 2 Sports fóru yfir frammistöðu Íslands í leiknum gegn Englandi í Þjóðadeildinni.

Vissi að Birkir hefði ekki tekið víti í nokkur ár
Jordan Pickford, landsliðsmarkvörður Englands, viðurkennir að hann hafi haft heppnina með sér að Ísland skyldi ekki ná að jafna úr vítaspyrnu í uppbótartíma á Laugardalsvelli í kvöld.

Kári: Ekkert persónulegt og ekkert stórmál
Kári Árnason átti fínan leik í leiknum gegn Englendingum í dag og stýrði vörninni eins og herforingi með Sverri Inga Ingason sér við hlið.

Hamrén ekki búinn að ákveða hvort hann hóar í annan miðvörð í stað Sverris
Þjálfari íslenska landsliðsins þarf að finna nýtt miðvarðapar fyrir leikinn gegn Belgíu í Þjóðadeildinni á þriðjudaginn.

Hörður Björgvin: Ánægður hvernig við spiluðum allir sem heild
Ísland tapaði með svekkjandi hætti fyrir Englandi í Þjóðadeild UEFA í dag. Lokatölur 0-1 þar sem England skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Birkir Bjarnason klúðraði síðan víti fyrir Ísland á lokamínútu uppbótartímans.

Foden: Þetta var ekki auðvelt
Phil Foden lék sinn fyrsta landsleik fyrir enska A-landsliðið í 1-0 sigrinum á Íslandi í kvöld.

Kári: Hann getur ekki fjarlægt hendurnar
Fyrirliði íslenska liðsins gegn Englandi var ekki sáttur með vítaspyrnuna sem sigurmark enska liðsins kom upp úr.

Sjáðu alla vítadramatíkina undir lok leiksins í Laugardalnum
Það var allt að gerast í lok leik Íslands og Englands þar sem Birkir Bjarnason fékk kjörið tækifæri til að tryggja íslenska liðinu stig.

Hamren: Eitt versta tapið á ferlinum
Erik Hamren, þjálfari íslenska landsliðsins í fótbolta, var ansi vonsvikinn eftir 1-0 tapið gegn Englandi í Þjóðadeildinni í dag.

Guðlaugur Victor bestur: Einkunnir íslensku strákanna í leiknum
Íslenska landsliðið átti góðan leik á móti Englendingum í dag og strákarnir voru svo nálægt því að fá eitthvað út úr leiknum.

Twitter eftir tapið grátlega gegn Englandi: „Walker er með þrjá í greindarvísitölu“
Twitter var eins og svo oft áður lifandi vettvangur yfir landsleikjum Íslands í fótbolta.

Umfjöllun: Ísland 0-1 England | Strákarnir misstu af góðu tækifæri
Baráttuglatt lið Íslands tapaði með sárgrætilegum hætti gegn Englandi, 1-0, með marki Raheem Sterling í lokin á fyrsta leik liðanna í Þjóðadeildinni, á Laugardalsvelli. Englendingar voru manni færri í 20 mínútur og Ísland fékk víti í uppbótartíma.

Sjáðu rauða spjaldið hjá Kyle Walker
Kyle Walker fór snemma í sturtu í leik Íslands og Englands í Þjóðadeildinni og skildi liðsfélaga sína eftir tíu á móti ellefu.

Sjáðu markið hans Harry Kane sem var dæmt af í upphafi leiks
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu slapp með skrekkinn í upphafi leiks á móti Englandi á Laugardalsvellinum í dag.

Ræddi íslenska liðið, leikinn í Nice ásamt ást sinni á land og þjóð
Henry Winter, einn virtasti blaðamaður Englands, var í viðtali við Rikka G fyrir leik Íslands og Englands. Þar fór hann yfir víðan völl.

Íslensku strákarnir krupu með þeim ensku: Sjáðu óvenjulega byrjun leiksins
Allir tuttugu og tveir byrjunarliðsleikmenn Íslands og Englands fóru niður á eitt hné við upphafsflautið á Þjóðardeildarleik liðanna á Laugardalsvellinum í dag.

Albert Guðmundson kemur inn fyrir Kolbein Sigþórsson
Ein breyting hefur orðið á byrjunarliði Íslands fyrir leikinn gegn Englandi í Þjóðadeildinni.

Byrjunarlið Englands: Pickford heldur sæti sínu og Foden byrjar sinn fyrsta leik
Byrjunarlið Englands fyrir leikinn gegn Íslandi á Laugardalsvelli sem hefst nú klukkan 16:00 er komið í hús.

Byrjunarlið Íslands: Hannes í markinu, Kári fyrirliði og Jón Dagur byrjar
Byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Englandi í Þjóðadeildinni er komið í hús. Athygli vekur að Jón Dagur Þorsteinsson byrjar á vinstri væng liðsins. Þá eru tveir leikmenn úr Pepsi Max deildinni í byrjunarliðinu.

Kom einn hingað til lands til að „sjá“ leik Englands og Íslands
Þó engir áhorfendur séu leyfðir á leik Íslands og Englands í Þjóðadeildinni í dag þá gerði samt sem áður einn stuðningsmaður enska liðsins sér ferð hingað til lands.

Southgate segir að England muni ekki vanmeta Ísland
Henry Birgir Gunnarsson ræddi við Gareth Southgate, landsliðsþjálfara Englands, um leik liðsins gegn Íslandi sem fer fram á Laugardalsvelli klukkan 16:00 í dag.

Ekki bara leikur Íslands og England í Þjóðadeildinni í dag: Sjáðu alla leiki dagsins í beinni
Á Vísi í dag verður hægt að sjá hina átta leikina í Þjóðadeildinni fyrir utan leik Íslands og Englands í Laugardalnum.

Hrósar íslenska liðinu: Segir það bæði klókt og ástríðufullt
Rikki G ræddi við Henry Winter, einn virtasta íþróttablaðamann Bretlandseyja, fyrir leik Íslands og Englands í Þjóðadeildinni í dag. Winter starfar í dag fyrir Times Sport.

Íslenska liðið mun krjúpa fyrir stórleik dagsins
Leikmenn íslenska landsliðsins í knattspyrnu munu krjúpa á vellinum fyrir leik Íslands og Englands í Þjóðadeildinni í dag.

„Leið eins og þeir væru að horfa niður til okkar í göngunum fyrir leik“
Ragnar Sigurðsson segir að enska landsliðið hafi litið niður á leikmenn Íslands er liðin mættust í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í Frakklandi sumarið 2016.

Dagskráin: Enska landsliðið mætir á Laugardalsvöll, Þjóðadeildin í fullum gangi og hádegisleikur í Pepsi Max
Íslenska landsliðið í knattspyrnu fær það enska í heimsókn á Laugardalsvelli í dag er liðin mætast í Þjóðadeildinni. Þá eru fleiri leikir í Þjóðadeildinni á dagskrá í dag sem og einn leikur í Pepsi Max deild karla.

Kane feginn að sleppa við að heyra Víkingaklappið
Harry Kane, framherji Tottenham Hotspur og enska landsliðsins, ræddi við Henry Birgi Gunnarsson um leik Íslands og Englands sem fram fer á Laugardalsvelli á morgun.