

Veitingastaðir
Fréttir af starfsemi veitingastaða á Íslandi.

Sötrað á Kalda í tíu ár
Fullt var út úr dyrum á Kalda bar síðastliðið laugardagskvöld þar sem skálað var fyrir tíu ára afmæli staðarins. Bjórsmakk, jazztónlist og dans var í aðalhlutverki þegar tímamótunum var fagnað í blíðskaparveðri í miðbænum.

Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna
Nemendur við Listaháskóla Íslands ráku endahnút á áralanga hefð í dag. Þá fengu þau sér sína hundruðustu, og jafnframt síðustu, pylsu sem nemendur skólans.

Ballið búið fyrir fullt og allt á B5
Dyrunum að skemmtistaðnum B5 hefur verið skellt í lás í hinsta sinn. Eigandi segist nú beina sjónum alfarið að rekstri skemmtistaðarins Exit, og fjörið haldi áfram þar.

Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr
Kaldi bar fagnar tíu ára afmæli í dag og var haldið upp á tímamótin með pompi og prakt. Eigandi staðarins segir vinskapurinn standa upp úr þegar litið er yfir farinn veg.

Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar
Afþreyingar- og veitingastaðurinn Oche sem opnar í Kringlunni í sumar verður fyrsti staðurinn í heiminum með íslensk karaoke lög í boði. Þetta er fullyrt í tilkynningu frá aðstandendum staðarins.

„Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza
Veitingastaður og bakarí opnuðu á ný í Grindavík í dag. Einn eigenda veitingastaðarins vill opna bæinn fyrir öllum sem vilja koma og losna við lokunarpósta sem gagnist engum.

Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný
Veitingastaður og bakarí í Grindavík voru opnuð á ný í Grindavík í dag. Lögreglustjórinn telur viðbragðsaðila hafa ágætis tíma til að rýma bæinn komi til nýs eldgoss á svæðinu.

Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti
Haraldur Þorleifsson hefur lokað veitingastað sínum Önnu Jónu á Tryggvagötu. Hann segist enn vera að melta hlutina en segir ákvörðunina vera gríðarlega mikinn létti. Erfitt rekstrarumhverfi hafi spilað sinn þátt.

Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný
Wilson‘s Pizza mun opna aftur á Íslandi á morgun eftir níu ára fjarveru á markaði. Staðurinn verður staðsettur í Minigarðinum í Skútuvogi í Reykjavík.

Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu
Ferðamenn fá leyfi til þess að fara til Grindavíkur en eingöngu í skipulögðum rútuferðum á veitingastaði samkvæmt nýjum reglum sem lögreglan hefur gefið út. Aðkomufólki verður áfram bannað að ferðast á eigin vegum til bæjarins.

Bassi Maraj og Patrekur í svínslegu stuði
Veitingastaðurinn Sæta svínið fagnaði átta ára afmæli sínu miðvikudaginn 10. apríl þar sem tónlist, glimmer, sirkus og svínslegt stuð setti sterkan svip á viðburðinn. Fjöldi gesta mætti og samfögnuðu tímamótunum.

Spánski verður Daisy
Spánski barinn að Ingólfsstræti 8 mun heyra sögunni til. Í hans stað mun koma barinn Daisy, að sögn nýrra eigenda.

Óvenjumiklar sveiflur í neysluvenjum viðskiptavina Domino's
Árið 2023 í rekstri Domino‘s litaðist af óvenjumiklum sveiflum í neysluvenjum fólks og krefjandi rekstrarumhverfis. „Það er ljóst að hækkun bæði verðbólgu og stýrivaxta hafði þau áhrif að viðskiptavinir leituðu í auknum mæli í ódýrari kosti á matseðli,” segir forstjóri Domino‘s.

Bjóða ókeypis vín gegn því að símar séu læstir inni í skáp
Á veitingastað í borginni Verona á Ítalíu býðst gestum ókeypis vínflaska með matnum gegn því að þeir læsi farsíma sína í skáp við komu á veitingastaðinn og afhendi þjóni lyklana.

Dyravörður á Hax handtekinn
Dyravörður á skemmtistaðnum HAX í miðbæ Reykjavíkur var handtekinn í nótt, grunaður um líkamsárás. Lögregla var með mikinn viðbúnað vegna málsins en henni barst tilkynning um hugsanlega stunguárás og slagæðablæðingu. Svo reyndist þó ekki vera.

Íslenskur veitingastaður slær í gegn í Danmörku
Fyrir rúmum tveimur árum ákváðu Geir Magnússon og Elín Fjóla Jónsdóttir að rífa sig upp með rótum og flytja búferlum til Danmerkur ásamt fimm börnum. Þau voru ekki með neina fasta vinnu í hendi og renndu blint í sjóinn. Í dag reka þau veitingastaðinn Esja Bistro sem er orðinn þekktur sem „íslenski veitingastaðurinn“ í bænum Hobro á Jótlandi.

Var orðinn blankur og veðjaði á litla, hrörlega húsið
Lítið hús við Geirsgötu 1, sem nú hýsir hamborgarastaðinn Búlluna, var að hruni komið þegar Tómas Tómasson ákvað að hefja þar veitingarekstur árið 2004. Húsið er orðið eitt helsta kennileiti hafnarsvæðisins og á sér áhugaverða sögu.

Gafst ekki upp
Fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson gefst ekki upp þó á móti blási. Hann sló í gegn með hönnunarfyrirtæki sínu JÖR sem hann stofnaði ásamt Gunnari Erni Petersen fyrir nokkrum árum.

Óhefðbundinn páskamatseðill að hætti Sigurðar Laufdal á OTO
Sigurður Laufdal, matreiðslumaður og eigandi veitingastaðarins OTO við Hverfisgötu, deilir hér þriggja rétta óhefðbundnum páskamatseðli með lesendum Vísis. Réttirnir eru sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana og geta verið skemmtileg áskorun fyrir þá sem vilja prófa sig áfram í eldamennskunni.

Lok, lok og læs hjá Gló
Veitingastaðnum Gló verður lokað í dag og lýkur þar með sautján ára rekstrarstögu hans. Gló hefur verið rekið í Austurstræti og Fákafeni undanfarin ár. Vinsælar vörur Gló verða áfram í boði á matseðli Saffran sem tekur við rekstri veitingastaðanna.

Skál flytur úr mathöllinni
Veitingastaðurinn Skál sem hefur verið til húsa í mathöllinni á Hlemmi verður fluttur á næstunni að Njálsgötu 1. Skál hefur verið mjög vinsæll síðustu árin og hlaut meðal annars Bib Gourmand-viðurkenningu Michelin.

Hætta með Pizzavagninn eftir tuttugu ára rekstur
Petrína og Björgvin Þór hafa ekið Pizzavagninum um uppsveitir Árnessýslu í tuttugu ár en ætla að hætta rekstri í vikunni. Óvissa er um það hvort einhver taki við rekstrinum. Pizzavagninn verður á balli á Flúðum á miðvikudaginn og hættir eftir það.

Fullkomlega ærandi að vita ekki hvernig jakkinn komst hinumegin á hnöttinn
Fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson, vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar hann fékk skilaboð frá eiganda JÖR jakka sem bjó í eyju sunnan við Síle í Suður-Ameríku. Sá hafði keypt flíkina á fatamarkaði og hafði svo uppi á Gumma á samfélagsmiðlum.

Myndaveisla: Brynja, Bent og Birta á Bryggjunni
Húsfyllir var á veitingastaðnum Bryggjan Brugghús á dögunum þegar argentíski bruggmeistarinn Arturo bauð gestum að smakka tvær nýjar bjórtegundir frá staðnum.

Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's
Leyfi Domino‘s á Íslandi á vörumerkinu Megaviku rann út í fyrra og sótti fyrirtækið ekki um endurnýjun á tilsettum tíma. Ólafur Friðrik Ólafsson, eigandi Pizzunnar, sá sér leik á borði og sótti um skráningu á vörumerkinu í gegnum hlutafélagið Kjútís. Ekki er enn komin niðurstaða í málið.

Davíð lofaði bót og betrun en hélt uppteknum hætti
Nágrannar veitingastaðarins Pho Víetnam í kjallaranum á Laugavegi 27 kvörtuðu ítrekað undan því að staðurinn bryti í bága við starfsleyfi, mikil lykt bærist frá staðnum og hávaði væri of mikill. Endurtekið lofaði eigandi staðarins að starfrækja kaffihús eins og leyfi var fyrir en hélt svo uppteknum hætti við að selja heita rétti. Þá opnaði hann staðinn þrátt fyrir að honum hefði verið lokað af eftirlitinu.

Segir yfirmann hjá Subway hafa fylgst stöðugt með sér í gegnum myndavélar
Rekstraraðila Subway á Íslandi, Stjörnunni ehf., hefur verið gert að greiða 1,5 milljóna stjórnvaldssekt vegna vöktunar yfirmanns á starfsmanni Subway. Þetta ákvarðaði Persónuvernd.

Pizza King til sölu á þrettán milljónir
Rekstur veitingastaðarins Pizza King, sem staðsettur er við Skipholt 70, er til sölu. Ásett verð eru þrettán milljónir.

Múlakaffi opnar dyrnar í Sjálandi
Fjölskyldan í Múlakaffi hefur tekið við rekstri veitingastaðar og veislusalar í Sjálandi í Garðabæ sem ber sama heiti. Til stendur að reka líkamsræktarstöð World Class á svæðinu eftir tvö ár.

Leigusamningum Davíðs á Tryggvagötu og Vesturgötu rift
Fjelagið eignarhaldsfélag ehf. hefur rift leigusamningum, sem það hafði gert við Vietnamese Cuisine ehf. Síðarnefnda félagið er í eigu Davíðs Viðarssonar, sem situr nú í gæsluvarðhaldi ásamt fimm öðrum og er grnaður um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi.