
Bjart veður framan af degi um sunnanvert landið
Útlit er fyrir bjart veður framan af degi um landið sunnanvert, en vindur verður hægari um allt land en í gær. Eins verður minni ofankoma fyrir norðan og austan.
Útlit er fyrir bjart veður framan af degi um landið sunnanvert, en vindur verður hægari um allt land en í gær. Eins verður minni ofankoma fyrir norðan og austan.
Veðurstofan spáir norðanátt í dag, víða kalda eða strekking, en hvassara á stöku stað í vindstrengjum sunnan undir fjöllum.
Eftir milda og rólega tíð í síðustu viku hefur kalt heimskautaloft nú borist yfir landið úr norðri. Búast má við köldu veðri út vikuna.
Veðurstofan spáir norðaustanátt á landinu í dag, yfirleitt átta til fimmtán metrar á sekúndu, þar sem hvassast verður við Breiðafjörð og á sunnanverðu Snæfellsnesi.
Spáð er vestlægri átt, 3 til 8 m/s, en austan 8 til 13 á Norðausturlandi. Rigning með köflum og hiti 1 til 7 stig, en snjókoma og vægt frost austanlands.
Eftir fremur hægviðrasama viku nálgast lægð landið úr suðvestri með suðaustan strekking og rigningu.
Veðurstofan spáir hægri sunnanátt í dag þar sem hiti fer upp í þrjú til átta stig en á Austfjörðum verður hiti nálægt frostmarki.
Veðrið lék við landsmenn á suður- og vesturhorni landsins í dag á þessum síðasta degi marsmánaðar.
Einni verðmætustu loðnuvertíð Íslandssögunnar er lokið og er áætlað að afurðirnar skili um 55 milljarða króna gjaldeyristekjum. Vestmannaeyjar halda áfram stöðu sinni sem stærsta loðnuverstöð landsins.
Veðurstofan spáir frekar rólegu veðri í dag og á morgun þar sem reiknað er með vestlægum áttum og að skýjað verði að mestu.
„Í dag má búast við hinu ágætasta veðri.“ Þannig hefst dagleg hugleiðing veðurfræðings á vef Veðurstofunnar í dag.
Blautasti marsmánuður sögunnar í Reykjavík er nú senn á enda. Veðurfræðingur segir að vætutíðinni sé svo gott sem lokið, en úrkomumet var slegið í mánuðinum í höfuðborginni.
Veðurstofan þarf að bæta upp tæplega 130 milljóna króna halla á næstu tveimur árum en starfsmenn telja niðurskurðaraðgerðir koma verulega niður á getu stofnunarinnar til að sinna brýnum verkefnum. Sérfræðingur á Veðurstofunni telur ljóst að auka þurfi fjármagn til stofnunarinnar í stað þess að skera niður.
Úrkoma í Reykjavík hefur aldrei verið meiri í marsmánuði en í ár, þótt mánuðurinn sé ekki enn á enda runninn.
Veðurstofan gerir ráð fyrir að það ætti að verða skínandi veður í flestum landshlutum og ætti sólin að njóta sín stóran hluta dagsins.
Vegagerðin á mikið verk fyrir höndum eftir leysingaflóðin um helgina. Mestar skemmdir urðu á veginum um Geldingardraga og í uppsveitum Borgarfjarðar. Í gær mældist þá mesta rennsli í Ölfusá í níu ár.
Sólin er á leiðinni í heimsókn til Íslands. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hjá Bliku varar við komu hinnar gulu í færslu á Facebook-síðu sinni. Í gríni segir hann um gula viðvörun að ræða.
Veðurstofan spáir austanátt í dag, víða kalda eða stinningskalda en hægara um landið norðaustanvert. Reikna má með dálítilli slyddu eða rigningu öðru hverju á Suður- og Suðvesturlandi og verður hiti á bilinu núll til fimm stig.
Gífurlegir vatnavextir hafa unnið skemmdir á vegum í Borgarfirði um helgina og göngustígar eru komnir á kaf á höfuðborgarsvæðinu. Þar þrefaldaðist rennslið í Bugðu í Norðlingaholti í gær.
Mikið vatn er í Elliðaám þessa stundina og áin flæðir yfir bakka sína, meðal annars í Víðidal við Breiðholtsbraut. Við Norðlingaholt og Rauðhóla eru stór gróðurlendi á kafi.
Það hlýtur að teljast vorboði að átján stiga hiti hafi mælst á miðnætti á Kvískerjum undir Vatnajökli. Nú mun hins vegar taka að kólna og það frystir víða á landinu í dag.
Búast má við sunnan- og suðvestan strekkingi í dag og hvössum vindstrengjum við fjöll norðantil á landinu í dag. Þá er vætusamt og hlýtt í veðri en úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi.
Skil mjakast norðaustur yfir landið í dag og fylgja þeim austan og suðaustan tíu til átján metrar á sekúndu og slydda eða snjókoma. Reikna má með hægari vindi um landið austanvert og að víða verði vægt frost.
Dálítil lægð gengur nú norðaustur yfir landið og spáir Veðurstofan að víða megi gera ráð fyrir suðvestan átta til fimmtán metrum á sekúndu fyrri part dags og rigning eða súld með köflum. Hiti verður á bilinu tvö til tíu stig.
Reikna má með norðaustanátt í dag, víða fimm til þrettán metrum á sekúndi. Sums staðar verður rigning sunnanlands en él fyrir norðan.
Veðurstofan spáir suðlægri átt, þrír til tíu metrar á sekúndur í dag, en á Vestjförðum má reikna með að allhvöss norðaustanátt verði ríkjandi. Spáð er rigningu eða súld með köflum en slyddu eða snjókomu fyrir norðan.
Veðurstofan spáir austlægri átt í dag með slyddu eða rigningu á sunnanverðu landinu, en þurrt fram eftir degi fyrir norðan.
Reikna má með hvassri sunnanátt eða stormi á austanverðu landinu, hlýindi og rigning suðaustanlands framan af morgni, en lægir síðan, léttir til og kólnar. Annars vestlæg átt með éljum og hita nærri frostmarki.
Það eru víðar appelsínugular viðvaranir en hér á Íslandi þessi dægrin. Á austurströnd Spánar hefur fólk verið varað við að vera mikið á ferli utandyra í liðinni viku, af því að himinninn er bókstaflega appelsínugulur og loftgæðin eru talin hættuleg. Ástæðan er rauðleitur sandur frá Afríku sem þyrlast inn yfir strendur Spánar.
Gul veðurviðvörun er í gildi á Norðurlandi eystra og á Austurlandi að Glettingi. Varað er við töluverðu hvassviðri og snögghlýnun síðar í dag sem getur valdið miklum leysingum.