Endurgreiðum ungu fólki og barnafjölskyldum lóðaverð Hafnarfjörður hefur setið eftir síðustu ár þegar kemur að íbúafjölgun og árangri í húsnæðismálum. Staðreyndin er sú að það er alvarlegur skortur á húsnæði í Hafnarfirði sem stendur í vegi fyrir vexti sveitarfélagsins. Skoðun 8. febrúar 2022 17:31
Helga Hauksdóttir vill leiða lista Framsóknar í Kópavogi Helga Hauksdóttir gefur kost á sér í oddvitasæti Framsóknar í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnakosningar. Á yfirstandandi kjörtímabili hefur hún verið varabæjarfulltrúi, formaður skipulagsráðs, formaður svæðisskipulagsnefndar og stjórnarformaður Markaðsstofu Kópavogs. Innlent 8. febrúar 2022 14:16
Áföll í barnæsku tengd geðheilsuvanda og heilsubrest á fullorðinsárum Á dögunum voru kynntar nýjar niðurstöður rannsóknar Áfallasaga kvenna sem sýna að sterk tengsl eru á milli fjölda áfalla í æsku og geðheilsuvanda og skertrar getu til að takast á við áskoranir daglegs lífs á fullorðinsárum. Rétt er að taka fram að rannsóknin er ein sú stærsta sinnar tegundar á heimsvísu. Skoðun 8. febrúar 2022 13:31
Davíð Arnar vill leiða lista VG í Hafnarfirði Davíð Arnar Stefánsson sækist eftir að leiða lista Vinstri grænna í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum sem fram fara 14. maí næstkomandi. Innlent 8. febrúar 2022 12:52
Átta bjóða sig fram í forvali Vinstri grænna í Reykjavík Átta verða í framboði í rafrænu forvali Vinstri grænna í Reykjavík sem fer fram dagana 2. til 5. mars næstkomandi. Innlent 8. febrúar 2022 11:22
Garðabær; blandað búsetuform vaxandi miðbær og sveit í borg Í Garðabæ er forgangsverkefni að ljúka Garðatorgi sem glæsilegum miðbæ. Bjóða áfram blandað búsetuform og öflugar tengingar við hverfi og náttúru. Hér má t.d. horfa til Álftaness sem varðveitir sveit í borg og Urriðaholts sem þarf að tengja betur með öruggum stígum. Skoðun 8. febrúar 2022 10:31
Múlaþing gerir vel í leikskólamálum Mikil umræða hefur verið í fjölmiðlum hvernig sveitarfélög víðsvegar yfir landið standa að vistunarúrræðum fyrir börn að loknu fæðingarorlofi. Algengast er að að báðir foreldrar séu útivinnandi og skiptir þá miklu máli fyrir foreldra að fá vistunarúrræði fyrir börn sín þegar fæðingarorlofi líkur til að komast út á vinnumarkaðinn. Skoðun 8. febrúar 2022 09:00
Álftamýri / Bólstaðarhlíð Á milli íbúagatnanna Bólstaðarhlíðar og Álftamýrar liggur Kringlumýrarbraut. Fimm akreina stofnbraut sem aðgreindar eru fyrir miðju með grindverki. Göturýmið er breitt og til hliðar við götuna er gróskumikill gróður sem afmarkar skýran jaðar aðliggjandi íbúðarhverfa. Skoðun 8. febrúar 2022 07:30
Andrés vill 2. sæti á lista VG í borginni Andrés Skúlason hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti í forvali Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs fyrir komandi borgarstjórnarkosningar þann 14. maí. Innlent 8. febrúar 2022 07:29
Hvað með Kjalarnesið? „Strætó er annt um íbúa á Kjalarnesi og möguleika þeirra til að komast á milli staða,“ sagði í færslu Strætó bs. í janúar 2016 en því miður er sannleikurinn sá að íbúar á Kjalarnesi hafa ekki orðið varir við umrædda umhyggju Strætó á þeim sex árum síðan færslan var skrifuð. Skoðun 7. febrúar 2022 17:01
Kosningastjóri síðast fer nú sjálf í framboð Sandra Hlíf Ocares gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og sækist eftir 3. sæti. Sandra Hlíf er fædd árið 1980, lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hlaut lögmannsréttindi. Innlent 7. febrúar 2022 15:50
Björgvin vonarstjarna Framsóknar í borginni Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörður í handbolta ætlar að gefa kost á sér í fyrsta til annað sæti hjá Framsóknarflokknum í Reykjavík. Frá þessu greinir hann á Facebook-síðu sinni en fram hafði komið að hann lægi undir feldi og íhugaði að bjóða fram krafta sína. Innlent 7. febrúar 2022 13:41
Í brýnni þörf er best að bíða! Þann 8. júní árið 2021 var mikill gleðidagur í Garðabæ. Þá var vinningstillaga á hönnun nýs leikskóla í Urriðaholti kynnt. Þarna skyldi rísa 6 deilda leikskóli ætlaður 120 börnum 12 mánaða og eldri. Allt klappað og klárt og næsta skref að undirbúa útboðsgögn og koma byggingunni í framkvæmd því ekki veitti af. Og enn veitir ekki af. Skoðun 7. febrúar 2022 09:00
Á besta aldri í Reykjavík Gott samfélag er samfélag þar sem gott er að eldast; þar sem eldri borgarar eru sjálfs sín ráðandi og taka sjálfir ákvarðanir um eigin mál. Öll eigum við að njóta virðingar, öryggis og tækifæra óháð aldri, kyni, uppruna, fötlun, holdarfari, kynhneygð og svo framvegis. Skoðun 7. febrúar 2022 08:31
Hverjir eru þingmenn Sósíalista? Í síðustu kosningum vöktu Sósíalistar verðskuldaða athygli. En árangurinn varð ekki sá sem útlit var fyrir og Sósíalistar fengu engan þingmann. Framboð þeirra hafði engu að síður þó nokkur áhrif á niðurstöður kosninga. Skoðun 7. febrúar 2022 07:01
Sigvaldi vill 2.-3. sæti hjá Sjálfstæðismönnum í Kópavogi Sigvaldi Egill Lárusson, fjármála- og rekstrarstjóri Hafrannsóknastofnunar, hefur tilkynnt um framboð sitt í 2. - 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, sem fram fer 12. mars næstkomandi. Innlent 6. febrúar 2022 09:31
Ásgeir Sveinsson vann prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ Ásgeir Sveinsson sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar með 697 atkvæði eða 69% gildra atkvæða þegar öll atkvæði höfðu verið talin. Innlent 6. febrúar 2022 00:01
Stóri draumurinn um meginlandið Hver hefur ekki vaknað í borg á meginlandinu, skroppið út á götu og sótt sér nýbakað bakkelsi og gott kaffi á einu horni og bók í bókabúð á öðru horni? Hoppað síðan í næsta vagn sem kemur með stuttu millibili, hvort sem það er til að heimsækja listasafn eða bara niður í bæ? Skoðun 5. febrúar 2022 16:01
Dagur segir hvergi hafa borið skugga á meirihlutasamstarfið en Viðreisn heldur öllu opnu Oddvitar þeirra fjögurra flokka sem mynda meirihluta í borginni, Samfylkingar, Viðreisnar, Vinstri grænna og Pírata segja samstarfið hafa gengið vel og myndu vilja halda því áfram. Oddviti Viðreisnar ítrekar að samstarfið sé gott en er sá oddviti sem sker sig úr um að leggja áherslu á að flokkurinn gangi óbundinn til kosninga. Innherji 5. febrúar 2022 15:01
Markviss uppbygging íbúðarhúsnæðis greiðir fyrir umferð á höfuðborgarsvæðinu Ekkert sveitarfélag á landinu hefur lagt jafn mikla áherslu á að skapa umgjörð fyrir uppbyggingu óhagnaðardrifis húsnæðis fyrir jafn fjölbreytta hópa eins og Reykjavík. Meirihlutinn í borginni hefur leitt þær breytingar á meðan sveitarfélögin í Kraganum hafa varla lyft litla fingri í húsnæðismálum. Skoðun 5. febrúar 2022 11:01
Frítt í stætó tífaldar notkun 61% vilja ekki borgarlínu Það dró heldur betur til tíðinda í líðandi viku. Í kjölfar greinar minnar Segi það aftur: Frítt í strætó - Vísir (visir.is) sem birt var mánudaginn 31.janúar var efni greinarinnar tekið til umfjöllunar miðvikudaginn 02.febrúar í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Skoðun 5. febrúar 2022 09:01
Hafnarfjörður til framtíðar Markvisst hefur verið unnið að því á kjörtímabilinu að halda álögum á íbúum í lágmarki og sérstaklega hefur verið horft til barnafjölskyldna með það að markmiði að létta þeim róðurinn. Það hefur tekist og er óumdeilt. Skoðun 5. febrúar 2022 08:01
Handboltakempa ætlar sér fyrsta sætið Heimir Örn Árnason, fyrrverandi handboltakempa og stjórnandi í Naustaskóla á Akureyri, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Innlent 4. febrúar 2022 16:59
Hjördís Ýr Johnson gefur kost á sér í 2. sætið Hjördís Ýr Johnson gefur kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi 12. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hjördísi. Innlent 4. febrúar 2022 16:31
Stefán Pálsson ætlar fram fyrir VG í borginni Stefán Pálsson sagnfræðingur, bjórsérfræðingur og pistlahöfundur stefnir á annað sætið í forvali Vinstri grænna í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þetta herma öruggar heimildir Innherja. Innherji 4. febrúar 2022 15:43
Mun Borgarlínan setja sveitarfélög og höfuðborg skáhallt á hausinn? Þessi spurning kom upp í samtali í vinahópnum og leitast ég hér við að svara henni út frá þeim kostnaði og afleiddum kostnaði sem af henni hlýst. Skoðun 4. febrúar 2022 15:01
Kjartan Magnússon vill annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Kjartan Magnússon, varaþingmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi, gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og sækist eftir öðru sæti listans. Innlent 4. febrúar 2022 14:19
Stórt verkefni – skammur tími Hringrásarhagkerfið er nær okkur en margir gera sér grein fyrir. Það var í raun leitt í lög á alþingi og nú er það hlutverk Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga og fylgja lögunum eftir. Þetta kallar á samhent viðbrögð og vinnusemi. Skoðun 4. febrúar 2022 12:31
Hverfakórar í Reykjavík – aukum aðgengi barna að tónlistarnámi Í Reykjavík blómstrar öflugt tónlistarlíf sem hefur hlotið verðskuldaða athygli á heimsvísu. Rannsóknir sýna fram á ótvíræðan ávinning barna af því að stunda tónlistarnám. Í dag fer fram eins öflugt tónlistaruppeldi og tök eru á bæði innan leik- og grunnskóla, skólahljómsveita og tónlistarskóla. Skoðun 4. febrúar 2022 10:01
Þórdís Lóa staðfestir oddvitaframboð Þórdís Lóa býður sig fram í fyrsta sæti til að leiða lista Viðreisnar í prófkjöri flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Innherji 4. febrúar 2022 08:45
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent