Innlent

Bein út­sending: Stormur við setningu ASÍ-þings

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Barátta verður bæði um embætti forseta ASÍ og varaforseta. Á myndinni má sjá Arnald Grétarsson og Georg Pál Skúlason sem báðir bjóða sig fram í embætti forseta ASÍ. Halla Gunnarsdóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir sækjast eftir embætti fyrsta varaforseta ASÍ. 
Barátta verður bæði um embætti forseta ASÍ og varaforseta. Á myndinni má sjá Arnald Grétarsson og Georg Pál Skúlason sem báðir bjóða sig fram í embætti forseta ASÍ. Halla Gunnarsdóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir sækjast eftir embætti fyrsta varaforseta ASÍ.  Vísir

47. þing Alþýðusambands Íslands hefst í dag. Vísir verður í beinni í dag frá þinginu auk þess sem fylgjast má með streymi af málþingi sem fram fer í dag frá tíu til eitt í hátíðarsal Hilton Reykjavík.  

Yfirskrift þingsins að þessu sinni er „Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu.“ Þar verður horft fram á veginn og rætt hvernig verkalýðshreyfingin ætlar að mæta þeim áskorunum sem fylgja tækni- og loftslagsbreytingum. 

Mikil spenna er fyrir landsþinginu en formaður Eflingar hefur sakað formann VR um að ætla að sölsa undir sig ASÍ með tillögu um fækkun varaforseta. Tómas Arnar Þorláksson fréttamaður verður á þinginu í beinni útsendingu á Vísi og mun grípa helstu leikendur í viðtöl þegar tíðindi berast.

Fylgjast má með útsendingu Vísis hér fyrir neðan. Hún hefst rétt rúmlega 9:30. Neðar í fréttinni má skoða streymi frá ASÍ.

Meðal ræðumanna á málþinginu eru Mariana Mazzucato, prófessor við University College London og einn þekktasti hagfræðingur samtímans, og Luc Triangle, aðalframkvæmdastjóri Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC), sem er málsvari um 200 milljóna launafólks um allan heim. Bæði flytja þau fjarerindi. Rætt verður um hvernig gervigreind mun breyta störfum og réttindum launafólks, hvort hún skapi ný tækifæri eða nýjan ójöfnuð, og hvaða möguleika fólk á Íslandi hefur til að bæta kjör sín milli kynslóða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×