Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. október 2026 16:06 Formennirnir bjóða sig báðir fram í fyrsta varaforseta. Formaður Eflingar segir það blákalda og augljósa staðreynd að formaður VR reyni að sölsa undir sig ASÍ með tillögu sinni um fækkun varaforseta. Formaður VR segir um að ræða samsæriskenningar, núverandi fyrirkomulag sé ólýðræðislegt. Útlit er fyrir spennandi landsþing ASÍ.
Þingið hefst á morgun og fer fram á Hilton Reykjavík. Meðal þess sem greidd verða atkvæði um er tillaga VR um að fækka varaforsetum ASÍ úr þremur og í einn. Þá verða greidd atkvæði um nýjan forseta ASÍ og nýja varaforseta. Formenn Eflingar og VR Hafa farið mikinn undanfarna daga í aðdraganda þingsins og báðar bjóða þær sig fram til fyrsta varaforseta. Formaður Eflingar meðal annars sakað formann VR um að ætla að sölsa undir sig ASÍ vegna tillögunnar um fækkun forseta. Báðir formenn skrifa í dag færslur um landsþingið á morgun. Hafi óttast að deilur um forsetaembættin myndu taka yfir þingið Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar rifjar upp aðdraganda deilunnar um fækkun varaforseta í Facebook færslu sinni. Hún segir að á fundi í miðstjórn ASÍ í sumar hafi hún sagt að stjórn Eflingar hefði áhyggjur af stöðunni sem kæmi upp ef varaforsetum yrði fækkað. „Ég óskaði eftir því að fært yrði til bókar að ég og stjórn Eflingar værum mjög ósáttar við niðurstöðuna og að við óttuðumst að deilur um fjölda varaforseta myndu taka yfir þingið. Var það gert eins og sjá má í umræddri fundargerð,“ skrifar Sólveig Anna. Hún hafi gefið kost á sér í embætti fyrsta varaforseta og stillt upp af félögum með beina aðild að sambandinu. Sólveig Anna segir að Halla Gunnarsdóttir formaður VR hafi tilkynnt að hún gæfi kost á sér í embætti varaforseta en að ekki skipti máli hvert af embættunum væri um að ræða. Nú hafi það breyst, Halla hafi tilkynnt að hún bjóði sig fram sem fyrsta varaforseta. „Staðan er því sú að meðlimur í VR, Arnaldur Grétarsson, býður sig fram með stuðningi formanns VR til forseta ASÍ, formaður VR býður sig fram í embætti fyrsta varaforseta, og talar jafnframt fyrir því að varaforsetum verði fækkað úr þremur í einn. Með þessu reynir forysta VR að tryggja að formaður Eflingar, langstærsta félags verka og láglaunafólks á Íslandi með 28.000 meðlimi, hafi um fátt annað að ræða en að draga sig í hlé á vettvangi sambandsins. Ég sagði um daginn að formaður VR reyndi nú að sölsa undir sig ASÍ. Fólk hefur reynt að láta eins og það sé hugarburður í mér. Svo er ekki – það er bláköld og augljós staðreynd.“ Núverandi fyrirkomulag sé þvert á móti ólýðræðisleg Halla Gunnarsdóttir formaður VR segist í færslu á Facebook ekki vita hversu mikinn áhuga alþýða manna hafi á fjölda varaforseta Alþýðusambandsins, hún haldi að fjöldi þeirra snerti líf almenns launafólks lítið en þar sem umræðan sé farin af stað hafi henni þótt rétt að leggja orð í belg. „Í gegnum söguna hefur einn varaforseti dugað sambandinu ágætlega en sem viðleitni til að leysa úr ágreiningi um titla og völd hefur þeim verið fjölgað og hafa sl. sex ár verið þrír. Hugmyndin með því var að þeir kæmu frá ólíkum starfsgreinum (verslunarfólk, verkafólk, iðnaðarmenn) og mynduðu einhvers konar forsetateymi sem fundaði sérstaklega og legði línurnar.“ Lögum ASÍ samkvæmt eigi ábyrgðin á daglegu starfi sambandsins heima í miðstjórn, ekki í litlu teymi varaforseta. Í miðstjórn komi saman fulltrúar allra landssambandanna sem myndi ASÍ og félaga með beina aðild. „Þess vegna er ótrúlega undarlegt að lesa samsæriskenningar um að fækkun varaforseta gæti leitt til þess að sjónarmið einhverra hópa innan ASÍ verði jaðarsett. Þvert á móti þá er hugmyndin um lítið forsetateymi ólýðræðisleg og til þess fallin að fækka þeim röddum sem nauðsynlegt er að hafi áhrif á alla stefnumótun og daglegan rekstur ASÍ. Að vísu hefur röddum verkafólks fækkað innan miðstjórnar eftir að Efling gekk úr SGS, en svo virðist sem félagið þiggi eingöngu eitt sæti af tveimur mögulegum við borðið og leggur ekki til neina varamenn. Hvers vegna svo er veit ég ekki.“ Þá segir Halla heildarkostnað af launum varaforseta vera fjármagn sem mætti vel verja til annarra verkefna. Til samanburðar sé verið að leggja til hækkun skatta á aðildarfélögin til að standa undir eflingu vinnustaðaeftirlits. „Sú hækkun gæti verið helmingi minni ef varaforsetum væri fækkað. Starf varaforseta felst að stofninum til í því að mæta á tvo Teams fundi í mánuði og fara yfir dagskrá miðstjórnar áður en hún er send út. Fundirnir taka iðulega um fimmtán mínútur en fyrir starfið eru engu að síður greiddar í ríflega 240 þúsund krónur á mánuði. (Hjá VR hefur stjórn tekið ákvörðun um að slíkar greiðslur skuli teljast hluti af launakjörum formanns og eru dregnar frá heildarlaunum).“ Dragi framboðið til baka verði fulltrúi VR forseti Halla segir að meðal annars verði greidd atkvæði á fimmtudag um það hvort fækka eigi varaforsetum úr þremur í einn. Á föstudag verði svo kosið um forseta og fyrsta til þriðja varaforseta, eftir atvikum. Þingið þurfi fyrst og fremst að kjósa varaforseta sem fólk treysti fyrir hlutverkinu, það er að segja að gegna í forföllum forseta. „Þetta er ekki staða sem á að veita einhver völd eða áhrif umfram einmitt það kjarnahlutverk. Hvað sjálfa mig varðar þá hef ég gefið kost á mér til embættis fyrsta varaforseta en það fer hins vegar allt eftir afdrifum lagabreytinga um fjölda varaforseta og niðurstöðu í kosningu til forseta hvort ég læt slag standa í þeim efnum. Ég er til dæmis þeirrar skoðunar að komi forseti úr röðum VR-inga, líkt og annar frambjóðandinn gerir, og tillaga um einn varaforseta verður samþykkt sé betra að viðkomandi komi úr röðum annarra hópa sambandsins. Þá mun ég draga framboð mitt til baka.“ Fréttin uppfærð 16:24. Sólveig Anna hefur brugðist við skrifum Höllu í nýrri færslu á Facebook. Þar svarar hún rökum Höllu að núverandi fyrirkomulag sé ólýðræðislegt. „Þetta er frumleg nálgun, svo vægt sé til orða tekið. Formaður VR varar við litlu forsetateymi sem ólýðræðislegu fyrirbæri sem fækki nauðsynlegum röddum. Samt minnkar tillagan sem hún styður teymið úr fjórum manneskjum í tvær. Ef lítið teymi er ólýðræðislegt, hvernig getur enn minna teymi verið lýðræðislegra? Formaður VR hefur lýst því að hlutverk varaforseta sé ekki pólitískt heldur felist það aðeins í því að leysa forseta af í forföllum. En ef svo er, hvers vegna talar hún þá fyrir fækkun? Ef embættið hefur engin pólitísk áhrif getur fjöldi varaforseta varla skipt neinu máli heldur.“ Sólveig Anna segir að ef fjöldinn skipti hinsvegar máli, líkt og ákafinn við að fækka þeim bendi eindregið til, þá séu varaforsetarnir valdastöður. „Fækkun embættanna færir þá þetta vald augljóslega á færri hendur. Hvort sem er dregur fækkun embættanna úr fjölbreytni radda í forystunni. Á það erum við í Eflingu að benda, og það kallar formaður VR samsæriskenningu,“ skrifar Sólveig Anna. „Staðan er semsagt þessi: Að mati formanns og stjórnar VR er lítið forsetateymi ólýðræðislegt. Til að bregðast við því skal minnka teymið enn frekar, þannig að varaforsetinn verði aðeins einn. Og sá eini varaforseti á að vera formaður VR, sem hefur gefið kost á sér í embættið. Með þessu á lýðræðið að vera tryggt. The mind boggles, hefði ég mögulega sagt fyrir nokkrum árum. En ég er orðin svo lífsreynd að varla nokkuð kemur mér á óvart lengur, og síst af öllu rökfimi þeirra sem eru að klifra upp metorðastigann. Ég hef lært að í því samhengi má flest, ef ekki allt.“
Kjaramál Stéttarfélög Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Sjá meira