Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Sunna Sæmundsdóttir skrifar 12. október 2026 16:43 Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Vísir/Viktor Vaxandi óánægja er með störf formanna allra ríkisstjórnarflokkanna samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Dregið hefur úr óánægju með formann Framsóknar eftir að Lilja Alfreðsdóttir tók við.
Í könnun Maskínu var spurt hversu vel eða illa formenn stjórnmálaflokka á Alþingi hafa staðið sig á kjörtímabilinu. Könnunin var gerð frá 2. til 7. október en sambærileg könnun var einnig gerð á síðasta ári. Helsta breytingin milli ára er aukin óánægja með störf Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins. Á síðasta ári taldi tæpur helmingur, eða 47 prósent að hún hefði staðið sig illa en í nýrri könnun er yfirgnæfandi meirihluti, eða 71 prósent á þeirri skoðun. Frammistaða formannaHvernig hafa þeir staðið sig á þessu kjörtímabili?október 2025október 2026 Óánægja með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar, hefur einnig aukist. Nú telur um tæpur helmingur, eða 44 prósent að hún hafi staðið sig illa. Í fyrra var þriðjungur, eða 33 prósent, ósáttur við hennar störf. Fleiri eru einnig ósáttir við störf Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingar. Í fyrra mældist óánægjan 21 prósent en í ár segjast 35 prósent ósáttir við frammistöðu hennar á kjörtímabilinu. Lilja Alfreðsdóttir tók við formennsku í Framsóknarflokknum í febrúar á þessu ári.Vísir/Anton Brink Síðasta könnun Maskínu var gerð þegar Sigurður Ingi Jóhannsson var formaður Framsóknar. Þá var yfir helmingur aðspurða, eða 59 prósent, ósáttur við hans störf. Mun færri eru óánægðir með störf Lilju Alfreðsdóttur sem tók við formennsku í flokknum í febrúar, eða 43 prósent. Óánægja með Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins, og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, breytist lítið milli ára og mælist raunar hnífjöfn. Í fyrra sögðu ríflega sextíu prósent að Sigmundur Davíð og Guðrún hefðu staðið sig illa en í ár mælist óánægjan tæplega sextíu prósent hjá þeim báðum.
Flokkur fólksins Samfylkingin Viðreisn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fleiri fréttir Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sjá meira