

Skóla- og menntamál
Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.

„Pabbi og mamma, viljið þið segja í kvöld að ég sé ekki vitlaus eða heimskur“
„Nánast allan áttunda og níunda bekk var honum varla heilsað af félögunum, það var eins og hann væri bara ekki á staðnum. Hann var hunsaður, hann var ekki til.“

Helsta baráttumálið að standa við bakið á kennurum
Nýr formaður Kennarasambands Íslands var kjörinn í dag en skólastjórinn Magnús Þór Jónsson tekur við embættinu á næsta ári. Helsta baráttumál hans er að hlúa að kennurum og segir mörg spennandi verkefni framundan.

Magnús Þór kjörinn nýr formaður Kennarasambandsins
Magnús Þór Jónsson, skólastjóri í Seljaskóla, hefur verið kjörinn nýr formaður Kennarasambands Íslands (KÍ). Magnús tekur við á 8. þingi sambandsins sem fram fer í apríl á næsta ári.

Leikskólakennarar fjórðungur starfsmanna leikskóla
Í desember 2020 voru 1.628 leikskólakennarar starfandi í leikskólum á Íslandi en það jafngildir 25,7 prósentum starfsfólks sem starfa við uppeldi og menntun leikskólabarna.

Núna er rétti tíminn til að breyta skólanum
Ungmenni allra tíma eiga það sameiginlegt að koma með ferska sýn og gera nýjar kröfur til samfélagsins. Undir þetta geta flestir kennarar tekið. Nýjar kynslóðir alast upp við öðruvísi þekkingu og þarfir sem skólasamfélagið verður að mæta. Til þess þarf nýja kennslunálgun sem grípur nemendur og býr þá undir samfélagið sem bíður þeirra að námi loknu. Leiðin að því marki þarf hins vegar ekki að vera úr sjónmáli. Það er nefnilega hægt að innleiða vendinám.

Árbæjarskóli vann Skrekk
Árbæjarskóli fór með sigur af hólmi í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskólanemenda í Reykjavík, með atriði sitt, Annað viðhorf.

Segist hafa horft á starfsmann skólans snúa dóttur sína niður
Móðir níu ára stúlku, sem hefur kært starfsmann Gerðaskóla til lögreglu, segist hafa horft á hann snúa dóttur sína niður fyrir það eitt að klóra út í loftið í áttina að honum. Það sé viðtekin venja í skólanum að læsa börn með raskanir eða sem starfsfólkið ræður illa við inni í litlu gluggalausu herbergi.

Formannskjör Kennarasambands Íslands framlengt vegna bilunar
Formannskjör Kennarasambands Íslands hefur verið framlengt en til stóð að atkvæðagreiðslu myndi ljúka klukkan 14 í dag. Vegna bilunar í kerfinu ákvað kjörstjórn sambandsins að framlengja frestinn til að kjósa um einn sólarhring og geta félagsmenn því greitt atkvæði til klukkan 14 á morgun, þriðjudag.

Starfsmaður Gerðaskóla grunaður um að hafa beitt barn ofbeldi
Lögreglan á Suðurnesjum hefur mál til rannsóknar þar sem starfsmaður Gerðaskóla er grunaður um að hafa beitt barn í skólanum ofbeldi. Móðir barnsins hefur einnig lagt fram kæru á hendur skólanum fyrir að hafa lokað dóttur hennar reglulega inni í litlu rými gegn hennar vilja og án vitundar foreldra.

Fórnarkostnaður verðmætasköpunar
Ákvörðun um að skrá sig í nám snýst að mörgu leyti um fórnarkostnað. Raunin er auðvitað ekki sú að þeir sem hyggja á nám setjist niður og setji upp excel-skjal með kostnaðar- og ábatagreiningu en mörg þurfa þó að taka afstöðu til þeirra áhrifa sem það hefur á fjárhaginn að fara í nám og fresta þar með þátttöku á vinnumarkaði.

Hættum þessu rugli
Við lifum kannski alltaf á viðsjárverðum tímum, en sjálfsagt getum við verið sammála um að þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir núna eru býsna stórar.

Skólar á Akranesi opna á morgun
Gert er ráð fyrir allar stofnanir á skóla- og frístundasviði Akraness verði með starfsemi á morgun, en vegna fjölgunar smitaðra í sveitarfélaginu fyrir helgi var brugðið á það ráð að fella skólastaf niður.

Galdramaðurinn í Odda sem færði Íslendingum ritlistina
„Skall þar hurð nærri hælum,“ er máltæki rakið til Sæmundur fróða þegar hann yfirgaf Svartaskóla í Frakklandi og járnhurðin skall svo fast aftur á hæla hans að hælbeinin særðust.

Hreyfing ungmenna – fjölgum hreyfistundum!
Samkvæmt nýlegri rannsókn á Íslandi kemur fram að fjórir af hverjum fimm nemendum í 6., 8. og 10. bekk eru ekki að hreyfa sig nægilega mikið .

Tekur fyrir að börn séu enn lokuð inni í Gulu herbergi í Varmárskóla
Tvær ábendingar bárust fræðslu- og frístundasviði Mosfellsbæjar árið 2019 um Gula herbergið svokallaða í Varmárskóla, sem nemendur höfðu verið lokaðir inni í einir ef þeir misstu stjórn á skapi sínu. Skólastjóri Varmárskóla segir herbergið ekki til og að nemendur séu ekki lokaðir inni í neinum tilvikum.

„Kostningar“ kennara
Kennarasambandið í erfiðleikum með blessaða stafsetninguna.

RIFF býður öllum leik- og grunnskólanemum landsins kvikmyndadagskrá og kennsluefni
RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur útbúið veglega alþjóðlega kvikmyndadagskrá ásamt kennsluefni sem býðst öllum leik- og grunnskólanemum landsins út janúar á næsta ári og er skólunum að kostnaðarlausu.

Foreldrar orðnir langþreyttir á ástandinu og vilja sjá alvöru aðgerðir
Framtíðarskipan skóla- og frístundastarfs í Laugarnes- og Langholtshverfi voru til umræðu innan borgarráðs í gær en gert er ráð fyrir mikilli fjölgun nemenda í hverfinu á næstu árum. Formaður foreldrafélags Laugarnesskóla fagnar því að samtal eigi sér nú stað um stöðuna en segir foreldra langþreytta á aðgerðarleysi stjórnvalda.

Það vantar tvo kílómetra á menntaveginn
Í síðustu viku stóð Byggðastofnun fyrir Byggðaráðstefnu á Vík í Mýrdal undir yfirskriftinni „Menntun án staðsetningar“. Það var reyndar haft á orði að réttara væri að tala um „Menntun óháð staðsetningu“ sem vísar betur til þeirrar kröfu að fólk á landsbyggðinni búi við jöfn tækifæri til menntunar hvar svo sem það er búsett.

Svar við ummælum rektors um ókyngreind salerni í HÍ
Þann 2. nóvember síðastliðinn kom Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 og tjáði sig um stöðu ókyngreindra salerna innan bygginga háskólans.

Viðbyggingar og sameiginlegur unglingaskóli meðal hugmynda í skólamálum Laugarnes- og Langholtshverfis
Þrjár sviðsmyndir um framtíðarskipan skóla- og frístundastarfs í Laugarnes- og Langholtshverfi voru kynntar fyrir borgarráði Reykjavíkur í dag.

Loka skólum og stofnunum í Suðurnesjabæ vegna Covid-smita
Aðgerðastjórn Suðurnesjabæjar hefur ákveðið að loka skólum og stofnunum vegna Covid-19-smita sem hafa greinst á meðal starfsfólks á leikskóla og nemenda í grunnskólanum. Lokanirnar eiga að koma í veg fyrir frekari dreifingu veirunnar.

Lagfæringar á Fossvogsskóla taldar kosta rúma 1,6 milljarða íslenskra króna
Áætlað er að kostnaður við lagfæringar og endurbætur á Fossvogsskóla nemi meira en 1.640 milljónum króna. Borgarráð samþykkti heimild til útboðs á framkvæmdunum í dag.

Starfsemi Myllubakkaskóla flutt á fjóra staði
Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti í dag að leggja nítján milljónir króna í að flytja starfsemi Myllubakkaskóla á fjóra staði í bænum tímabundið á meðan unnið er á úttekt á húsnæði hans. Myglu varð fyrst vart í skólanum árið 2019 og hefur verið gripið til ýmissa ráðstafana síðan. Þær aðgerðir hafa ekki skilað tilætluðum árangri, því enn greindist mygla í skólanum í síðasta mánuði.

Borgin setur 25 til 30 milljarða í viðhald og viðgerðir á skólahúsnæði
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í dag að stórauka fjárframlög til viðhalds og viðgerða á skólahúsnæði í borginni. Stendur til að verja 25 til 30 milljörðum til málaflokksins sem er áætluð fjárþörf átaksins á næstu fimm til sjö árum.

Tekur við starfi markaðsstjóra Keilis
Alexandra Tómasdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Keilis, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs og hefur hún þegar hafið störf.

Bein útsending: Kynna 30 milljarða áætlun um viðhald skólabygginga í Reykjavík
Oddvitar þeirra flokka sem mynda meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur hafa boðað til blaðamannafundar í RáðhúsiReykjavíkur í dag þar sem áætlun um viðhald skólahúsnæðis í Reykjavík verður kynnt. Fundurinn hefst klukkan 13:15.

„Mikilvægt að við sjáum smittölur strax ganga niður“
Smituðum einstaklingum fjölgar nú hratt á Akranesi og hefur bæjaráð gripið til þess ráðs að fella niður alla starfsemi í skólum á morgun. Lágmarksstarfsemi verður á öðrum stofnunum bæjarins. Bæjarstjóri segir að um sé að ræða nauðsynlega aðgerð.

Ástand á Akranesi: Fimmtíu greindust og skólum lokað
Alls greindust fimmtíu manns með Covid-19 á Akranesi í gær að því er Lögreglan á Vesturlandi greinir frá. Allir skólar í bænum verða lokaðir á morgun.

Nauðsynleg viðhorfsbreyting
Í Hafnarfirði starfa tæplega 600 starfsmenn á leikskólum bæjarins. Hlutfall leikskólakennara er 26%. Í Reykjavík, Kópavogi og Garðabæ er staðan svipuð. Á Íslandi er nánast enginn leikskóli sem uppfyllir þau skilyrði í lögum þar sem kveðið er um að 2/3 hlutar þeirra er sinna uppeldi og menntun í leikskólum eigi að hafa leyfisbréf kennara.