Dagur kveður eftir 23 ár í borginni Dagur B. Eggertsson fyrrverandi borgarstjóri sat sinn síðasta borgarstjórnarfund í dag þar sem hann bauðst lausnar frá störfum. Dagur varð borgarfulltrúi fyrst árið 2002, og hefur verið borgarstjóri eða formaður borgarráðs undanfarin fimmtán ár. Innlent 21. janúar 2025 18:34
Sjúkraflug mikilvægara en „að rífast um einhver tré“ Lokun flugbrauta á Reykjavíkurflugvelli er mikið áhyggjuefni fulltrúa Mistöðvar sjúkraflugs á Íslandi. Líkurnar á því að sjúkraflugvélar geti ekki lent í Reykjavík stóraukast. Innlent 21. janúar 2025 18:05
Húsnæði er forsenda bata Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt endurskoðaða aðgerðaáætlun í málefnum heimilislausra, sem gildir til ársins 2027. Áætlunin byggir á stefnu borgarinnar í málaflokknum. Síðustu ár hefur orðið gjörbylting í þjónustu við heimilislaust fólk sem nú er veitt á grundvelli skaðaminnkandi hugmyndafræði og batamiðaðri valdeflandi þjónustu. Skoðun 21. janúar 2025 16:30
Í skugga misvægis atkvæðanna Í kjölfar þess að fjárvana Samtök um betri byggð unnu kosningu 2001 um lokun herflugvallar í Vatnsmýri 2016 var teningum kastað. Upp reis harðsnúin og ófyrirleitin en vel fjármögnuð hreyfing svokallaðra flugvallarvina með tóm öfugmæli, útúrsnúninga, hálfsannleika, þvætting og lygar að vopni. Skoðun 21. janúar 2025 15:31
Skóari skellir í lás á Grettisgötunni Skóvinnustofunni í Reykjavík, sem áður gekk undir nafninu Þráinn skóari, verður lokað fyrir mánaðamót. Þar með hverfur síðasti starfandi skósmiðurinn í miðborg Reykjavíkur á braut. Viðskipti innlent 21. janúar 2025 13:15
Landspítalinn vill lóð sem borgin planar undir íbúðabyggð Forstjóri Landspítalans telur skynsamlegra að gera ráð fyrir sjúkraússtarfsemi á landi neðan við gamla Borgarspítalann en íbúðabyggð eins og Reykjavíkurborg er með í undirbúningi. Þörfin fyrir sjúkrahússtarfsemi og tengda þjónustu eigi aðeins eftir að aukast með fjölgun þjóðarinnar. Innlent 20. janúar 2025 19:23
Bókamarkaðurinn færir sig um set Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda sem verið hefur verið undir stúkunni á Laugardalsvelli undanfarin ár verður í Holtagörðum í ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fíbút. Menning 20. janúar 2025 16:22
Kúrekarnir tóku völdin í Grafarvogi Kúrekarnir tóku völdin í Fjölnishöll á laugardagskvöld þegar Þorrablót Grafarvogs var haldið með pompi og prakt. Grafarvogsbúar drógu fram kúrekastígvélin og hattana og var ótrúleg stemning í loftinu. Lífið 20. janúar 2025 16:00
Opið bréf til foreldra í Stakkaborg Kæru foreldrar og forráðamenn. Mig langar að senda ykkur nokkrar línur um stöðu mála í kjaradeilu kennara. Við erum því miður ekki komin með neinn kjarasamning og það virðist vera litið að gerast í samningamálum KÍ og SÍS. Skoðun 20. janúar 2025 15:02
Hommalegasta blómabúðin opnuð með stæl Það var allt í blóma á opnun blómabúðarinnar Hæ blóm síðastliðinn föstudag. Hjónin Bjarmi Fannar og Bjarni Snæbjörnsson eigendur búðarinnar hafa unnið hörðum höndum við að gera og græja og eru í skýjunum með viðtökurnar. Lífið 20. janúar 2025 12:31
Nágrannar kæra veitingu leyfis vegna flóttafólks Íbúar í fjölbýlishúsi við Grandaveg sem deilir lóð með JL-húsinu hafa kært leyfi Reykjavíkurborgar um að hýsa hælisleitendur í húsinu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Innlent 20. janúar 2025 11:15
Mannekla á leikskólum Stjórn foreldrafélags Múlaborgar vill taka undir orð foreldra barna á Brákaborg sem birtust í greininni „Í leikskóla er gaman – þegar það má mæta”. Skoðun 20. janúar 2025 11:02
Biðst ekki fullrar lausnar fyrr en úrslit kosninganna verða staðfest Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins sem náði kjöri til Alþingis, hefur beðist tímabundinnar lausnar í borginni. Sem jöfnunarþingmaður segist hún ekki ætla að biðjast endanlegrar lausnar sem borgarfulltrúi fyrr en úrslit þingkosninganna hafa verið staðfest og þingsæti hennar sé öruggt. Innlent 20. janúar 2025 09:18
Grundvallarmisskilnings gæti um þaksvalir á Íslandi Arkitekt sem teiknaði nýbyggingar á Vatnsstíg segir grundvallarmisskilnings gæta um þaksvalir á Íslandi. Þar sé oftast besta skjólið, þvert á það sem margir halda. Sjálfur leggur hann alltaf upp með að teikna þaksvalir á sínar byggingar. Lífið 18. janúar 2025 10:03
Kviknaði í gámi í byggingarsvæði við gamla Orkuhúsið Eldur kviknaði í stórum gámi á byggingarsvæði við gamla Orkuhúsið á Suðurlandsbraut. Slökkvilið er á vettvangi og engin hætta er á ferðum. Innlent 17. janúar 2025 22:50
Taka sýni úr mink sem fannst dauður í Vatnsmýri Matvælastofnun hefur hræ minks sem fannst í Vatnsmýri í Reykjavík til rannsóknar, vegna gruns um fuglaflensusmits. Innlent 17. janúar 2025 17:03
Sjá loksins fyrir endann á erfiðustu framkvæmdum á ferlinum Arkitekt og verkstjóri á Vatnsstíg, þar sem nýtt hótel og íbúðarhús hafa gjörbreytt ásýnd götunnar, segja verkið eitt það allra erfiðasta sem þeir hafa ráðist í á ferlinum. Skipulag á reitnum hafi reynst afar flókið - og ekki má heldur gleyma mannlega þættinum. Lífið 17. janúar 2025 10:31
Samþykktu ályktun á íbúafundi um að vöruhúsið verði fjarlægt Um 60 manns voru viðstödd íbúafund í kvöld um skipulagsmál í Suður-Mjódd. Fundurinn samþykkti ályktun um að vöruhúsið sem er að rísa við Álfabakka 2a verði fjarlægt. Innlent 16. janúar 2025 23:48
Dóttir Ernu Mistar og Þorleifs Arnar fædd Dóttir Ernu Mistar Yamagata listakonu og Þorleifs Arnar Arnarssonar er nú fædd. Parið greinir frá því á Instagram í dag. „Bjóðum þessa fögru dömu velkomna í heiminn,“ segir Þorleifur við færsluna. Lífið 16. janúar 2025 22:48
Minntust þess að 30 ár eru liðin frá því að flóðið féll Mikill fjöldi kom saman í Guðríðarkirkju í kvöld til að minnast þess að 30 ár eru frá því að snjóflóð féll í Súðavík 1995. Lífið 16. janúar 2025 22:38
Eyjólfur tekur fyrstu skóflustunguna að Borgarlínu á morgun Eyjólfur Ármannsson, nýr samgönguráðherra, mun taka fyrstu skóflustunguna að byggingu Fossvogsbrúar. Brúin er fyrsta stóra framkvæmdin í Borgarlínuverkefninu. Innlent 16. janúar 2025 15:18
Síðasti dagur Dags í borgarráði í dag Dagur B. Eggertsson, nýr þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, sat sinn síðasta borgarráðsfund í morgun. Hann hefur starfað á vettvangi ráðsins frá árinu 2003, og haft þar marga hatta. Innlent 16. janúar 2025 13:48
Hvað er græni veggurinn að reyna að segja okkur? Um daginn var komið að máli við mig varðandi græna vegginn í Álfabakka og var honum réttilega hallmælt. Eftir samtalið rann það svo upp fyrir mér að síðan ég útskrifaðist úr arkitektanámi þá hefur fólk reglulega komið á tal við mig til að kvarta yfir arkitektum. Skoðun 16. janúar 2025 10:30
Foreldrar barna á Brákarborg langþreyttir á fáliðun og reglulegum lokunum Foreldrar barna í leikskólanum Brákarborg gagnrýna það harðlega í aðsendri grein að verja eigi fjármunum í að byggja nýjan leikskóla í Elliðaárdal og við leikskóla í Ármúla þegar ekki hefur tekist að manna almennilega þá leikskóla sem þegar eru til. Innlent 16. janúar 2025 07:48
Í leikskóla er gaman – þegar það má mæta Leikskólinn Brákarborg hefur verið mikið í fréttunum undanfarið, því miður ekki af góðu. Fyrirferðamestar hafa verið fréttir af nýju húsnæði skólans sem flutt var í um miðjan ágúst 2022. Síðastliðið sumar, rétt fyrir opnun eftir sumarlokun, komu í ljós verulegir hönnunar- og burðarþolsgallar á nýja fallega húsnæðinu sem urðu þess valdandi að flytja þurfti alla starfsemina á nýja staði. Skoðun 16. janúar 2025 07:31
Bjóst ekki við greiðslum frá Alþingi Dagur B. Eggertsson formaður borgarráðs ætlar að biðjast lausnar frá borginni í næstu viku. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur að hann og aðrir borgarfulltrúar sem voru kjörnir á Alþingi í síðustu kosningum eigi að vera búin að því. Óeðlilegt sé að fá bæði laun frá Alþingi og borginni. Innlent 15. janúar 2025 19:19
Segir nafnlausa konu fara með rangt mál um bróður hans Kona sem æfir hjá World Class segir sér misboðið eftir að karlmaður gekk inn í kvennaklefa líkamsræktarinnar í Laugum í morgun til að gera við klósettrúlluhaldara án þess að allir í klefanum vissu af komu hans. Björn Leifsson, eigandi World Class og bróðir mannsins, segir konuna fara með rangt mál. Innlent 15. janúar 2025 18:44
Ákærður fyrir að drepa móður sína Embætti héraðssaksóknara hefur gefið út ákæru á hendur manni sem grunaður er um að hafa banað móður sinni í október á síðasta ári. Það staðfestir Karl Ingi Vilbergsson við mbl.is í dag. Innlent 15. janúar 2025 18:31
Auglýsa skipulag fyrir 180 íbúðir á Árstúnshöfða Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur samþykkti nýtt deiluskipulag fyrir 180 íbúða byggð á reit á Ártúnshöfða til auglýsingar í dag. Reiturinn er fyrsti deiliskipulagsáfengi á lóð BM Vallár. Innlent 15. janúar 2025 16:01
Handritin öll komin á nýja heimilið Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur nú flutt öll handrit, sem hún hefur til varðveislu, í nýtt öryggisrými í Eddu við Arngrímsgötu 5. Innlent 15. janúar 2025 13:20