
Flautukörfuveisla í NBA í nótt og þristaregn
Boðið var upp á miklar dýrðir í NBA í nótt, einn leikur vannst á flautukörfu og annar með 0,9 sekúndur á klukkunni. Þá féllu og bættust met hægri vinstri.
Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.
Boðið var upp á miklar dýrðir í NBA í nótt, einn leikur vannst á flautukörfu og annar með 0,9 sekúndur á klukkunni. Þá féllu og bættust met hægri vinstri.
Hvorki gengur né rekur hjá Detroit Pistons í NBA-deildinni þessa dagana en liðið tapaði í nótt sínum 22. leik í röð.
Jalen Brunson, leikmaður New York Knicks, fór hamförum í nótt í sigri liðsins á Phoenix Suns þegar hann skoraði 50 stig og klikkaði varla úr skoti.
Giannis Antetokounmpo setti félagsmet þegar hann skoraði 64 stig í sigri Milwaukee Bucks á Indiana Pacers, 140-126, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Hann lenti svo í útistöðum eftir leikinn.
Körfuboltamaðurinn Draymond Green má ekki spila með Golden State Warriors á næstunni en NBA-deildin hefur sett hann í bann. Það sérstaka við bannið er að það er ekki talið í leikjum, dögum eða vikum. Green er kominn í ótímabundið bann.
Draymond Green er enn á ný í vandræðum í NBA-deildinni. Hann lék sinn fyrsta leik í nótt eftir fimm leikja bann og var rekinn af velli eftir að hafa slegið andstæðing.
Hinn stórskemmtilegi liður „Nei eða Já“ var á sínum stað í Lögmál leiksins. Heitasta umræðuefnið að þessu sinni var hvort Los Angeles Lakers væri nú sigursælasta lið í sögu NBA-deildarinnar eftir að sigra fyrstu bikarkeppni deildarinnar frá upphafi.
Farið verður yfir leik Phoenix Suns og Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta í Lögmál leiksins í kvöld. Lakers tók leikhlé undir lok leiks eftir að hafa misst boltann, að mati sérfræðinga þáttarins.
Bronny James, sonur körfuboltagoðsagnarinnar LeBrons James, lék um helgina sinn fyrsta leik eftir að hann fór í hjartastopp í sumar.
Anthony Davis átti sannkallaðan stórleik er Los Angeles Lakers varð fyrsta liðið til að vinna deildarbikarmeistaratitilinn í sögu NBA-deildarinnar.
Minnesota Timberwolves unnu sinn sjötta sigur í röð er liðið vann öruggan 24 stiga sigur gegn Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 103-127.
LeBron James fór fyrir sínum mönnum í Los Angeles Lakers í nótt þegar liðið tryggði sér sæti í fyrsta úrslitaleik NBA deildarbikarsins en úrslitin fara fram í Las Vegas.
NBA deildarbikarkeppnin er nú komin alla leið til Las Vegas borgar þar sem undanúrslitin fara fram í kvöld í nótt.
Það verður mikið um að vera í heimi íþróttanna í kvöld og því ættu allir að geta fundið eitthvað fyrir sig.
PJ Tucker, reynsluboltinn hjá Los Angeles Clippers, dró vandræði liðsins saman í eina setningu í nýlegu viðtali.
Los Angeles Lakers og Milwaukee Bucks tryggðu sér í nótt sæti í undanúrslitum NBA deildarbikarsins en úrslitin fara fram í Las Vegas og hefjast strax annað kvöld.
Sacramento Kings greindi frá því að áhorfandi á leik Sacramento Kings og New Orleans Pelicans í NBA deildarbikarnum í nótt hafi látist.
Indiana Pacers sló topplið Boston Celtics út úr átta liða úrslitum NBA deildarbikarsins í nótt og er þar með búið að tryggja sér sæti á úrslitahelginni í Las Vegas ásamt liði New Orleans Pelicans sem vann líka sinn leik í gær.
Hinn sívinsæli liður „Nei eða Já“ var á sínum stað þegar Lögmál leiksins var sýnt í gær, mánudag. Í þættinum var að venju farið yfir það helsta sem hefur gerst í NBA-deildinni í körfubolta. Ásamt Kjartani Atla Kjartanssyni, þáttastjórnanda, voru þeir Sigurður Orri Kristjánsson og Tómas Steindórsson.
„Maður spyr sig eftir þennan leik, það hefur verið pínu stef að liðið hefur verið að missa niður forystu,“ segir Kjartan Atli Kjartansson, þáttastjórnandi Lögmál leiksins, um lið Golden State Warriors.
Fyrri tveir leikirnir í átta liða úrslitum NBA deildarbikarsins fara fram í kvöld en átta liða úrslitunum lýkur svo aðra nótt með hinum tveimur leikjunum.
Körfuboltamaðurinn Kevin Durant er orðinn tíundi stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar frá upphafi eftir að hafa skorað 30 stig fyrir Phoenix Suns í nótt.
Luka Doncic og félagar hans í Dallas Mavericks þurftu að sætta sig við sex stiga tap er liðið tók á móti Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Lokatölur 120-126, þrátt fyrir að heimamenn hafi á einum tímapunkti skorað þrjátíu stig í röð.
Lögreglan í Newport Beach í Kaliforníu fylki er nú farinn að rannsaka það hvort að NBA stjarnan Josh Giddey hjá Oklahoma City Thunder hafi brotið lög með sambandi við stúlku undir lögaldri.
Átta liða úrslitin eru nú klár í NBA deildarbikarnum en þetta var endanlega ljóst eftir leiki næturinnar. Þetta er fyrsta árið með þessa nýju bikarkeppni inn á miðju NBA tímabilinu.
Mark Cuban er einn þekktasti og litríkasti eigandi félags í NBA-deildinni en nú virðist komið að tímamótum hjá honum.
LeBron James náði merkum áfanga þegar Los Angeles Lakers mætti Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Hann hafði samt litla ástæðu til að gleðjast eftir leik.
Sápuóperan um samskipti NBA-stjörnunnar Chris Paul og NBA-dómarans Scott Foster er meðal þess sem er til umræðu í Lögmáli leiksins á Stöð 2 Sport 2 í kvöld en í þessum vikulega þætti ef farið yfir gang mála í NBA deildinni í körfubolta.
Skotbakvörðurinn Damian Lillard hefur verið einn afkastamesti skorari NBA deildarinnar síðustu ár en hann hefur skorað í það minnsta 32 stig gegn öllum liðum deildarinnar að einu undanskildu.
Milwaukee Bucks unnu tæpan sigur í nótt á einu lélegasta liði NBA deildarinnar, Washington Wizards, 131-128. Sigurinn fer þó í sögubækurnar þar sem þrír leikmenn liðsins skoruðu yfir 30 stig.