Stórhuga í Meistaradeildinni Jose Mourinho segir að lið sitt sé að spila betur en nokkru sinni fyrr í Meistaradeild Evrópu og bendir á að þó samkeppnin sé hörð, hafi hans menn alla möguleika á að fara alla leið í keppninni að þessu sinni. Fótbolti 2. nóvember 2006 15:00
Hugsanlega besti leikur okkar í Meistaradeildinni Arsene Wenger var ekkert að velta sér upp úr því að lið hans hafi farið illa með fjölda færa og því þurft að sætta sig við markalaust jafntefli á heimavelli við CSKA Moskva í kvöld. Hann segir spilamennsku liðsins hafa verið frábæra. Fótbolti 1. nóvember 2006 23:24
Við verðum að ná í stig gegn Celtic Sir Alex Ferguson var ekki á þeim buxunum að koma með lélegar afsakanir í kvöld eftir að hans menn afhentu FC Kaupmannahöfn fyrsta sigur sinni í Meistaradeildinni í sögu félagsins. Ferguson sagði sína menn hafa fengið á baukinn fyrir að nýta ekki færi sín. Fótbolti 1. nóvember 2006 23:20
United lá í Kaupmannahöfn Manchester United þurfti að sætta sig við 1-0 tap fyrir FC Kaupmannahöfn í Danmörku í kvöld og Arsenal og CSKA Moskva gerðu markalaust jafntefli í G-riðli, þar sem allt er nú opið. Fótbolti 1. nóvember 2006 21:37
Dauft hjá enskum í fyrri hálfleik Ensku liðunum Arsenal og Manchester United hefur ekki gengið vel í fyrri hálfleik í leikjum sínum í Meistaradeild Evrópu sem sýndir eru beint á sjónvarpsstöðvum Sýnar í kvöld, en raunar hafa fá mörk verið skoruð í leikjunum átta sem standa yfir. Fótbolti 1. nóvember 2006 20:36
Meiðsli Eiðs ekki alvarleg Ökklameiðsli landsliðsfyrirliðans Eiðs Smára Guðjohnsen í leiknum gegn Chelsea í Meistaradeildinni í gærkvöld voru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu og svo gæti farið að hann yrði klár í slaginn um helgina þegar meistararnir mæta Deportivo í deildinni. Fótbolti 1. nóvember 2006 18:16
Arsenal - CSKA Moskva í beinni Leikur Arsenal og CSKA Moskvu í meistaradeild Evrópu verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 19:30 og á sama tíma verður leikur FC Kaupmannahöfn og Manchester United sýndur á Sýn Extra. Fótbolti 1. nóvember 2006 17:00
Baunar áfram á Barcelona Jose Mourinho hrósaði baráttuanda sinna manna í gærkvöld þegar lið Chelsea náði jöfnu gegn Barcelona í Meistaradeildinni, en hann gat ekki stillt sig um að bauna aðeins á Frank Rijkaard þjálfara. Fótbolti 1. nóvember 2006 14:44
Öruggt hjá Liverpool Liverpool átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Bordaeux af velli á heimavelli sínum í Meistaradeildinni í kvöld. Lokatölur urðu 3-0 og er Liverpool búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum, rétt eins og PSV sem sigraði Galatasary, 2-0. Fótbolti 31. október 2006 21:43
Gleði og sorg hjá Eiði Smára Eiður Smári Guðjohnsen skoraði en meiddist illa þegar Barcelona og Chelsea skildu jöfn, 2-2, í stórleik kvöldsins í Meistaradeildinni. Eiður Smári kom Barca í 2-1 á 58. mínútu en meiddist, að því er virtist alvarlega, á ökkla um stundarfjórðungi síðar. Didier Drogba jafnaði leikinn í uppbótartíma. Sport 31. október 2006 21:33
Barcelona leiðir í hálfleik Staðan á Nou Camp leikvanginum í Barcelona er 1-0 fyrir heimamönnum gegn Chelsea þegar flautað hefur verið til hálfleiks í leik liðanna í Meistaradeildinni. Það var Portúgalinn Deco sem skoraði markið strax á 4. mínútu leiksins. Liverpool er yfir gegn Bordeaux á Anfield. Sport 31. október 2006 20:35
Eiður Smári í byrjunarliðinu Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem tekur á móti Chelsea í Meistaradeild Evrópu eftir örfáar mínútur. Leikurinn hefst kl. 19:45 og er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 31. október 2006 19:18
Shevchenko og Drogba með Chelsea á Spáni Framherjarnir Andriy Shevchenko og Didier Drogba fóru báðir með liði Chelsea til Spánar þar sem liðið sækir Evrópumeistara Barcelona heim í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöld. Báðir leikmenn hafa átt við meiðsli að stríða. Fótbolti 29. október 2006 15:56
Hefðum átt að vinna stærra Jose Mourinho var mjög sáttur við sigur sinna manna á Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld og sagðist helst ósáttur við að ná ekki að gera út um leikinn fyrr með því að skora fleiri mörk. Hann segist nú hafa sett stefnuna á að halda toppsætinu í riðlinum. Fótbolti 18. október 2006 22:07
Drogba tryggði Chelsea sigur á Barcelona Chelsea vann í kvöld sannfærandi sigur á Barcelona 1-0 í Meistaradeild Evrópu. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en náði sér ekki á strik frekar en félagar hans í liðinu og var skipt af velli á 60. mínútu. Didier Drogba skoraði sigurmarkið á 47. mínútu með laglegu skoti og Chelsea er komið í vænlega stöðu í riðlinum með fullt hús eftir þrjá leiki. Fótbolti 18. október 2006 20:34
Jafnt í hálfleik á Stamford Bridge Nú hefur verið flautað til hálfleiks á Stamford Bridge í leik Chelsea og Barcelona í Meistaradeild Evrópu. Ekkert mark er enn komið í leikinn og besta færið átti Didier Drogba hjá Chelsea eftir 15 mínútna leik, en náði ekki að skora. Eiður Smári er í byrjunarliði Barcelona en hefur fengið úr litlu að moða enn sem komið er. Fótbolti 18. október 2006 19:32
Eiður í byrjunarliði Barcelona Nú styttist í að flautað verði til leiks í Meistaradeild Evrópu. Stórleikur kvöldsins er viðureign Chelsea og Barcelona og verður leikurinn sýndur beint á Sýn. Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona gegn sínum gömlu félögum og tekur við heiðursverðlaunum frá Chelsea fyrir leikinn. Fótbolti 18. október 2006 18:14
Sigur á Bordeaux gæfi okkur meðbyr í deildinni Rafa Benitez vonast innilega eftir sigri á franska liðinu Bordeaux í Meistaradeildinni í kvöld og telur að útisigur í kvöld gæfi liði sínu byr undir báða vængi fyrir erfiðan leik við Manchester United í úrvalsdeildinni á sunnudag. Liverpool er aðeins í tíunda sæti í úrvalsdeildinni. Fótbolti 18. október 2006 17:15
Xavi segir Chelsea í hefndarhug Spænski miðjumaðurinn Xavi hjá Barcelona á von á því að Englandsmeistarar Chelsea séu í hefndarhug í leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld, eftir að spænska liðið sló þá út úr keppninni á síðustu leiktíð. Fótbolti 18. október 2006 16:45
Risaleikir í beinni í kvöld Sjónvarpsstöðvar Sýnar gera Meistaradeild Evrópu góð skil að venju í kvöld, en þá verður á dagskrá einn af leikjum ársins þegar Eiður Smári og félagar í Barcelona sækja fyrrum félaga hans í Chelsea heim á Stamford Bridge klukkan 18:30. Fótbolti 18. október 2006 16:00
Eiður sæmdur verðlaunum fyrir leikinn í kvöld Eiður Smári Guðjohnsen verður sæmdur sérstökum verðlaunum fyrir ár sín hjá Chelsea skömmu fyrir leik Chelsea og Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld. Það verður stjórnarformaðurinn Bruce Buck sem afhendir Eiði verðlaunagripinn, en landsliðsfyrirliðinn vann tvo Englandsmeistaratitla með félaginu áður en hann gekk í raðir Barcelona í sumar. Fótbolti 18. október 2006 15:26
Við erum miklu betri en Chelsea Victor Valdes hefur nú sent liðsmönnum Chelsea góða ögrun fyrir stórleik liðanna á Stamford Bridge í Meistaradeildinni í kvöld, en markvörðurinn ungi sagði Sky sjónvarpsstöðinni í dag að Barcelona væri einfaldlega betra lið en Chelsea. Fótbolti 18. október 2006 15:19
Van Nistelrooy og Beckham í sögubækurnar Félagarnir Ruud Van Nistelrooy og David Beckham skráðu nöfn sín í sögubækurnar í kvöld í stórsigri Real Madrid á Steua Búkarest. Beckham spilaði sinn 100. leik á ferlinum í keppninni og þá varð Nistelrooy aðeins þriðji leikmaðurinn til að skora 50 mörk í Meistaradeildinni þegar hann skoraði glæsilegt fjórða mark spænska liðsins. Fótbolti 17. október 2006 22:43
Ferguson hrósar fyrirliðanum unga Sir Alex Ferguson hlóð Wayne Rooney hrósi eftir 3-0 sigur Manchester United á FC Kaupmannahöfn í Meistaradeildinni í kvöld, en framherjinn ungi tók við fyrirliðabandinu í fyrsta sinn í fjarveru þeirra Ryan Giggs og Rio Ferdinand. Fótbolti 17. október 2006 22:31
Á von á skemmtilegum leik á morgun Jose Mourinho segist eiga von á skemmtilegum leik þegar hans menn í Chelsea taka á móti Barcelona í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Fótbolti 17. október 2006 22:15
Ánægður með óvænt gengi Celtic Gordon Strachan var að vonum ánægður með sigur sinna manna í Glasgow Celtic á portúgalska liðinu Benfica í Meistaradeildinni í kvöld. Hann segir árangur liðsins til þessa í keppninni framar sínum björtustu vonum. Fótbolti 17. október 2006 22:11
Kennir dómaranum og vallaraðstæðum um tapið Arsene Wenger kennir dómaranum og lélegum vallaraðstæðum um tap Arsenal gegn CSKA Moskvu í Meistaradeildinni í kvöld, en viðurkennir að heimamenn hafi ráðið ferðinni löngum stundum í leiknum. Fótbolti 17. október 2006 21:20
Markasúpa í Meistaradeildinni Það var mikið fjör í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu og menn voru sannarlega á skotskónum á flestum vígstöðvum. Alls voru skoruð 25 mörk í leikjunum 8 í kvöld og það voru leikmenn Porto og Real Madrid sem voru iðnastir við kolann. Fótbolti 17. október 2006 20:36
United yfir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Leikur Manchester United og FC Köbenhavn er sýndur beint á Sýn og þar hafa heimamenn í Manchester 1-0 forystu með marki frá Paul Scholes. Heimamenn hafa verið miklu betri í hálfleiknum en markvörður danska liðsins hefur farið mikinn. Fótbolti 17. október 2006 19:41
Henry skoraði löglegt mark Brasilíumaðurinn Gilberto var afar óhress með tap Arsenal gegn CSKA Moskvu í Meistaradeildinni í kvöld og sagði dómarann hafa dæmt fullkomlega löglegt mark af félaga sínum Thierry Henry. Fótbolti 17. október 2006 19:10