
Staðfestu tæplega þrjátíu ára gamalt kuldamet á Grænlandi
Alþjóðaveðurfræðistofnunin hefur nú staðfest að -69,6°C sem mældust á sjálfvirkri veðurathugunarstöð á Grænlandi árið 1991 sé mesti kuldi sem mæst hefur á norðurhveli jarðar.
Alþjóðaveðurfræðistofnunin hefur nú staðfest að -69,6°C sem mældust á sjálfvirkri veðurathugunarstöð á Grænlandi árið 1991 sé mesti kuldi sem mæst hefur á norðurhveli jarðar.
Kínverjar ætla að stefna að því að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2060 til að draga úr hættunni á verstu afleiðingum loftslagsbreytinga. Xi Jinping, forseti Kína, tilkynnti þetta óvænt í ávarpi á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Útbreiðsla hafíssins á norðurskautinu þegar hún var minnst í lok sumars var sú önnur minnsta frá því að mælingar hófust. Þau fjórtán ár sem útbreiðslan hefur mælst minnst hafa nú öll verið undanfarin fjórtán ár.
Heimsbyggðin hefur áhyggjur af aðgangi að heilsugæslu, hreinu drykkjarvatni, hreinlætisaðstöðu og menntun, ef marka má niðurstöður könnunar Sameinuðu þjóðanna á afstöðu til heimsmála.
Loftslagsbreytingar af völdum manna sköpuðu aðstæðurnar sem hafa gert gróðureldana miklu í vestanverðum Bandaríkjunum enn verri en ella. Fleiri mannanna verk hafa þó stuðlað að alvarleika eldanna, þar á meðal umhirða skóga og skipulag byggðar.
Afnám reglna sem var ætlað að vinna gegn loftslagsbreytingum í tíð Donalds Trump Bandaríkjaforseta gæti leitt til þess að losun gróðurhúsalofttegunda í Bandaríkjunum verði hátt í tveimur milljörðum tonna meiri en ella fram til 2035.
Í dag er aþjóðadagur til verndar ósonlaginu til þess að vekja athygli á þeirri ógn sem felst í þynningu ósonlagsins. Ósonlagið hindrar að megnið af skaðlegum útfjólubláum geislum sólar (UV-B) nái til jarðar.
Fellibylurinn Sally hefur safnað krafti og skilgreinist nú sem annars stigs fellibylur. Hann ógnar nú Flórída og Alabama með miklum sjávarflóðum, rigningu og roki.
Hundruðum norðurkóreskra fiskibáta hefur skolað á strendur Japans undanfarin ár. Beinagrindur dáinna sjómanna eru eini farmurinn.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, endurvakti í gær afstöðu sína um að slæm umhirða skóga leiði til gróðurelda og að þörf sé á að raka skóglendi til að sporna gegn þeim.
Forsvarsmenn Facebook hafa stofnað sérstaka loftslagsbreytinga-miðstöð sem ætlað er að gera trúverðugum heimildum um loftslagsbreytingar hærra undir höfði.
Íbúar Kaliforníu, Oregon og Washington hafa orðið fyrir barðinu á sögulegu eldhafi en eldarnir hafa brunnið hraðar og meira en nokkru sinni áður. Eldarnir hafa þó orðið að pólitísku bitbeini milli Demókrata og Repúblikana.
Risastór ísjaki hefur brotnað frá stærstu íshellu norðurskautsins, sem kölluð er 79N eða Nioghalfjerdsfjorden, á norðausturströnd Grænlands.
Veðurstofa Bandaríkjanna hefur gefið út rauða viðvörun vegna mikils óveðurs sem nálgast nú vesturströnd landsins. Veðrið boðar ekki gott, en miklum vindum og engri rigningu er spáð, og talið er að gróðureldarnir sem þar geisa muni dreifast enn meira.
Formaður Íslendingafélagsins í Norður- Kaliforníu segir skógareldana á svæðinu hafa haft gríðarlega eyðileggingu í för með sér. Tuga er saknað í Oregon- ríki vegna skógar- og gróðureldanna sem loga þar og tugir þúsunda hafa þurft að yfirgefa heimili sín.
Grænlensk stjórnvöld hafa kynnt umhverfismat vegna fyrirhugaðrar olíuleitar við Austur-Grænland, beint norður af Íslandi. Matsskýrslan fjallar meðal annars um áhrif olíuleka á lífríki sjávar milli Íslands og Grænlands.
Þrír fórust í gróðureldunum miklu sem geisa í Kaliforníu í gær en þeir eru sagðir breiðast út á fordæmalausum hraða. Aska og reykur frá eldunum skyggir á sólina og litar himininn appelsínugulan. Um helmingur Kaliforníubúa er nú sagður anda að sér menguðu lofti.
Fjölmörg erindi eru á dagskrá fundarins sem streymt verður í beinni hér á Vísi.
Breska fréttastofan Sky News fjallar ítarlega um bráðnun jökla á Íslandi og áhrif hamfarahlýnunar á náttúru landsins í dag.
Veðuraðstæður gætu gert gróðurelda sem brenna stjórnlaust í Kaliforníu og víðar á vesturströnd Bandaríkjanna enn skæðari í dag og næstu dag.
Losun gróðurhúsalofttegunda stefnir í sama horf og áður en kórónuveiruheimsfaraldurinn hóf innreið sína fyrr á þessu ári þrátt fyrir metsamdrátt.
Nokkrir slökkviliðsmenn í Kaliforníu eru slasaðir og minnst einn alvarlega eftir að hafa orðið undir í baráttunni við skógarelda í dag.
Tveir af hverjum þremur bílum í umferðinni þurfa að vera orðnir hreinorkubílar fyrir árið 2030 svo Ísland geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Parísarsamkomulaginu. Það kallar á um þrjú hundruð MW aukalega en það samsvarar orkuþörf um tveggja meðalstórra virkjana.
Skógar- og kjarreldar hafa brennt tvær milljónir ekra (um átta þúsund ferkílómetra) í Kaliforníu í Bandaríkjunum á þessu ári. Það er met og enn berjast slökkviliðsmenn við elda víða.
Yfirvöld í Kaliforníu telja að reykvél sem væntanlegri foreldrar notuðu þegar þeir tilkynntu um kyn barns síns hafi verið kveikjan að nokkrum þeirra gróðurelda sem nú geisa í ríkinu. Söguleg hitabylgja gengur nú yfir Kaliforníu sem hefur skapað kjöraðstæður fyrir elda.
Níu af hverjum tíu íbúum jarðarinnar anda að sér menguðu lofti. Loftmengun á þátt í hjartasjúkdómum, heilablóðföllum, lungnakrabbameini og öðrum öndurfærasjúkdómum.
Flest af minni kynslóð kannast við loftslagskvíða. Hvernig er annað hægt þegar fréttir og umræða um loftslagsvísindi sýna að áhrif loftslagsbreytinga eru orðin daglegt brauð víða um heim — án þess að þær teljist til forsíðufrétta á einum einasta miðli.
Lífslíkur jarðarbúa gætu hækkað að meðaltali um tuttugu mánuði verði notkun jarðefnaeldsneytis hætt að mati Sameinuðu þjóðanna.
Yfirvöld Í Brasilíu virðast alfarið hætt að gera tilraunir til að vernda Amasonfrumskógarins gagnvart eldum, ólöglegu skógarhöggi, landbúnaði og annarri starfsemi.
Lífslíkur jarðarbúa myndu aukast um 20 mánuði ef notkun jarðefnaeldsneyta yrði hætt.