
Segir að ÍR hafi allt til alls til að verða Íslandsmeistari
Benedikt Guðmundsson sér ekkert því til fyrirstöðu að ÍR verði Íslandsmeistari.
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.
Benedikt Guðmundsson sér ekkert því til fyrirstöðu að ÍR verði Íslandsmeistari.
Vísir lokar niðurtalningu sinni fyrir Domino´s deild karla í körfubolta í dag með því að spá fyrir um hvaða lið endi í þremur efstu sætum deildarinnar næsta vor. Deildin hefst síðan í kvöld.
Í dag var dregið í 32 liða úrslit bikarkeppni karla í körfubolta. Valur og Tindastóll mætast í stórleik 32 liða úrslitanna.
Anthony Davis skoraði 34 stig og tók níu fráköst þegar Los Angeles Lakers rúlluðu yfir Miami Heat í fyrsta leik úrslita NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt.
Að venju er nóg um að vera í besta sætinu í dag.
Margrét Ósk Einarsdóttir reyndist hetja Fjölnis er nýliðarnir unnu Breiðablik á útivelli í Dominos deild kvenna í kvöld. Lokatölur 74-71 Fjölni í vil en Margrét Ósk setti niður þriggja stiga skot þegar 20 sekúndur voru til leiksloka.
Nýliðar Fjölnis hafa nú unnið tvo fyrstu leiki sína í Dominos deild kvenna. Seiglusigur í Kópavoginum í kvöld.
Kristófer Acox mun geta spilað með Val gegn Stjörnunni á föstudagskvöld þar sem að félagaskipti hans frá KR til Vals hafa verið heimiluð.
Valsmenn hafa sótt sér þjálfara og sterka leikmenn úr KR-fjölskyldunni og nú er að sjá hvort þeir geti farið að fagna titlum í körfunni eftir næstum því fjögurra áratuga bið. Vísir skoðar í dag sæti fjögur til sex í spánni.
Þór Akureyri og Keflavík munu ekki mætast á föstudagskvöld í 1. umferð Dominos-deildar karla í körfubolta, eins og fyrirhugað var.
Það er um nóg að vera á Stöð 2 Sport og hliðarrásum í allan dag.
Aðeins einn leikmaður Þórs Þorlákshafnar þurfti að fara í sóttkví ólíkt því sem var upphaflega greint frá.
Breiðablik ætlar að kæra þá niðurstöðu KKÍ að 71-67 sigrinum gegn Val skyldi breytt í 20-0 tap. Þjálfari Blika segir furðulegt að félagið hafi ekki verið varað við því að leikmaður ætti að vera í banni.
Stöð 2 Sport gefur í með umfjöllun um íslenska körfuboltann í vetur.
Hildur Björg Kjartansdóttir mun ekki leika með sínu nýja liði Val næstu vikurnar eftir að hún þumalbrotnaði á æfingu.
Þótt keppni í Domino's deild kvenna sé nýhafin hefur kórónuveirufaraldurinn haft mikil áhrif á mótahald.
Stjarnan hefur samið við bandaríska framherjann RJ Williams um að spila með liðinu á körfuboltaleiktíðinni sem hefst á fimmtudaginn.
Vísir heldur áfram að spá í spilin fyrir komandi tímabil í Domino´s deild karla og í dag ætlum við að skoða liðin sem berjast um síðustu sætin inn í úrslitakeppnina.
Fanney Lind Thomas, leikmaður Breiðabliks, átti að taka út leikbann þegar hún mætti Val í fyrstu umferð Dominos-deildarinnar í körfubolta.
Tíu árum eftir að Snæfell varð Íslands- og bikarmeistari karla í körfubolta teflir félagið ekki fram meistaraflokki karla.
Doc Rivers er hættur sem þjálfari Los Angeles Clippers í NBA-deildinni í körfubolta.
Haukur Helgi Pálsson, einn þriggja íslenskra landsliðsmanna í körfubolta sem leikur á Spáni, verður ekki með liði sínu næstu fimm vikurnar vegna meiðsla.
Kristófer Acox þarf að treysta á að aga- og úrskurðanefnd KKÍ hafi hraðar hendur í vikunni, og úrskurði honum í vil, svo hann geti leikið með Val gegn Stjörnunni á föstudagskvöld.
Körfuknattleiksdeild Snæfells fær þunga sekt fyrir að draga karlalið sitt úr keppni í 1. deild og útlit er fyrir að ekki komi lið inn í deildina í staðinn.
Fallbaráttan í Domino´s deild karla verður hörð eins og oft áður. Vísir er að spá fyrir um lokaröð liðanna og í dag er komið að þremur neðstu sætunum.
Karlalið Snæfells, sem varð Íslands- og bikarmeistari í körfubolta fyrir tíu árum, hefur dregið lið sitt úr keppni í 1. deild en leiktíðin þar hefst á föstudagskvöld.
Los Angeles Lakers og Miami Heat hefja einvígi sitt um NBA-meistaratitilinn á miðvikudagskvöld eftir að Miami sló Boston Celtics út í nótt.
Hlynur Bæringsson, landsliðsfyrirliði og fyrirliði Stjörnunnar, var sáttur með sigur í Meistarakeppni KKÍ í kvöld gegn Grindavík, 106-86.
Stjarnan er meistari meistaranna í körfubolta karla eftir sigur á Grindavík í Meistarakeppni KKÍ í kvöld. Leikurinn fór fram í Mathús Garðabæjar-höllinni í Garðabæ og endaði með nokkuð öruggum sigri heimamanna, 106-86.
Dominos-deildarliðin Keflavík og KR í kvennaflokki eru komin í sóttkví ef marka má heimildir miðilsins Karfan.is.