
Lögmál leiksins: „Sacramento er Sauðárkrókur Bandaríkjanna“
Í þætti kvöldsins af Lögmál leiksins er farið yfir víðan völl. Meðal annars er farið yfir mesta stemningsliðið í NBA-deildinni í körfubolta. Sérfræðingar þáttarins eru sammála.
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.
Í þætti kvöldsins af Lögmál leiksins er farið yfir víðan völl. Meðal annars er farið yfir mesta stemningsliðið í NBA-deildinni í körfubolta. Sérfræðingar þáttarins eru sammála.
Það ræðst í kvöld hvort lið Hauka eða Þórs úr Þorlákshöfn fer í sumarfrí og um leið verður ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta. Máté Dalmay, þjálfari Hauka, vill frekar að sínir menn „prjóni aðeins yfir sig“ en að þeir mæti til leiks eins og í Þorlákshöfn á laugardaginn.
Los Angeles Lakers byrjar úrslitakeppni NBA-deildarinnar af krafti en liðið vann 16 stiga sigur á Memphis Grizzlies í gærkvöld. Varamaðurinn Rui Hachimura nýtti mínúturnar sínar heldur betur vel. Milwaukee Bucks tapaði fyrir Miami Heat eftir að Giannis Antetokounmpo þurfti að yfirgefa völlinn í fyrsta leikhluta vegna meiðsla.
Kristjana Eir Jónsdóttir mun ekki stýra Fjölni í Subway-deild kvenna í körfubolta á næstu leiktíð. Hún og Fjölnir hafa komist að sameiginlegi niðurstöðu um að hún hætti sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá félaginu.
Haukar töpuðu gegn Val á heimavelli 46-56. Þetta var annað tímabilið í röð sem Haukar tapa oddaleik á heimavelli. Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, var óviss hvort hann yrði þjálfari Hauka á næsta tímabili.
Valur hafði betur gegn Haukum í oddaleik um sæti í úrslitum Subway-deildar kvenna í körfubolta. Valskonur höfðu betur og eru komnar í úrslit þar sem þær mæta Keflavík.
Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í Zaragoza biðu lægri hlut gegn Murcia þegar liðin mættust í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í dag.
Meistarar Golden State Warriors töpuðu gegn nágrönnum sínum í Sacramento Kings þegar liðin mættust í fyrsta leik einvígis liðanna í Vesturdeildinni í nótt. Boston Celtics og Philadelphia 76´ers unnu þægilega sigra.
Þór Þorlákshöfn vann tólf stiga sigur á Haukum 94-82. Þórsarar voru ekki á því að fara í sumarfrí í kvöld. Heimamenn tóku frumkvæðið snemma og gáfu Haukum ekki færi á að koma til baka.Úrslitin þýða að það verður oddaleikur í Ólafssal á mánudaginn.
Þór Þorlákshöfn vann tólf stiga sigur á Haukum 94-82. Emil Karel Einarsson, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, var ánægður með sigurinn og var spenntur fyrir oddaleiknum á mánudaginn.
Tindastóll er komið í undanúrslit Subway-deildar karla í körfubolta eftir frábæran sigur á Keflavík á Sauðárkróki í kvöld. Tindastóll vann einvígið 3-1.
Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur í Subway-deild karla, er hættur með liðið. Þetta staðfesti Hjalti Þór eftir að Keflavík féll úr leik í úrslitakeppni Subway-deildarinnar.
Tilnefningar til sex verðlauna í NBA-deildinni hafa verið kynntar en tilkynnt verður um valið á næstunni. Nikola Jokic gæti fengið verðlaun sem mikilvægasti leikmaður deildarinnar þriðja árið í röð.
Miami Heat og Minnesota Timberwolves tryggðu sér síðustu sætin í úrslitakeppni NBA-deildarinnar með sigrum í umspili í nótt.
Íslandsmeistarar Vals unnu mikilvægan sigur á Stjörnunni í 8-liða úrslitum Subway deildar karla í körfubolta í Umhyggjuhöllinni í kvöld. Með sigrinum eru Valsmenn komnir áfram í undanúrslit keppninnar og er keppnistímabili Stjörnunnar lokið í ár.
Arnar Guðjónsson, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta var svekktur eftir að lið hans tapaði gegn Íslandsmeisturum Vals í 8-liða úrslitum Subway deildar karla í körfubolta í kvöld í Umhyggjuhöllinni. Með tapinu eru Stjörnumenn úr leik og er því körfubolta tímabilinu lokið hjá Garðabæjarliðinu.
Forsvarsmenn NBA-deildarinnar hafa sektað lið Dallas Mavericks um 750.000 dollara fyrir að hafa hvílt leikmenn í leik gegn Chicago Bulls í síðustu viku.
Stjarnan fær Val í heimsókn í Umhyggjuhöllina í kvöld í fjórða leik liðanna í 8-liða úrslitum úrslitakeppni Subway deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.
„Við ætluðum okkur ekki í sumarfrí,“ sagði Sólrún Inga Gísladóttir, leikmaður Hauka, eftir 70-80 sigur á móti Val í fjórða leik liðanna í úrslitakeppni Subway deildar kvenna.
Eftir að hafa lent 2-0 undir í einvíginu hafa Haukar jafnað metin í 2-2 og tryggðu sér í kvöld oddaleik sem fram fer í Ólafssal á sunnudag. Reikna má með brjáluðum látum þar sem sigurvegarinn þar mætir Keflavík í úrslitum Subway-deildar kvenna í körfubolta.
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur í Subway deild kvenna í körfubolta, var ekkert sérstaklega glaðlegur í lok fjórða leiks liðs hans gegn Keflavík í undanúrslitum deildarinnar. Keflavík vann stórsigur 44-79 og er komið í úrslit en leiktíð Njarðvíkur er á enda. Íslandmeistaratitilinn sem Njarðvíkingar unnu á síðustu leiktíð er á leið annað.
Fyrr í kvöld fór fram fjórði leikur Njarðvíkur og Keflavíkur í undanúrslitum Subway deildar kvenna. Um var að ræða heimaleik Njarðvíkinga í Ljónagryfjunni. Keflavík hafði forystu í einvíginu með tvo vinninga gegn einum og gat tryggt sér sæti í úrslitunum með sigri. Skemmst er frá því að segja að Keflavík vann stóran sigur í leiknum 44-79 og tryggði sér þar með sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn,
Chicago Bulls gróf sig upp úr djúpri holu og hélt sér á lífi í NBA-deildinni í körfubolta í gærkvöld með 109-105 sigri gegn Toronto Raptors, þar sem dóttir DeMar DeRozan vakti mikla athygli. Oklahoma City Thunder sendi New Orleans Pelicans í sumarfrí með 123-118 sigri.
„Ég er ekkert eðlilega kátur og stoltur,“ sagði afar ánægður Maté Dalmay eftir glæsilegan sigur Hauka á Þór Þorlákshöfn í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla í Ólafssal í kvöld. Liðið var án tveggja mikilvægra pósta í þeim Norbertas Giga og Darwin Davis Jr. Sigurinn þýðir að Haukar eru komnir 2-1 yfir í einvíginu.
Tindastóll hefði með sigri tryggt sér sæti í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta en Keflavík var ekki alveg á því máli að láta sópa sér úr keppni. Keflavík vann einstaklega öruggan sigur og einvígið lifir því áfram.
Haukar tóku á móti Þór Þorlákshöfn í þriðja leik liðanna í átta liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta. Hvort lið hafði unni sitt hvora viðureignina fyrir leik kvöldsins og það var því mikið undir í Ólafssal í kvöld.
Keflvíkingar unnu yfirburða sigur á Tindastóli í kvöld í þriðju viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla, lokatölur 100-78. Keflvíkingar virtust vera með góð tök á leiknum allt frá upphafi og gestirnir aldrei líklegir til að gera leikinn spennandi.
Pavel Ermolinskij, þjálfari Tindastóls, segir ekkert pláss fyrir værukærð hjá sínum mönnum fyrir leik kvöldsins við Keflavík í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta. Tindstóll leiðir einvígið 2-0 og þarf aðeins einn sigur enn til að tryggja sæti í undanúrslitum.
Icepharma, umboðsaðili Nike á Íslandi, og Samfilm héldu glæsilega forsýningu á AIR bíómyndinni í Ásbergssalnum í Kringlunni fyrir páska.
Los Angeles Lakers og Atlanta Hawks tryggðu sér í nótt sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Sigur Lakers var dramatískur og réðust úrslitin í framlengingu.