Markaðir rétta úr kútnum, Brim hækkar um meira en 11 prósent Eftir einn svartasta dag í Kauphöllinni frá fjármálahruninu 2008 varð mikill viðsnúningur á hlutabréfamörkuðum í dag og hækkaði Úrvalsvísitalan um rúmlega 3,6 prósent eftir að hafa fallið um nærri 6 prósent daginn áður. Öll félögin á aðalmarkaði hækkuðu í verði, mest Brim, en gengi bréfa sjávarútvegsfélagsins hækkaði um 11,5 prósent og hefur virði þess á markaði aldrei verið meira. Innherji 25. febrúar 2022 16:59
Rússum meinuð þátttaka í Eurovision European Broadcasting Union (EBU), eða Samband evrópskra ríkisútvarpa, hefur ákveðið að meina Rússum þátttöku að Evrópsku söngvakeppninni, vegna árásar Rússa inn í Úkraínu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá EBU. Erlent 25. febrúar 2022 16:55
Norrænu sjónvarpsstöðvarnar vilja Rússland úr Eurovision Forsvarsmenn norrænu sjónvarpsstöðvanna sem taka þátt í Eurovision keppninni vilja að Rússlandi verði vísað úr keppninni í ár vegna innrásarinnar í Úkraínu. Tónlist 25. febrúar 2022 15:25
Tölum fyrir friði og mannúð Í gær laut skynsemin í lægra haldi fyrir stríði þegar Pútín réðist inn í Úkraínu. Eins og alltaf græða fáir á stríði en hörmungarnar sem fylgja falla í skaut almennings sem þráir frið og fyrirlítur stríð. Skoðun 25. febrúar 2022 15:00
Forstjóri Brims: „Meiri eftirspurn eftir okkar fiski“ ef það verður lokað á Rússland Sjávarútvegsfyrirtækið Brim seldi fiskafurðir til Úkraínu og Hvíta-Rússlands fyrir samanlagt um 20 milljónir evra, jafnvirði tæplega 3 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. „Við vitum að þeir [Úkraínumenn] munu halda áfram að borða fisk þrátt fyrir stríðsátökin. Þetta er ódýrasti og besti maturinn sem þeir fá.“ Innherji 25. febrúar 2022 13:48
Innrásin í Úkraínu gæti skaðað framtíðarhagsmuni Rússlands í Evrópu Innrás Rússa í Úkraínu gætu flýtt orkuskiptum í Þýskalandi og Evrópu að mati efnahags- og loftlagsráðherra Þýskalands og þannig gert álfuna minna háða orkugjöfum frá Rússlandi. Forseti Úkraínu segir rússneskar hersveitir ekki gera nokkurn greinarmun á hernaðarlegum og borgaralegum skotmörkum. Erlent 25. febrúar 2022 13:07
„Biðjið fyrir okkur“ Stríðsástand í Úkraínu hefur auðvitað mikil áhrif á marga og ekki bara Úkraínumenn og Rússa. Erlendir atvinnumenn í landinu eru í vandræðum að sleppa í burtu. Fótbolti 25. febrúar 2022 12:00
Hefja neyðarsöfnun fyrir börn í Úkraínu UNICEF á Íslandi hefur hafið neyðarsöfnun vegna umfangsmikilla verkefna UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í Úkraínu þar sem börn og fjölskyldur þurfa tafarlausa aðstoð. Vopnuð átök ógna nú lífi og velferð milljóna barna. Innlent 25. febrúar 2022 11:44
Ráðherra hefur ekki falið flóttamannanefnd að fjalla um Úkraínu Flóttamannanefnd mun koma saman í næstu viku á reglulegum fundi. Ráðherra hefur enn ekki falið nefndinni að meta stöðu mála í Úkraínu en Stefán Vagn Stefánsson, formaður nefndarinnar, segir í samtali við fréttastofu að ástandið í Úkraínu verði að öllum líkindum rætt á fundi nefndarinnar, sama hvort það verðir á dagskrá eða utan hennar. Innlent 25. febrúar 2022 10:24
Merkel fylgist áhyggjufull með þróuninni Angela Merkel, fyrrverandi Þýskalandskanslari, hefur fordæmt innrás Rússa í Úkraínu og stendur að sögn þýskra miðla þétt við bakið á sporgöngumanni sínum í embætti, Olaf Scholz kanslara. Erlent 25. febrúar 2022 09:56
Úrslitaleikurinn tekinn af Rússum og færður Frökkum Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, ákvað í dag að stærsti leikur tímabilsins, úrslitaleikur Meistaradeildar karla, yrði færður frá Pétursborg í Rússlandi til Parísar í Frakklandi. Fótbolti 25. febrúar 2022 09:49
Stjórnvöld hvetja íbúa til að berjast gegn Rússum með bensínsprengjum Rússneski herinn er nú kominn inn í Obolon-hverfið í Kænugarði, um níu kílómetra norður af þinghúsinu í miðborg Kænugarðs. Úkraínsk stjórnvöld hafa hvatt íbúa til að berjast gegn innrásarhernum, meðal annars með því að útbúa bensínsprengjur. Erlent 25. febrúar 2022 08:52
Versti dagur í langan tíma Icelandair hefur lækkað mest íslenskra félaga á rauðum degi á hlutabréfamarkaði í dag. Hækkandi olíuverð bítur flugfélög - en mun væntanlega einnig bíta íslenska neytendur, þegar það ratar inn í bensínverð. Viðskipti erlent 25. febrúar 2022 08:01
Jós fúkyrðum yfir rússneska sendiherrann Mikill fjöldi fólks stóð við sendiráð Rússa við Túngötu síðdegis í gær og mótmæltu innrás Rússa í Úkraínu. Innlent 25. febrúar 2022 07:59
Heldur til í sprengjuskýli: Bardagar allt í kring um borgina Íbúar í Kænugarði, sem hafa ekki flúið borgina, eru nú margir í sprengjuskýlum vegna árása Rússa í morgun. Rússar hófu árásir af fullum krafti um klukkan fjögur í nótt en tvær íbúðabyggingar í Kænugarði urðu fyrir rússneskri þotu sem var skotin niður og eru nú rústir einar. Innlent 25. febrúar 2022 07:54
Um hvað snýst stríðið í Úkraínu? Stríð byrja skyndilega en eiga sér þó jafnan aðdraganda. Innherji 25. febrúar 2022 07:01
Vaktin: Hart barist í Kænugarði Loftárásir Rússa hófust aftur klukkan fjögur í nótt að staðartíma í Úkraínu. Nú er sólarhringur liðinn síðan Rússar hófu allsherjarinnrás í Úkraínu og talið er að tæplega 140 Úkraínumenn hafi fallið í átökunum. Erlent 25. febrúar 2022 06:54
Selenskíj telur markmið Pútíns að bola sér frá völdum Volódímír Selenskíj, forseti Úkraínu, hefur heitið því að halda kyrru fyrir í Kænugarði á meðan úkraínski herinn verst árásum Rússa, sem nálgast höfuðborgina óðfluga. Erlent 25. febrúar 2022 06:49
Instagram eyddi færslu Zinchenko um Putin Stríð geisar nú í Úkraínu þar sem rússneski herinn hefur ráðist inn í suðri, austri og norðri. Enski boltinn 24. febrúar 2022 23:30
Grípa til umfangsmikilla refsiaðgerða en ganga ekki eins langt og sumir myndu vilja Leiðtogar Bandaríkjanna, Bretlands og Evrópusambandsins tilkynntu síðdegis um refsiaðgerðir gegn Rússum vegna innrásarinnar í Úkraínu. Þrátt fyrir að ríkin fullyrða að þeirra aðgerðir séu þær hörðustu og umfangsmestu í sögunni var ekki ákveðið að loka fyrir aðgengi Rússa að alþjóðlega SWIFT-greiðslukerfinu, sem flestir eru sammála um að myndi reynast mikið högg. Erlent 24. febrúar 2022 23:20
NATO eykur viðbúnað sinni í aðildarríkjunum í austri Allar helstu þjóðir Vesturlanda hafa fordæmt innrás Rússa í Úkraínu og ákveðið að herða á refsiaðgerðir sínar gagnvart þeim. Nato ætlar að styrkja herafla sinn í aðildarríkjum sínum í austur Evrópu. Erlent 24. febrúar 2022 21:14
Eins og fjölskylda að éta sjálfa sig Rússnesk kona sem búsett hefur verið á Íslandi um árabil er í áfalli vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Hana óraði ekki fyrir því að Pútín léti til skarar skríða. Innlent 24. febrúar 2022 21:00
Forseti Úkraínu kallar almenning til vopna Stjórnvöld í Úkraínu skora á almenning að sækja sér vopn í vopnabúr stjórnarhersins og berjast á móti innrásarher Rússlands. Mikill fjöldi manns hefur reynt að flýja í vesturátt frá austurhéruðum landsins þar sem ástandið er verst og frá höfuðborginni Kænugarði. Erlent 24. febrúar 2022 20:16
Sendiherra Rússa segir markmið að ganga frá her Úkraínu og nasistum þar Sendiherra Rússlands á Íslandi segir markmið innrásarinnar í Úkraínu að afhernaðarvæða landið sem hafi ógnað öryggi Rússlands. Ganga þurfi milli bols og höfuðs á nasistum í Úkraínu sem þrífist þar í skjóli stjórnvalda. Innlent 24. febrúar 2022 19:45
„Sýnir okkur kannski að áhrifamáttur Vesturlanda er ekki eins mikill og þau sjálf halda“ Eiríkur Bergmann Einarsson prófessor segir að atburðirnir í Úkraínu sé heimssögulegur viðburður en að Vesturlönd hafi nánast sent boðsbréf til Kremlar og boðið Rússa velkomna að taka yfir Úkraínu. Erlent 24. febrúar 2022 19:24
Mótmæltu við rússneska sendiráðið Boðað er til mótmæla við rússneska sendiráðið í Túngötu klukkan 17:30 í dag vegna innrásar Rússlands inn í Úkraínu. Fréttastofa verður í beinni frá mótmælunum á Vísi. Innlent 24. febrúar 2022 17:02
Sárt að fylgjast með úr fjarlægð og vill refsiaðgerðir gegn ólígörkum Úkraínumaðurinn Naz Davidoff segir erfitt og sársaukafullt að fylgjast með átökunum í Úkraínu úr fjarlægð frá Íslandi. Hann hefur verið í nánu sambandi við vini og ættingja sína í landinu í dag og hefur áhyggjur af öryggi þeirra. Innlent 24. febrúar 2022 16:13
Mótmæli við sendiráðið: „Erfitt að lýsa þessu með orðum“ Rússneskur blaðamaður búsettur á Íslandi kveðst skammast sín fyrir hönd þjóðar sinnar í dag, nú þegar rússneski herinn hefur ráðist af fullum mætti inn í Úkraínu. Boðað er til mótmæla við rússneska sendiráð við Túngötu klukkan 17.30. Innlent 24. febrúar 2022 15:35
UEFA ætlar að taka úrslitaleik Meistaradeildarinnar af Rússum Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, ætlar að taka úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu af Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Fótbolti 24. febrúar 2022 15:31
„Vona að þessir stóru menn með engan heila muni stöðva þetta stríð“ Rúmenski knattspyrnustjórinn Mircea Lucescu, sem stýrir Dymamo Kiev í Úkraínu, segist verða að sýna gott fordæmi og ætlar ekki að yfirgefa Kænugarð þrátt fyrir innrás Rússa í landið og sprengingar í borginni. Fótbolti 24. febrúar 2022 14:31