Grindavík

Grindavík

Mannfjöldi: 1.246 (2025). Flatarmál: 423 ferkílómetrar.


Fréttamynd

„Halda að við séum í ein­hverju stríði en hann er minn maður“

Tindastóll eru ekki dauðir úr öllum æðum og sóttu gríðarlega mikilvægan sigur í leik þrjú í úrslitaeinvíginu í Grindavík. Með bakið upp við vegg og 2-o undir náði Tindastóll að tryggja sér fjórða leikinn með fimm stiga sigri 89-94. Dedrick Basile ræddi við Andra Már Eggertsson eftir leik í kvöld.

Sport

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Grinda­vík - Tinda­stóll 89-94| Tinda­stóll heldur lífi í ein­víginu

Þriðji leikur úrslitaeinvígis Bónus deild karla fór fram í HS Orku höllinni í kvöld þegar heimamenn í Grindavík mættu Tindastól. Grindavík leiddi einvígið 2-0 og gat með sigri tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á meðan Tindastóll var með bakið upp við vegg.Eftir stórkostlegan körfuboltaleik náði Tindastóll frábærum fimm stiga sigri 89-94 og tryggði sér um leið fjórða leikinn í einvíginu.

Körfubolti
Fréttamynd

Að­dáunar­verð þraut­seigja Grind­víkinga

Aðstæður íbúa Grindavíkur hafa verið mér hugleiknar allt frá því jarðskjálftahrinur hófust fyrir alvöru á Reykjanesi og síðan hvert eldgosið á fætur öðru. Fyrir okkur sem búum ekki í bænum er erfitt að ímynda sér hvernig fólki líður sem gert hefur verið að rífa sig upp með rótum og yfirgefa bæinn sinn, húseignir, atvinnu og samfélag.

Skoðun
Fréttamynd

Trúin og traustið innan hópsins eigi eftir að skila liðinu á­fram

„Ég er bara fullur tilhlökkunar og ótrúlega spenntur fyrir kvöldinu. Þetta eru sérstakir leikir, oddaleikir, og við fórum í einn slíkan síðastliðið vor og mér finnst stelpurnar hafa sýnt mikla yfirvegun og mikið hugrekki í gegnum það mótlæti sem hefur mætt í þessari seríu,“ segir Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkinga fyrir oddaleikinn í kvöld þegar liðið tekur á móti Grindavík í IceMar höllinni í kvöld en leikurinn verður í beinni á Sýn Sport Íslands.

Sport
Fréttamynd

Kaupleiga er bjarg­ráð – ekki brask

Það er þyngra en tárum taki að heyra af ráðherra og aðstoðarmanni hans tala um frekju Grindvíkinga. Grindvíkingar hafa skapað tugi milljarða í tekjur fyrir þjóðarbúið í gegnum tíðina Grindvíkingar eru ekki að biðja um ölmusu, við erum ekki að betla neitt af ríkinu. Við viljum geta keypt húsin okkar aftur á sanngjörnu markaðsverði, þegar markaðsverð liggur fyrir.

Skoðun
Fréttamynd

Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“

„Þetta var bara óheppni. Það er bara ég Keyshawn [Woods] sem lendum saman og í fyrsta leiknum þá lenti ég líka í þessu en þá var ég í loftinu. Þannig að ég held að það hjálpaði með höggið sjálft,“ segir Frank Aron Booker í kvöldfréttum Sýnar en hann braut part úr hnénu í leik á sunnudagskvöldið. Frank verður eðli málsins samkvæmt ekki meira með Valsliðinu í úrslitakeppninni en Valur vann Grindavík 79-72 í undanúrslitaeinvíginu og er staðan í því einvígi 1-1.

Körfubolti
Fréttamynd

„Við verðum að fá fólk heim aftur“

Grindvískt fjölskyldufyrirtæki vinnur nú að því að fylla upp í allt að 15 metra djúpa sprungu við íþróttahúsið í Grindavík. Framkvæmdastjórinn segir verkið snúast um að gera bæinn öruggan á ný fyrir börn og fjölskyldur.

Innlent
Fréttamynd

Reiði yfir pítsupartíi: Aug­lýst á fundi án sam­ráðs

Grindvíkingar og aðrir virðast verulega reiðir yfir því að valkyrjurnar svokölluðu hafi hist heima hjá Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, í kvöld og borðað saman pítsu. Mörgum finnst það miður þar sem Kristrún hafi verið beðin um að mæta á íbúafund í Grindavík í dag. Kristrún tilkynnti á mánudaginn að hún kæmist ekki á fundinn og spilar kvöldverðurinn ekki þar inn í.

Innlent