Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. september 2026 19:00 Frá Grindavík. Vísir/Vilhelm Forsætisráðuneytið og Grindavíkurbær kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík á opnum fundi í Gjánni, í Grindavík í kvöld klukkan 20:00. Fundinum verður streymt í beinni hér á Vísi.
Fram kom fyrr í dag að meðal þess sem verður lagt til í nýju áhættumati sé að Grindvíkingum verði boðið að kaupa hús sín til baka. Forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík séu ásættanlegar að því gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar öryggisráðstafanir virkar. Í tilkynningu frá bænum segir að á fundinum verði kynntar fyrstu niðurstöður úr vinnu við nýtt áhættumat fyrir Grindavík. Lokið hafi verið við grunnvinnuna: Gagnalíkan, mælikvarða, vinnuferli og lifandi kerfi sem heldur utan um áhættuvísa og mótvægisaðgerðir fyrir Grindavík. „Aðferðafræðin byggir á samráðsferli sem staðið hefur yfir undanfarna mánuði um áhættumiðaða ákvarðanatöku fyrir Grindavík, í þremur þáttum: Öryggi, húsnæði og skólahaldi. Með þessari vinnu hefur verið lagður grunnur að lifandi áhættumati með 23 áhættuvísum og 150 mótvægisaðgerðum sem snerta daglega tilveru í Grindavík. Markmiðið er að með virkum aðgerðum verði unnt að tryggja öryggi fólks sem dvelur, býr eða starfar í Grindavík, á sambærilegan hátt og í öðrum byggðarlögum sem búa við náttúruvá.“ Næstu skref verði síðan opinbert lifandi áhættumat með gagnsæi og rekjanleika, þar sem allir geti séð á hverju ákvarðanir byggja og hvernig niðurstöður eru fengnar.
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Fleiri fréttir Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Sjá meira