

Allt það helsta sem viðkemur flugi.
WOW segir viðræður við leigusala tveggja véla sem hafa verið kyrrsettar ganga vel.
Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir inntak bréfs Íslenska flugmannafélagsins ÍFF, til marks um fjarstæðukennda óra. Það sé fullkomlega fráleitt að íslenskir blaðamenn hafi þegið mútur frá Iceland air eins og ýjað er að. Hann segir að siðanefnd BÍ hefði ekki borist formleg kvörtun vegna málsins.
Bandaríska fjárfestingafélagið Indigo Partners neitar að tjá sig um það hvort að félagið eigi nú í formlegum viðræðum við WOW air um að fjárfesta mögulega í félaginu.
Íslenska flugmannafélagið ÍFF, stéttarfélag flugmanna WOW air, óskar eftir að því að formaður Blaðamannafélags Íslands rannsaki heimildaöflun íslenskra blaðamanna um málefni WOW air í ljósi "óvæginnar umfjöllunar íslenskra fréttamiðla“. Þetta kemur fram í bréfi sem félagið sendi Blaðamannafélagi Íslands.
Sviðsmyndagreining sem fjármála- og efnahagsráðuneytið vann fyrir ráðherranefnd vegna stöðu WOW air og hvaða áhrif það gæti haft á efnahagslífið ef fyrirtækið fer í gjaldþrot fæst ekki afhent.
Forsvarsmenn Icelandair hafa ákveðið að hætta við fyrirhugað áætlunarflug til borganna Cleveland og Halifax í sumar.
Icelandair á von á sex nýjum Boeing 737 MAX 8 vélum á þessu ári. Forráðamenn félagsins segjast vera að skoða til hvaða ráða verði gripið dragist kyrrsetning vélanna á langinn. Raskanir á flugi má rekja til kyrrsetningar þriggja véla félagsins.
Viðskiptaáætlun til 2021 gerir ráð fyrir miklum viðsnúningi í rekstri félagsins. Lausafjárstaðan verði jákvæð um meira en milljarð í júní. Eigandi 51 prósents hlutar með forgang að arðgreiðslum. Indigo aftur fengið að borðinu.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir það fásinnu að tala um ríkisábyrgð í samhengi við lán sem Landsbankinn veitti flugfélaginu nýverið.
Komið hefur í ljós við endursköpun þeirra aðstæðna í flughermi sem flugmenn Lion Air þotunnar sem hrapaði í Indónesíu á síðasta ári stóðu frammi fyrir að þeir höfðu aðeins 40 sekúndur til þess að aftengja flugkerfið sem grunur leikur á að hafi spilað stóran þátt í flugslysinu.
Ekki þarf að búast við stóráföllum í efnahagslífi landsins takist ekki að koma rekstri WOW AIR fyrir vind að mati framkvæmdastjóra fjármálastöðuleika í Seðlabanka Íslands. Ef það takist muni það hins vegar hafa jákvæð áhrif á þróun þess.
Samskiptastjóri Samgöngustofu segir stofnunina sinna fjárhagslegu eftirliti með flugrekendum í samræmi við samevrópska reglugerð líkt og aðrar flugmálastjórnir í Evrópu.
Skúli Mogensen, fostjóri WOW air, vill ekki tjá sig um það hvort að bandaríska fjárfestingafélagið Indigo Partners sé komið aftur að borðinu sem mögulegur fjárfestir í flugfélaginu.
Skúli segir að rætt verði við alla líklega fjárfesta, þar á meðal lífeyrissjóði.
Stóra spurningin sem stendur eftir er hversu hratt þeim tekst að safna fimm milljörðum.
Það var gott hljóð í Skúla Mogensen, forstjóra og stofnanda WOW air, þegar fréttastofan náði tali af honum í höfuðstöðvum WOW air nú á þriðja tímanum í dag.
Forstjóri Airport Associates segist styðja Skúla áfram sem forstjóra.
WOW air hefur sent frá sér tilkynningu.
Samskiptastjóri Samgöngustofu segir að eftirlit með flugfélögum geti tekið breytingum eftir aðstæðum. Árlegt eftirlit með fjárhag flugfélaga til að tryggja flugöryggi geti orðið viðvarandi ef þörf krefur.
Heimsferðir hafa samið við Norwegian um flug sitt til Kanaríeyja næsta vetur, en Norwegian mun staðsetja vél á Íslandi til að sinna flugi fyrir fyrirtækið.
Björgólfur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, segir að Samgöngustofu hafa að sínu mati brugðist eftirlitshlutverki sínu gagnvart WOW air. Þetta sagði Björgólfur í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann sagði að of svört mynd væri dregin upp af áhrifunum sem verða ef WOW air hættir rekstri.
Starfsmenn eþíópíska samgönguráðuneytisins gera ráð fyrir að bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar um flugslys Ethiopian Airlines muni ligga fyrir í þessari viku.
Flugvélaframleiðandinn Airbus undirritaði í gær samning um að selja kínverska ríkinu 300 þotur.
Óvissa um stöðu WOW er farin að hafa áhrif á kjaraviðræður. Fundi hjá ríkissáttasemjara var frestað í gær vegna stöðunnar en þær halda áfram í dag. Að óbreyttu verða næstu verkfallsaðgerðir Eflingar og VR næstkomandi fimmtudag og föstudag. Formaður VLFA segir launafólk ekki bera ábyrgð á stöðunni.
Ráðgjafar WOW air leita allra leiða til að fá fjármagn að borðinu á mettíma. Kunnugir óttast að kraftaverk þurfi til. Kyrrsetning á vélum WOW rötuðu í erlenda fjölmiðla í gær og það hefur gríðarleg áhrif.
Bandaríska loftferðaeftirlitið, FAA, hefur gefið forsamþykki fyrir uppfærslu Boeing á stýrikerfi 737 Max-þotanna sem nú hafa sætt kyrrsetningu í meira en tíu daga.
Aðeins ein breyting er fyrirhuguð í flugáætlun WOW Air á morgun en það er brottför félagsins frá Keflavík til Las Palmas
Illmögulegt hefur reynst að fá upplýsingar frá félaginu um gang mála.
Unnið sé að því að safna staðfestingum svo hægt sé að hefja ferlið.
Nokkrum flugferðum WOW til og frá Keflavík hefur verið aflýst.