Mark Kristínar dugði skammt gegn AGF Kristín Dís Árnadóttir skoraði eina mark Bröndby í 2-1 tapi gegn AGF í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Hafrún Rakel Halldórsdóttir var utan hóps hjá Bröndby í dag. Fótbolti 13. apríl 2024 13:58
Meiðsli herja á landsliðskonur Áfram herja meiðsli á sóknarmenn íslenska landsliðsins og setja svip sinn á þýsku úrvalsdeildina í fótbolta. Sveindís Jane Jónsdóttir verður ekki með Wolfsburg næstu misserin og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Bayer Leverkusen, fór meidd af velli í dag. Fótbolti 13. apríl 2024 13:40
„Hart og ljótt brot“ en Sveindís slapp með slitin liðbönd Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í fótbolta, kveðst þakklát yfir því að geta spilað fótbolta á ný fyrr en óttast var í fyrstu, eftir að hún meiddist í öxl í leiknum við Þýskaland í síðsutu viku. Fótbolti 13. apríl 2024 09:30
Leicester að fatast flugið í toppbaráttunni Leicester City ætlar að ganga bölvanlega að tryggja sér sæti í efstu deild að ný en liðið tapaði í kvöld á útivelli gegn Plymouth 0-1. Fótbolti 12. apríl 2024 22:31
Emma Hayes svaraði fyrir sig með ljóði Samskipti, eða samskiptaleysi jafnvel, þeirra Emmu Hayes, stjóra Chelsea og Jonas Eidevall stjóra Arsenal, eftir bikarúrslitleik liðanna á dögunum halda áfram að rata í fjölmiðla en Hayes tjáði sig um málið á blaðamannafundi í dag en á nokkuð óhefðbundin hátt. Fótbolti 12. apríl 2024 17:45
KSÍ ræður fyrrum landsliðskonu til starfa á skrifstofunni Knattspyrnusamband Íslands hefur ráðið Katrínu Ómarsdóttur tímabundið til starfa á skrifstofu sambandsins. Fótbolti 12. apríl 2024 15:11
KR-ingar líta í kringum sig: „Þetta er mikill skellur“ Gregg Ryder, þjálfari karlaliðs KR í fótbolta, segir vonbrigði að missa tvo kantmenn liðsins í meiðsli. Þetta sé tækifæri fyrir aðra að stíga upp og þá útilokar hann ekki styrkingu á hópnum í ljósi þessa. Íslenski boltinn 12. apríl 2024 11:08
Börn Kane sluppu vel Harry Kane, framherji Bayern München, var nýlentur í London á mánudag, vegna leiksins við Arsenal, þegar hann fékk þær fréttir að þrjú elstu börn hans hefðu lent í árekstri í Þýskalandi. Fótbolti 12. apríl 2024 09:31
Á kafi í fjárhættuspili í afmæli dóttur sinnar Myndband af brasilíska fótboltakappanum Neymar á kafi í netpóker í sex mánaða afmæli dóttur sinnar hefur breiðst út eins og eldur í sinu um netheima. Fótbolti 11. apríl 2024 22:57
„Við spiluðum illa og áttum skilið að tapa“ „Þetta var skelfilegur leikur, guð minn góður. Við byrjuðum vel, mjög vel, en héldum því ekki áfram. Við vorum alls staðar en á sama tíma ekki neins staðar“ sagði Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, eftir 0-3 tap gegn Atalanta. Fótbolti 11. apríl 2024 22:30
Mikael Neville og Stefán Teitur mætast í bikarúrslitaleik AGF fór með sigur af hólmi í einvígi sínu gegn Nordsjælland, 4-2 samanlagt. Mikael Neville Anderson og Stefán Teitur Þórðarson munu því mætast í úrslitaleik dönsku bikarkeppninnar. Fótbolti 11. apríl 2024 21:36
Rauði herinn horfði á slæmt tap Liverpool mátti þola slæmt tap, 0-3 á heimavelli, gegn Atalanta í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Fótbolti 11. apríl 2024 18:31
Stíflan brast undir lokin og Leverkusen vann West Ham tók á móti Bayer Leverkusen í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar og veitti gestunum hörku viðureign, en tapaði að endingu 0-2. Jonas Hoffmann og Victor Boniface tryggðu Leverkusen sigurinn. Fótbolti 11. apríl 2024 18:31
Hákon og félagar lágu fyrir heimamönnum á Villa Park Hákon Arnar Haraldsson og félagar í franska liðinu Lille töpuðu 2-1 fyrir Aston Villa í átta liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu. Fótbolti 11. apríl 2024 18:31
Töpuðu leiknum en unnu einvígið og eru komnir í úrslit Silkeborg er komið í úrslit dönsku bikarkeppninnar í fótbolta eftir samanlagðan 6-3 sigur gegn FC Fredericia. Stefán Teitur Þórðarsson skoraði tvö mörk í fyrri leiknum og spilaði 65 mínútur í dag. Fótbolti 11. apríl 2024 17:57
Fjölnota íþróttahús KR á leið í útboð Borgarráð hefur samþykkt að heimila umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur að hefja útboðsferli vegna byggingar á nýju fjölnota íþróttahúsi KR við Frostaskjól, sem mun bæta æfingaaðstæðu mjög fyrir iðkendur á öllum aldri. Húsið verður alls um 6700 fermetrar og þar af er íþróttasalur um 4400 fermetrar. Innlent 11. apríl 2024 16:58
Stjóri Dortmund bað um sjálfu með Del Piero Knattspyrnustjórar stærstu liða heims eru í grunninn fótboltaáhugamenn sem eiga sínar hetjur eins og kom í ljós eftir leik Atlético Madrid og Borussia Dortmund í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Fótbolti 11. apríl 2024 15:30
Neituðu að ræða við sjónvarpsstöð vegna niðrandi ummæla um Yamal Barcelona og Paris Saint-Germain neituðu að veita sjónvarpsstöðinni Movistar viðtal vegna ummæla álitsgjafa hennar um Börsunginn unga, Lamine Yamal. Fótbolti 11. apríl 2024 14:40
Unun að horfa á Cubarsí: „Ég var að falla á þriðja bílprófinu þegar ég var sautján“ Pau Cubarsí, 17 ára miðvörður Barcelona, var til umræðu í Meistaradeildarmörkunum á Stöð 2 Sport 2 í gærkvöld, eftir leikinn við PSG í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 11. apríl 2024 11:30
Sjokkerandi tap gegn E-deildarliði en Óskar sér ekki eftir neinu Lærisveinar Óskars Hrafns Þorvaldssonar í Haugesund urðu að sætta sig við afar óvænt tap gegn E-deildarliði Torvastad í 1. umferð norsku bikarkeppninnar í fótbolta í gær. Fótbolti 11. apríl 2024 10:01
Sjáðu öll mörkin í París og Madrid: Daninn hetja með fyrstu snertingu Það var svo sannarlega nóg skorað af mörkum í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld og nú má sjá öll mörkin hér á Vísi, bæði úr leik PSG og Barcelona, og Atlético Madrid og Dortmund. Fótbolti 11. apríl 2024 09:30
Bjóst við tíu leikjum ekki tíu árum Daninn Patrick Pedersen skoraði um helgina sitt hundraðasta mark í efstu deild hér á landi og er því kominn í fámennan hóp manna með þriggja stafa tölu. Hann stefnir á að verða markahæstur í sögu deildarinnar. Íslenski boltinn 11. apríl 2024 08:00
Sex handteknir vegna morðsins á Fleurs Knattspyrnumaðurinn Luke Fleurs var skotinn til bana í Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Í gær, miðvikudag, voru sex manns handteknir vegna morðsins. Fótbolti 11. apríl 2024 07:00
HK fékk fyrstu sekt sumarsins Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur sektað HK um 7000 krónur vegna fjölda gulra spjalda sem liðið fékk þegar það heimsótti KA í 1. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Íslenski boltinn 10. apríl 2024 23:30
Aðalmarkvörðurinn framlengir á meðan varamarkvörðurinn riftir Ólafur Kristófer Helgason hefur framlengt samning sinn við Fylki til ársins 2027. Á sama tíma fékk Jón Rivine samningi sínum við félagið rift. Íslenski boltinn 10. apríl 2024 23:00
Einvígið lifir þökk sé marki undir lokin Atlético Madrid hefur ekki enn tapað í útsláttarkeppni Meistaradeild Evrópu undir stjórn Diego Simeone. Leikirnir eru nú orðnir 17 talsins en Atlétíco lagði Dortmund 2-1 í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 10. apríl 2024 21:05
Frábær sigur Börsunga í París Barcelona vann frábæran 3-2 útisigur á París Saint-Germain í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn var sveiflukenndur en bæði lið voru með forystuna á einhverjum tímapunkti. Fótbolti 10. apríl 2024 20:55
Berglind Björg frá París til Íslandsmeistara Vals Berglind Björg Þorvaldsdóttir mun ganga í raðir Vals þegar samningur hennar við París Saint-Germain rennur út í sumar. Fótbolti.net greindi fyrst frá. Íslenski boltinn 10. apríl 2024 19:55
Segir að Bompastor leysi Hayes af hólmi hjá Chelsea Það virðist sem Chelsea sé búið að finna arftaka Emmu Hayes. Sú heitir Sonia Bompastor og er í dag þjálfari franska stórliðsins Lyon. Enski boltinn 10. apríl 2024 19:19
Sveindís Jane óbrotin og fór ekki úr axlarlið Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir fór hvorki úr axlarlið né axlarbrotnaði í leiknum gegn Þýskalandi í undankeppni EM 2025 sem fram fór ytra í gær. Búist var við hinu versta eftir að Sveindís Jane yfirgaf völlinn vegna meiðsla á öxl í fyrri hálfleik. Fótbolti 10. apríl 2024 18:01