Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2026 09:01 Ásgeir Helgi Orrason og félagar í Breiðabliksliðinu voru skiljanlega mjög ósáttir við nokkra dóma í leik Breiðabliks og FH í gærkvöldi. Sýn Sport Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, var skiljanlega ósáttur eftir leikinn við FH í Kaplakrikanum í Bestu deild karla í fótbolta í gær og hafði ýmislegt til síns máls þegar hann gagnrýndi dómara leiksins í leikslok. Stúkan ræddi þessi vafaatriði í leik sem þurfti á marki að halda en endaði með markalausu jafntefli.
Mark var dæmt af Blikum, leikmaður FH komst upp með að verja boltann með hendi innan teigs og annar FH-ingur komst upp með að stíga á liggjandi leikmann Blika. „Óli fór bara beint bara í dómarann, eðlilega kannski, Baldur,“ spurði Jóhann Fjalar Skaptason sem sá um Stúkuna að þessu sinni. Stóru atriðin í þessum leik „Já, ég held að það séu hérna bara stóru atriðin í þessum leik,“ sagði Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar. Þeir tóku fyrst fyrir markið sem dæmt var af Blikum á 22. mínútu. Ólafur Ingi Skúlason trúði því ekki að Breiðablik hefði ekki fengið víti.Sýn Sport „Ég var nú þarna á vellinum í fyrri hálfleik og mér hefur enn þá ekki almennilega tekist að sjá annað en það að þeir séu að hanga utan í hvor öðrum. Er þetta nógu mikið til þess að hann detti?“ spurði Bjarni Guðjónsson, sérfræðingur Stúkunnar. Hafði engin áhrif á leikinn „Þetta er það lítið en ef að Ásgeir hefði skorað þá hefði maður kannski hugsað: Já, mögulegt að dæma á þetta en þetta er óralangt í burtu og það hefði engin áhrif á leikinn. Það finnst mér líka sérstakt í ákvörðuninni,“ sagði Baldur. Þeir viðurkenna báðir að þeir hefðu verið ósáttir sem þjálfarar við að fá svona dóm á sig. „Já, það hefði sennilega eitthvað aðeins fokið í mann,“ sagði Bjarni. Jóhannes Kristinn Bjarnason sést hér hálfskömmustulegur en Blikar mótmæla því að Gunnar dómari hafi dæmt horn ekki víti.Sýn Sport Þeir fóru líka yfir það þegar leikmaður FH varði skot með hendi og þegar Kristján Flóki Finnbogason steig ofan á Blika. Atvikið með hendina var auðvitað sérstakt því það var Jóhannes Kristinn Bjarnason, sonur Bjarna, sem varði skotið með hendinni. Bjarni viðurkenndi að dæma hefði átt víti á son hans. „Þetta er óskiljanlegt“ „Þetta er óskiljanlegt. Gunnar dómari stendur fjóra metra frá þessu og manni finnst hann bara horfa beint á þetta. Þannig að hann hlýtur að meta þessa ákvörðun. Ég held að hann sjái þetta hundrað prósent og hann meti þetta sem ekki henti. Af hverju gerir hann það?“ spurði Baldur. Bjarni tók undir það. „Það er ekkert annað hægt en að dæma víti. Höndin er í óeðlilegri stöðu og fyrir þá leikmenn sem lenda í þessari stöðu þá verða þeir bara að taka þessu í andlitið,“ sagði Bjarni. Þeir eru síðan báðir sammála um að það hefði átt að gefa Kristjáni Flóka rauða spjaldið fyrir að stíga ofan á liggjandi Blika en hér fyrir neðan má sjá alla umræðuna um atvikin sem Blikar voru skiljanlega mjög ósáttir við. Klippa: Umræða í Stúkunni um vafaatriðin í FH Breiðablik
Besta deild karla Breiðablik FH Stúkan Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira