Ungstirni Dortmund sagt vera fjórum árum eldra en talið var Nafn þýska ungstirnisins Youssoufas Moukoko hefur blandast inn í aldurssvindlið sem skekur kamerúnskan fótbolta. Moukoko er sagður vera fjórum árum eldri en hann á að vera. Fótbolti 13. janúar 2023 14:00
Gummi Ben með einhverja tilfinningu fyrir Napoli: Lýsir stórleiknum í kvöld Stórleikur kvöldsins í ítalska fótboltanum er leikur Napoli og Juventus í Napolíborg en þetta eru tvö efstu liðin í Seríu A eftir sautján umferðir. Fótbolti 13. janúar 2023 13:00
Sveindís Jane í þætti UEFA um stjörnur kvennaboltans: Stolt að vera blönduð Íslenski landsliðsframherjinn Sveindís Jane Jónsdóttir er andlit íslenskrar knattspyrnu í nýjum heimildaþáttum evrópska knattspyrnusambandsins. Fótbolti 13. janúar 2023 11:30
Sara Björk hætt í íslenska landsliðinu Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, hefur ákveðið að hætta að spila með landsliðinu. Fótbolti 13. janúar 2023 10:25
Karólína Lea um Glódísi: Liðfélagarnir í Bayern eru í áfalli hvað hún er góð Karólína Lea Vilhjálmsdóttir talar vel um liðsfélaga sinn Glódísi Perlu Viggósdóttur en þær eru saman í bæði Bayern München og íslenska A-landsliðinu. Fótbolti 13. janúar 2023 08:00
Dagný ánægð með hversu mikið hefur breyst á undanförnum fimm árum Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona og fyrirliði West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, er ánægð með þá breytingu sem hefur orðið á undanförnum árum þegar kemur að barneignum kvenna í íþróttum. Enski boltinn 13. janúar 2023 07:01
HK fær einn heitasta leikmann Lengjudeildarinnar Nýliðar HK eru byrjaðir að styrkja sig fyrir komandi átök í Bestu deild karla næsta sumar. Liðið tilkynnti í kvöld að það hefði samið við Marciano Aziz til tveggja ára. Íslenski boltinn 12. janúar 2023 22:45
Felix sá rautt í tapi Chelsea gegn Fulham João Félix byrjar lánstíma sinn hjá Chelsea ekki vel þar sem hann fékk beint rautt spjald í sínum fyrsta leik fyrir félagið. Til að bæta gráu ofan á svart þá tapaði Chelsea einnig leiknum gegn nágrönnum sínum í Fulham. Enski boltinn 12. janúar 2023 22:00
Fjölnir vann óvæntan sigur á Val | Fram fór létt með Leikni Tveir leikir fóru fram í Reykjavíkurmóti karla í knattspyrnu í kvöld. Fjölnir vann einkar óvæntan sigur á Val að Hlíðarenda á meðan Fram vann öruggan sigur á Leikni Reykjavík. Íslenski boltinn 12. janúar 2023 20:50
Ísland henti frá sér sigrinum Ísland glutraði niður eins marks forystu í vináttuleik gegn Svíþjóð í kvöld. Svíar skoruðu tvívegis undir lok leiks og unnu 2-1 sigur eftir að Sveinn Aron Guðjohnsen hafði komið Íslandi yfir í fyrri hálfleik. Fótbolti 12. janúar 2023 19:55
Jesper mun ekki spila á Íslandi næsta sumar Danski varnarmaðurinn Jesper Juelsgård hefur samið við B-deildarliðið Fredericia í heimalandinu. Hann mun því ekki spila fótbolta á Íslandi næsta sumar en eftir að samningi hans við Val var rift opinberaði Jesper að hann væri til í að vera áfram hér á landi ef rétt tilboð bærist. Íslenski boltinn 12. janúar 2023 18:00
Potter: Að stýra Chelsea er erfiðasta starfið í fótboltanum Graham Potter hefur ekki byrjað vel sem knattspyrnustjóri Chelsea en fyrstu vikurnar eftir HM í Katar hafa verið einstaklega erfiðar. Fótbolti 12. janúar 2023 17:31
Þjálfari argentínska landsliðsins segir að Messi gæti spilað á HM 2026 Heimsmeistaramótið í Katar átti að vera síðasta HM hjá Lionel Messi en nú er landsliðsþjálfarinn farinn að tala um næsta mót að fjórum árum liðnum. Fótbolti 12. janúar 2023 11:31
Fimm íslensk félög fá alls ellefu milljónir frá UEFA vegna stelpnanna okkar Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, greiðir nú í fyrsta sinn umbunargreiðslu vegna þátttöku leikmanna félaga á Evrópumóti kvenna í fótbolta. Fótbolti 12. janúar 2023 09:47
Infantino boðaður í skýrslutöku hjá lögreglu Gianni Infantino, forseti FIFA, var yfirheyrður af lögregluyfirvöldum í Sviss öðru sinni í vikunni vegna meintra glæpa hans. Hann á að hafa hvatt til misbeitingar valds og hindrað refsiaðgerðir lögreglu- og dómsvaldsins. Fótbolti 12. janúar 2023 09:30
Mancini segir frá hinstu ósk vinar síns Vialli Roberto Mancini, landsliðsþjálfari Ítalíu, hefur greint frá síðustu samskiptunum sem hann átti við fyrrum liðsfélaga sinn og vin til margra ára, Gianluca Vialli. Vialli lést eftir baráttu við krabbamein 6. janúar síðastliðinn. Fótbolti 12. janúar 2023 08:31
United búið að ná samkomulagi við Burnley en þurfa enn að bíða Það verður sífellt líklegra að Hollendingurinn Wout Weghorst gangi til liðs við Manchester United. Samkomulag er í höfn á milli United og Burnley en Besiktas mun eiga síðasta orðið. Fótbolti 11. janúar 2023 23:15
Real í úrslit ofurbikarsins en sigurinn gæti orðið dýrkeyptur Real Madrid er komið í úrslit spænska ofurbikarsins en liðið vann í kvöld sigur á Valencia eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni. Tveir leikmenn Real þurftu að fara af velli í leiknum vegna meiðsla. Fótbolti 11. janúar 2023 22:24
Messi skoraði í sigri PSG Lionel Messi skoraði seinna mark PSG í 2-0 sigri liðsins gegn Angers í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. PSG er aftur komið með sex stiga forskot á toppnum. Fótbolti 11. janúar 2023 22:09
Nottingham Forest í undanúrslit eftir sigur í vítakeppni Nottingham Forest er komið í undanúrslit enska deildabikarsins eftir sigur á Wolves í vítaspyrnukeppni. Dean Henderson varði tvær vítaspyrnur Úlfanna. Fótbolti 11. janúar 2023 22:02
Southampton sló City úr leik Southampton gerði sér lítið fyrir og vann 2-0 sigur á Manchester City í 8-liða úrslitum enska deildarbikarsins í kvöld. City fer því ekki með gott veganesti inn í helgina þar sem þeir mæta Manchester United. Enski boltinn 11. janúar 2023 21:50
Maðkur í mysunni í bikarsigri Arsenal? Leikmaður Oxford er grunaður um veðmálasvindl í bikarleik liðsins gegn Arsenal á mánudagskvöldið. Enska knattspyrnusambandið er með málið til rannsóknar. Fótbolti 11. janúar 2023 18:00
Íslands- og bikarmeistari semur við kvennalið HK HK-konur ætla sér greinilega upp í Bestu deild kvenna í fótbolta næsta haust en liðið hefur bætt við sig erlendum leikmanni sem varð Íslands- og bikarmeistari með Val síðasta sumar. Íslenski boltinn 11. janúar 2023 16:01
Bikarklúður Barcelona: Gætu dottið úr bikarnum þrátt fyrir 9-0 sigur Kvennalið Barcelona vinnur ekki tvöfalt fjórða árið í röð eftir grátleg mistök hjá stjórnendum félagsins. Fótbolti 11. janúar 2023 15:30
Stjórn franska knattspyrnusambandsins setti forsetann til hliðar Stjórn franska knattspyrnusambandsins tók þá ákvörðun á fundi sínum í dag að leysa forseta sambandsins tímabundið frá störfum. Fótbolti 11. janúar 2023 13:38
Hásæti Pele er hér eftir á fótboltaleikvangi í Mexíkó Mexíkóska félagið Pachuca heiðraði brasilísku knattspyrnugoðsögnina Pele með sérstökum hætti í vikunni. Fótbolti 11. janúar 2023 13:01
Félix sá fjórði sem Chelsea kaupir í janúar Chelsea hefur fengið Portúgalann João Félix á láni frá Atlético Madrid á Spáni. Hann fjórði leikmaðurinn til að ganga í raðir liðsins þegar aðeins ellefu dagar eru liðnir á janúargluggann. Enski boltinn 11. janúar 2023 12:22
Lloris segir að Martínez hafi gert sig að fífli Hugo Lloris, fyrrverandi fyrirliði franska fótboltalandsliðsins, hefur bæst í hóp þeirra sem hafa gagnrýnt Emiliano Martínez, markvörð heimsmeistara Argentínu. Fótbolti 11. janúar 2023 07:31
Hvetja forseta knattspyrnusambandsins til að segja af sér eftir ummæli um Zidane Patrick Anton, yfirmaður siðanefndar franska knattspyrnusambandsins, hefur hvatt forseta sambandsins, Nöel Le Graët, til að segja af sér eftir óheppileg ummæla forsetans um knattspyrnugoðsögnina Zinedine Zidane. Fótbolti 10. janúar 2023 22:45
Inter í átta liða úrslit eftir dramatíska endurkomu Inter Milan er á leið í átta liða úrslit ítölsku bikarkeppninnar, Coppa Italia, eftir að liðið vann dramatískan 2-1 endurkomusigur gegn Parma í framlengdum leik í kvöld. Fótbolti 10. janúar 2023 22:36