
Button fljótastur á fyrstu æfingunni í Abú Dabí
Jenson Button á McLaren var fljótastur á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á Yas Marina brautinni í Abú Dabí í morgun, en næstsíðasta Formúlu 1 mót ársins fer fram á brautinni á sunnudaginn.
Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.
Jenson Button á McLaren var fljótastur á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á Yas Marina brautinni í Abú Dabí í morgun, en næstsíðasta Formúlu 1 mót ársins fer fram á brautinni á sunnudaginn.
Nico Rosberg hefur framlengt samning sinn við Mercedes Formúlu 1 liðið og í frétt á autosport.com segir að umræða hafi verið um það síðustu mánuði að hann færi til Ferrari í framtíðinni, en nú er ljóst að hann hefur framlengt samning sinn við Mercedes til loka 2013 í það minnsta. En í fréttatilkynningu frá Mercedes er rætt um samning sem nær til loka 2013 og framyfir þann tíma, sem gæti þýtt að hann eigi val á að vinna lengur með Mercedes samkvæmt frétt autosport.com.
Heimsmeistarinn í GP 2 mótaröðinni 2011, Romain Grosjean mun aka með Renault liðinu á æfingu á föstudegi í þeim tveimur Formúlu 1 mótum sem eftir eru. Næsta mót er í Abú Dabí um næstu helgi. Grosjean er varaökumaður Renault liðsins, en Bruno Senna og Vitaly Petrov eru aðalökumenn þess.
Jenson Button hjá McLaren varð í öðru sæti á eftir Sebastian Vettel á Red Bull í síðustu Formúlu 1 keppni, sem var í Indlandi á nýrri braut og Button keppir í Abú Dabí um næstu helgi. Button er í öðru sæti í stigakeppni ökumanna, en Vettel er þegar orðinn heimsmeistari ökumanna.
Lewis Hamilton hjá McLaren hefur unnið tvö Formúlu 1 mót á þessu keppnistímabili og vill ljúka því með því að vinna tvö síðustu mót ársins. Fyrra mótið er í Abu Dabí um næstu helgi, á Yas Marina-brautinni, en það síðara fer fram í Brasilíu.
Formúlu 1 mót fer fram í Abú Dabí um næstu helgi og Michael Schumacher og Nico Rosberg hjá Mercedes mæta til leiks á mótsvæði sem var notað í fyrsta skipti árið 2009 í Formúlu 1. Mótið hefst í dagsbirtu, en lýkur á flóðlýstri braut, þar sem það hefst seint að degi til.
Fjórir ökumenn eiga möguleika á að ná öðru sæti i stigamóti Formúlu 1 ökumanna, þegar tveimur mótum er ólokið, en McLaren liðið tryggði sér annað sætið í stigamóti bílasmiða í gær, á eftir Red Bull, með árangri liðsins á Buddh brautinni í Indlandi.
Indverjinn Narain Karthikeyan ók á heimavelli í fyrsta indverska Formúlu 1 kappakstrinum á Buddh brautinni í Indlandi í gær. Hann ók bíl HRT liðsins í stað Tonio Liuzzi, sem er keppir venjulega með liðinu ásamt Daniel Ricciardo.
Fyrsta Formúlu 1 mótið í Indlandi fór fram í gær á Buddh brautinni og Bernie Ecclestone, framkvæmdarstjóri FOM kveðst ánægður með fyrsta mótið í á brautinni.
Sebastian Vettel hjá Bull liðinu bætti enn einni í rósinni í hnappagatið í Formúlu 1 keppni í dag þegar hann vann indverska Formúlu 1 kappaksturinn. Í fyrsta skipti á sömu mótshelgi náði hann að ná besta tíma í tímatöku, vera í forystu í keppninni frá upphafi til enda, ná besta aksturstímanum í einstökum hring í keppninni og fagna sigri. Vettel er líka yngsti ökumaður sögunnar til að ná þessum árangri í Formúlu 1 keppni.
Þjóðverjinn Sebastian Vettel fagnaði í dag sigri í indverska kappakstrinum í Formúlu 1-mótaröðinni en hann var fyrir nokkru síðan búinn að tryggja sér heimsmeistaratitilinn í ár.
Sebastian Vettel á Red Bull náði því marki að ná besta tíma tímatöku í þrettanda skipti á árinu, í tímatökunni á Buddh brautinni í Indlandi í dag. Vettel jafnaði þannig árangur sem Alain Prost og Ayrton heitin Senna höfðu áður náð á sínum Formúlu 1 ferli í tímatökum en metið hvað árangur í tímatökum varðar á Nigel Mansell. Mansell náði fjórtan sinnum að vera fljótastur í tímatökum árið 1992.
Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökunni á Buddh brautinni í Indlandi í dag. Lewis Hamilton var með næst besta tíma á McLaren og Mark Webber á Red Bull varð þriðji. Árangur Vettel þýðir að hann verður fremstur á ráslínu í þrettánda skipti í Formúlu 1 móti á árinu.
Felipe Massa á Ferrari náði besta aksturstímanum á Buddh brautinni í Indlandi, sem verður notuð í fyrsta skipti í keppni á sunnudaginn. Tvær æfingar fóru fram á föstudag á brautinni. Lewis Hamilton á McLaren náði besta tíma á fyrri æfingunni, en Massa á þeirri síðari. Tími Massa reyndist besti tími dagsins.
Fyrsta Formúlu 1 mót sögunnar í Indlandi fer fram á sunnudaginn og eitt keppnisliðið sem þar keppir var stofnað af indverskum aðila. Vijay Mallya stofnaði Formúlu 1 liðið Force India árið 2007, en nafn liðsins mætti þýða á íslensku sem Mátt Indlands. Force India liðið er með starfsaðstöðu við Silverstone brautina í Bretlandi og ökumenn liðsins eru Paul di Resta frá Skotlandi og Adrian Sutil frá Þýskalandi.
Nú Formúlu 1 braut verður notuð af Formúlu 1 liðum í keppni í fyrsta skipri á Indlandi á sunnudaginn, en hún er staðsett í 50 km fjarlægð frá miðhluta Nýju Delí og kallast brautin Buddh. Brautin var hönnuð af Hermann Tilke og fyrirtæki hans og er áætlað að það hafi kostað 300 miljónir Bandaríkjadala (nærri 34 miljarða íslenskra króna) að koma henni í gagnið samkvæmt upplýsingum frá FIA. Buddh brautin er 5.137 km að lengd og verða eknir 60 hringir í kappakstrinunm á sunnudag.
Red Bul liðiðl fagnaði því í gær að liðið vann titil bílasmiða í Formúlu 1, viku eftir að Sebastian Vettel, annar ökumanna liðsins hafði fagnað því að vinna meistaratitil ökumanna. Red Bull var í mestri samkeppni við McLaren og Ferrari um meistaratitil bílasmiða, en tryggði sér titilinn í gær, þó þremur mótum sé enn ólokið á keppnistímabilinu. Yfirmaður Red Bull, Christian Horner segir liðið hafa bætt sig á öllum sviðum.
Sebastian Vettel vann sinn tíunda sigur í Formúlu 1 á þessu keppnistímabili í dag. Hann kom fyrstur í endamark á kappakstursbrautinni í Yeongam í Suður Kóreu. Lewis Hamilton á McLaren varð í öðru sæti í mótinu og Mark Webber á Red Bull þriðji.
Formúlu 1 ökumaðurinn Lewis Hamilton á McLaren verður fremstur á ráslínu á kappakstursbrautinni í Yenogam í Suður Kóreu á aðfaranótt sunnudags. Hamilton náði besta tíma í tímatökunni fyrir keppnina.
Jenson Button á McLaren reyndist fljót æiastur á síðustu æfingu Formúlu 1 liða í fyrir tímatökuna, sem verður í nótt á kappakstursbrautinni í Yenomag í Suður Kóreu. Button varð 0.289 úr sekúndu á undan Lewis Hamilton á McLaren, en Mark Webber á Red Bull náði þriðja besta tíma og var 0.833 á eftir Button. Sebastian Vettel á Red Bull náði aðeins með níunda besta tíma, en lenti í tvígang í því að Torro Rosso ökumaður var fyrir honum í brautinni í hröðum hring. Brautin í Suður Kóreu var þurr, en tvær fyrstu æfingarnar höfðu farið fram í rigningu og ekki eru líkur á rigningu í tímatökunni. Tímatakan er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 04.45 í nótt og verður í opinni dagskrá og endursýn kl. 11.45 á laugardag.
Lewis Hamilton á McLaren var með besta tíma á föstudagsæfingum Formúlu 1 liða á kappakstursbrautinni í Yenogam í Suður Kóreu.
Tvær æfingar fór fram hjá Formúlu 1 liðum á Kóreu kappakstursbrautunni í Yenogam í Suður Kóreu í nótt. Rigning var á báðum æfingum, sem voru liður í undirbúningi fyrir kappakstur á brautinni á sunnudaginn. Red Bull á möguleika á að tryggja sér meistaratitil bílasmiða í mótinu, en Sebastian Vettel er þegar orðinn heimsmeistari ökumanna.
Christian Horner, yfirmaður Formúlu 1 liðs Red Bull, segir að markmið liðsins sé að tryggja liðinu meistaratitil bílsmiða í framhaldinu af því að Sebastian Vettel ökumaður liðsins tryggði sér titil ökumanna í gær. Yngstur allra til að vinna tvo meistaratitla í röð, eftir að hafa orðið yngsti meistari sögunnar í fyrra.
Jenson Button fagnaði sigri í japanska kappakstrinum í gær á McLaren, en Button var eini ökumaðurinn sem átti tölfræðilega möguleika á því að skáka Vettel í titilslagnum fyrir mótið í Japan.
Sebastian Vettel fagnaði öðrum meistaratitli sínum í heimsmeistaramóti ökumanna í Formúlu 1 á Suzuka brautinni í Japan í dag. Hann fór fögrum orðum um samstarfsmenn sína hjá Red Bull liðinu eftir að hafa tryggt sér meistaratitilinn annað árið í röð. Hann vildi meina að allir hjá Red Bull hefðu lagt hönd á plóginn í kapphlaupinu um titilinn, sama í hvaða starfi þeir væru hjá liðinu, en Red Bull liðið er staðsett í Milton Keynes í Bretlandi.
Jenson Button á McLaren vann japanska kappaksturinn á Suzuka brautinni í dag. Hann kom fyrstur í endmark á undan Fernando Alonso á Ferrari og Sebastian Vettel á Red Bull. Vettel tryggði sér heimsmeistaratitil ökumanna með árangri sínum í dag.
Sebastian Vettel tryggði sér í morgun heimsmeistaratitilinn í Formúlu-1 annað árið í röð. Vettel verður þar með yngsti tvöfaldi heimsmeistari frá upphafi formúlunnar, en hann er aðeins 24 ára og 98 daga gamall. Titilinn tryggði hann sér í nótt á japönsku kappakstursbrautinni í Suzuka. Þar endaði Vettel þriðji, á eftir Jenson Button og Fernando Alonso. Það dugði honum þó til þess að tryggja sér titilinn.Félagi Vettels, Mark Webber, endaði fjórði í morgun. Þeir aka fyrir lið Red Bull, og með stigunum í morgun virðast Red Bull vera að tryggja sér titil bílasmiða annað árið í röð.
Sebastian Vettel á Red Bull verður fremstur á ráslínu í japanska Formúlu 1 kappakstrinum á Suzuka brautinni, sem fram fer á sunnudag. Vettel varð aðeins 0.009 sekúndum á undan Jenson Button á McLaren í tímatökunni í dag.
Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökunni á Suzuka brautinni í Japan í nótt. Hann varð aðeins 0.009 úr sekúndu á undan Jenson Button á McLaren, en Lewis Hamilton á McLaren var þriðji fljótastur og Felipe Massa á Ferrari á eftir honum.
Jenson Button á McLaren náði besta tíma á þriðju og síðustu æfingu Formúlu 1 ökumanna á Suzuka brautinni í Japan í nótt. Hann var 0.507 úr sekúndu fljótari en Lewis Hamilton á McLaren, en Sebastian Vettel á Red Bull var með þriðja besta tíma, 0.867 á eftir Button. Fjórði varð Fernando Alonso á Ferrari, 1.024 sekúndu á eftir Button.