

Fréttir af ýmsum málum tengdum ferðamennsku á Íslandi.
Tekjur af komu ferðmanna til landsins eru ekki um 350 milljarðar eins og talið er heldur um 140 milljörðum lægri. Tveir fræðingar segja stjórnvöld vísvitandi skella fram hærri tekjum af komu ferðamanna til landsins.
„Við stofnuðum fyrirtækið fyrir rúmlega einu og hálfu ári og erum í dag leiðandi „nightlife-service“ á Íslandi.“
Íslenskt tónlistarfólk á einn stærsta þátt í því að laða að ferðafólk til landsins.
Erlend kortavelta hefur aukist gífurlega hér á landi á síðustu árum.
Sveitarstjórn Skaftárhrepps telur að ekki eigi að leyfa ferðafólki að halda til í tjöldum og húsbílum nema á skipulögðum svæðum.
Segist ekki hafa verið virkur í stjórnmálastarfi í nokkra áratugi og ekki þurfa hjálp vina sinna til að fá vinnu.
Í dag fer fjórði milljónasti farþeginn um flugstöð Leifs Eiríkssonar og þar með verður slegið met í farþegafjölda um flugstöðina.
"Þegar við Vigdís Hauksdóttir föllumst í faðma og erum innilega sammála er örugglega eitthvað rotið á ferðinni,“ segir ráðherrann fyrrverandi.
Aðgöngumiðar í sundlaugar í Reykjavík munu hækka um nærri fjörutíu prósent næstu mánaðarmót. Formaður ÍTR segir rekstur sundlauganna engan veginn standa undir sér, meðal annars vera vegna launahækkana starfsfólks. Sundlaugargestir eru missáttir við hækkunina.
"Þetta á síst að bitna á þeim sem fara reglulega í sund, stærstu notendum sundlauganna,“ segir Þórgnýr Thoroddsen, formaður ÍTR.
Skrifa á undir samning við Hörð Þórhallsson, framkvæmdastjóra Stjórnstöðvar ferðamála, á næstu dögum samkvæmt svari atvinnuvegaráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins.
Flugfélagið segir frestun á Norður-Ameríkuflugi um ár skýra tapið.
Norðurljósavirkni hefur verið töluverð undanfarna daga og hafa fjölmargir íslenskir ljósmyndarar fangað fegurðina.
Milljarða velta er af rekstri hinna svokölluðu lundabúða. Álagning er óheyrileg – varan er að mestu fjöldaframleidd í Kína; seld sem íslensk sé.
Heildarfjöldi ferðamanna í septembermánuði hefur meira en fimmfaldast frá árinu 2002.
Gleðitíðindi, segir bæjarstjórinn um fyrirhugað beint flug frá Egilsstaðaflugvelli til London.
Flogið verður á miðvikudögum og laugardögum frá maí fram í september.
WOW air hefur aldrei flutt jafnmarga farþega í septembermánuði eins og nú í ár.
Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 18% á síðasta ári.
Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, telur svigrúm fyrir 40 til 50 fyrirtæki á Aðalmarkaði. Þar sé nú aðeins eitt ferðaþjónustufyrirtæki en fullt efni sé til að sjá hlutabréf fleiri slíkra fyrirtækja í Kauphöllinni.
Ríkið, sveitarfélögin og Samtök ferðaþjónustunnar sameinast um nýja Stjórnstöð ferðamála. Hún á að fá 140 milljónir á ári í fimm ár. Á að höggva á hnút framkvæmdaleysis og gríðarlegs flækjustigs í ákvörðunum.
Ragnheiður Elín Árnadóttir og Grímur Sæmundsen kynntu nýja ferðamálastefnu Íslands fyrr í dag.
Annan mánuðinn í röð var WOW air óstundvísast.
Hlutdeild Icelandair minnkar.
Örlygur Hnefill Örlygsson, safnstjóri Könnunarsögusafnsins á Húsavík, var klæddur í geimfarabúning á forsíðu ferðatímarits flugvélagsins Air Berlin.
Við rannsókn Hvalfjarðarsveitar fundust nítján sumarhús sem voru leigð út til gistingar. Í kjölfarið voru fasteignagjöld hækkuð. Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir tekjur af ferðaþjónustu skila sér illa til sveitarfélaga.
"Þú hallar þér í vélinni :) Góða ferð!“
Áætlað er að hótelherbergjum í Reykjavík verði fjölgað um 1.700 fram til 2018/2019. Stærstu framkvæmdirnar verða við Marriot hótelið við Hörpu og hótel sem áformað er að reisa í Hlíðarenda.
Tugir mála hafa komið inn á borð Einingar-Iðju þar sem starfsfólk í ferðaþjónustu fær ekki greitt samkvæmt kjarasamningum. Ferðaþjónustan er sú atvinnugrein sem brýtur einna helst á launafólki sínu að mati Björns Snæbjörnssonar.
Ég veit ekki hverju þú svarar því, lesandi góður, en ég svara því hiklaust játandi. Hótel og svokallaðar „lundabúðir“ blasa við manni á öðru hverju götuhorni og flest ef ekki allt virðist miðast við ætlaðar þarfir og viðskipti við erlenda ferðamenn,