

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Ten Hag segir fyrstu viðræðurnar við Ratcliffe hafi verið mjög jákvæðar
Það var gott hljóð í Erik ten Hag, knattspyrnustjóra Manchester United, þegar hann var spurður út í fund sinn með Sir Jim Ratcliffe og INEOS fólkinu hans.

Segir þurfa „ótrúlegt tilboð“ til að Toney fái að fara
Thomas Frank, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford, segir að það þurfi að berast ótrúlegt tilboð í eftirsótta framherjann Ivan Toney til að hann fái að yfirgefa félagið í janúar.

Tíu leikmenn Everton héldu út
Crystal Palace og Everton gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í þriðju umferð FA-bikarsins í knattspyrnu í kvöld. Liðin þurfa því að mætast á ný til að skera úr um sigurvegara.

Arsenal kvartaði yfir illri meðferð á Saka
Fyrr á þessu tímabili kvartaði Arsenal til dómarasamtaka ensku úrvalsdeildarinnar vegna meðferðar andstæðinga þeirra á Bukayo Saka.

Man. Utd missir Onana ekki strax eins og Liverpool missti Salah
André Onana mun standa í marki Manchester United í næstu tveimur leikjum liðsins þrátt fyrir að vera á leiðinni í Afríkukeppnina með kamerúnska landsliðinu.

Dortmund vill fá Sancho strax í næstu viku
Viðræður eru í gangi á milli Manchester Untied og Borussia Dortmund um félagaskipti Jadon Sancho. Þýska liðið vill að Sancho mæti í æfingabúðir liðsins á Spáni í næstu viku.

Littler fengið skilaboð frá Gary Neville og Rio Ferdinand
Hinn sextán ára Luke Littler fær stuðning víða að, meðal annars frá leikmönnum eftirlætis fótboltaliðsins hans, Manchester United.

Mo Salah gæti misst af átta leikjum Liverpool
Fyrir þá stuðningsmenn Liverpool sem óttast það að Liverpool selji stórstjörnuna Mohamed Salah þá gætu þeir sömu fengið smá sýnishorn af lífinu án Egyptans í þessum mánuði.

Gullkynslóð Englendinga ekki mörg karöt þegar menn setjast í stjórastólinn
Wayne Rooney er enn eitt dæmið um leikmann úr gullkynslóð Englendinga sem lendir í vandræðum í stjórastólnum.

Sancho gæti snúið aftur til Dortmund
Jadon Sancho, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United, geti snúið aftur til Borussia Dortmund á láni áður en félagsskiptaglugginn lokar í lok janúar.

Man Utd sendir Reguilon aftur til Tottenham
Spænski bakvörðurinn Sergio Reguilon er genginn aftir til liðs við Tottenham eftir stutta lánsdvöl hjá Manchester United.

Markalaust jafntefli batt enda á sigurgöngu West Ham
Eftir þrjá sigurleiki í röð í ensku úrvalsdeildinni er sigurganga West Ham United á enda eftir markalaust jafntefli gegn Brighton & Hove Albion í kvöld.

Hissa á að meiddur Mitoma hafi verið tekinn með á Asíumótið
Roberto de Zerbi, knattspyrnustjóri Brighton & Hove Albion, segist vera ansi hissa á því að vængmaðurinn Kaoru Mitoma hafi verið kallaður inn í japanska landsliðið fyrir Asíumótið sem hefst í næstu viku.

Fyrsta heimsókn Ratcliffes á Old Trafford eftir kaupin
Sir Jim Ratcliffe mætti á Old Trafford í dag, í fyrsta sinn síðan hann keypti fjórðungshlut í Manchester United.

Liverpool setti xG-met gegn Newcastle
Liverpool setti met yfir flest vænt mörk (xG) þegar liðið sigraði Newcastle United, 4-2, í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Salah skipti um skó eftir að hann klúðraði vítinu
Mohamed Salah skoraði tvívegis í sigri Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og er nú markahæstur í deildinni ásamt Erling Haaland hjá Manchester City. Báðir hafa skorað fjórtán deildarmörk.

Wayne Rooney rekinn
Wayne Rooney entist aðeins í tvo og hálfan mánuð sem knattspyrnustjóri enska félagsins Birmingham en hann hefur nú verið rekinn úr starfi.

Sérfræðingarnir saka Liverpool manninn um leikaraskap
Diogo Jota fiskaði vítaspyrnu á mikilvægum tímapunkti undir lok leiks Liverpool og Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og margir sérfræðingar sökuðu hann í kjölfarið um leikaraskap.

Myndatökumaðurinn kom Jürgen Klopp til bjargar
Fögnuður Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, eftir sigurinn á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi breyttist snögglega í andstöðu sína þegar hann týndi giftingarhringnum sínum.

Tomiyasu að framlengja við Arsenal
Japaninn Takehiro Tomiyasu, leikmaður Arsenal, er við það að framlengja samning sinn við félagið ef marka má nýjustu fréttir.

Meiðslavandræði Newcastle halda áfram
Meiðslavandræði Newcastle halda áfram en þeir Kieran Trippier og Callum Wilson eru báðir fjarri góðu gamni gegn Liverpool í kvöld

Nýja árið fer vel af stað hjá Liverpool
Liverpool styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar með 4-2 sigri á Newcastle í fyrsta leik ársins í ensku úrvalsdeildinni.

Arnór skoraði í jafntefli Blackburn
Arnór Sigurðsson og félagar í Blackburn gerðu 2-2 jafntefli við Rotherdam í Championship deildinni í dag.

Klopp: Alltof snemmt
Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, segist ekki vilja að hann né leikmennirnir fari fram úr sér í tali um titilbaráttuna.

Howe: Þurfum að spila fullkominn leik
Eddie Howe, þjálfari Newcastle, segir að hans lið verði að spila nánast fullkominn leik gegn toppliði Liverpool í kvöld ætli liðið sér að fá eitthvað úr leiknum.

Lockyer eftir hjartaáfallið: Ég er þakklátur hetjunum
Tom Lockyer, leikmaður og fyrirliði Luton, segist ætla að velta fyrir sér sínum valmöguleikum á næstu vikum.

Sarr hjá Tottenham til 2030
Pape Matar Sarr, leikmaður Tottenham, hefur samþykkt að skrifa undir nýjan sex ára samning við félagið.

Kvartaði til lögreglu vegna kynþáttaníðs fulls fótboltamanns
Starfsmaður í mótttökuþjónustu í húsnæði með lúxusíbúðum á Bretlandi kvartaði til lögreglu vegna meints kynþáttaníðs af hendi ónefnds fótboltamanns í ensku úrvalsdeildinni. Sá sem hann ber sökunum hafi verið drukkinn.

„Versti leikur okkar á leiktíðinni“
Arsenal þurfti að þola annað tap sitt í röð í ensku úrvalsdeildinni er Fulham vann 2-1 sigur á liðinu á Craven Cottage í dag. Knattspyrnustjóri Arsenal segir leikinn hafa verið afar slakan af hálfu hans manna.

Fyrstir til að vinna Bournemouth síðan í nóvember
Tottenham lagði Bournemouth 3-1 á Tottenham-vellinum í Lundúnum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Bournemouth tapar þar með sínum fyrsta leik í deildinni síðan snemma í nóvember.