Hrókeringar í markmannsmálum Man City Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. júlí 2025 22:18 Gæti snúið heim. EPA/DANIEL HAMBURY Það virðist sem breytingar séu framundan í markmannsmálum Manchester City. Englendingurinn James Trafford er orðaður við endurkomu eftir að hafa gert góða hluti hjá Burnley.
Hinn brasilíski Ederson hefur varið mark Man City með sóma frá árinu 2017. Hann hefur undnafarna mánuði verið orðaður við Sádi-Arabíu en virðist ekki æstur í að færa sig til Mið-Austurlanda. Nú greinir franski miðillinn L'Équipe frá því að Galatasaray hafi boðið í markvörðinn þó upphæðin hafi verið hlægilega lág. Tyrklandsmeistararnir hafa styrkt sig í sumar og gæti verið að Ederson hefði áhuga á að spila í því andrúmslofti sem stórleikir í tyrknesku deildinni bjóða upp á. Ederson og Pep Guardiola á góðri stundu.Catherine Ivill/Getty Images Sky Sports greinir nú frá að Man City ætli sér að fá hinn 22 ára gamla James Trafford, markvörð Burnley. Sá ólst upp í bláa hluta Manchester-borgar. Hann myndi kosta Man City 40 milljónir punda eða sex og hálfan milljarð íslenskra króna. Newcastle United hefur gert fjölmörg tilboð í Trafford, bæði í sumar sem og í janúar, en ekkert þeirra hefur heillað Burnley. Félagið getur hins vegar ekki neitað 40 milljón punda boði Man City þar sem klásúla þess efnis er í samningi Trafford frá því Burnley keypti hann af Man City árið 2023. Til að fullkomna hrókeringuna myndi Man City selja Stefan Ortega færi svo að Trafford kæmi heim og Ederson yrði áfram. Ortega er svo á blaði hjá Burnley yfir mögulega arftaka Trafford. Trafford yrði sjötti leikmaðurinn sem Man City kaupir í sumar. Tijjani Reijnders kom frá AC Milan, Rayan Cherki frá Lyon, Rayan Ait Nouri frá Úlfunum, Marcus Bettinelli frá Chelsea og Sverre Nypan frá Rosenborg.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira